Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 78

Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 78
Segðu það með Öll hlut- verk eru erfið og þetta er ótrúleg saga.  Bíó ÞorBjörg Helga Þorgilsdóttir Þykir fráBær í djúpinu Datt í lögfræði á milli verkefna í leiklistinni Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir leikur í Djúpinu, kvikmynd Baltasars Kormáks sem frumsýnd er í kvöld, og fer svo með aðalhlutverk í nýrri mynd sem er að fara í tökur og Ragnar Bragason leikstýrir. ö ll hlutverk eru erfið og þetta er ótrú-leg saga,“ segir Þorbjörg Helga Þor-gilsdóttir leikkona en hún fer með hlutverk konu sem missir manninn sinn á sjó í nýju mynd Baltasars Kormáks, Djúpinu, og hefur heldur betur fengið lof fyrir frammi- stöðu sína. Þorbjörg hefur sjálf ekki farið á sjó en þekkir heiminn ágætlega. Afi hennar heitinn, Sveinn Þórðarson, var á sjó („einn af þessum mönnum sem fylgdist með bátunum koma og fara að og frá bryggju í Neskaupstað á sínum efri árum,“ segir hún), og mamma hennar var kokkur á sjó á sínum tíma: „Þannig að þetta er alveg í blóðinu,“ útskýrir Þorbjörg sem útskrifaðist úr Leiklistarskólanum 2009 og fór beint í Borgarleikhúsið en söðlaði svo um og kláraði fyrsta árið í lögfræði við Há- skóla Íslands. „Hvernig veist þú það?“ spyr hún hlæjandi, skyndilega í hlutverki blaðamanns, og seg- ist varla nenna að tala um það því sagan af lögfræðiáhuganum sé stutt og óáhugaverð. Hún hljómar samt svona (eftir að ég togaði söguna upp úr henni): Þorbjörg datt inn í afleysingar á lögmannsstofu þegar hún var á milli verkefna í leiklistinni. Þetta var eft- ir hrunið og lögmannsstofan að gera hluti sem henni þótti mikilvægir. Hún lét því slag standa og skráði sig í lögfræði. Og náðirðu almennu lögfræðinni alræmdu? „Já,“ segir Þorbjörg og gefur lítið fyrir spurningar um hvort hún sé einhverskonar ofurkona; klárar leiklistina með bravúr og svo almennu í fyrstu atrennu. En Þorbjörg vill ekkert tala um það þann- ig. Hana langaði bara til að láta gott af sér leiða en svo fór bara að verða nóg að gera í leiklistinni. Hún er frábær í Djúpinu og svo leikur hún aðalhlutverkið í nýrri mynd Ragn- ars Bragasonar kvikmyndaleikstjóra sem er að fara í tökur. Myndin heitir Málmhaus og fjallar um „töffara“ segir Þorbjörg að lokum. Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir þykir standa sig vel í Djúpinu sem eiginkona manns sem ferst á sjó.  tónlist fyrsta plata ásgeirs trausta rokselst Höfðar bæði til barna og eldri borgara „Hann hefur gjörsamlega kveikt í fólki,“ segir Eiður Arnarsson, útgáfustjóri hjá Senu. Fyrsta plata tónlistarmannsins Ásgeirs Trausta Einarssonar, Dýrð í dauðaþögn, hefur verið rifin út úr hillum verslana siðan hún kom út fyrir rúmri viku. Samkvæmt Tónlistanum seldust 755 eintök af plötunni í síðustu viku en þegar allt er talið má áætla að salan hafi verið nálægt þúsund eintökum í síðustu viku. Platan rauk beint í toppsæti Tónlistans. „Það fyrsta sem manni datt í hug var hvort þetta gæti verið besta „debutvikan“ en við nánari skoðun kom í ljós að bæði Garðar Thor Cortes og Hildur Vala seldu meira í fyrstu vikunni,“ segir Eiður hjá Senu. Ásgeir Trausti sló í gegn í sjónvarpsþættinum Hljómskálanum fyrr á árinu með laginu Sumar- gestur. „Þetta lag kveikti svo mikið í Kidda Hjálmi að hann ákvað að gera með honum plötu. Við tókum ákvörðun byggða á því sama og ekki hefur næsta lag skemmt fyrir. Þessi plötusala byggir alfarið á vinsældum þessara tveggja laga.“ Aðspurður segist Eiður ekki búast við að Ásgeir selji neitt í líkingu við Mugison sem seldi yfir þrjátíu þúsund plötur í fyrra. „En ég er nokkuð viss um að hann fari yfir tíu þúsund.“ Eru þetta stelpurnar sem eru svona hrifnar af honum? „Mér sýnist hann nú bara höfða til mjög breiðs hóps, af báðum kynjum og frá grunnskólaaldri að fólki jafnvel á elliheimilum. Textahöfundurinn er jú 72 ára.“ Ásgeir Trausti seldi hátt í þúsund plötur í síðustu viku. Eiður hjá Senu bendir á að Of Monsters and Men hafi selt 450 eintök í fyrstu útgáfuviku í fyrra. Ljósmynd/Hari Höskuldur Daði Magnússon hdm@ frettatiminn.is Valur tekur við af Símoni Menningarþáttur Þórhalls Gunnarssonar, Djöflaeyjan á RÚV, hefur ráðið nýjan leiklistargagnrýnanda í stað Símonar Birgissonar leikstjóra sem þótti skeleggur í fyrra. Þórhallur leitaði ekki langt yfir skammt og réði vin Sím- onar og æskufélaga, Val Grettisson, blaðamann á Vísi. is, sem hefur heldur betur látið til sín taka á vefsvæði Reykvélarinnar.is en það er vefrit um sviðslist. Allir vinir í Skaftahlíð Ekki er víst að félagar Vals og yfirmenn hjá 365 í Skaftahlíð fagni þessum nýja starfs- frama hans. Þar á bæ er jafnan mikið lagt upp úr því að allir séu saman í liði þó þeir vinni á ólíkum miðlum. Gott dæmi um það er að Skarphéðinn Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, er nú farinn að skrifa kvikmyndagagnrýni í Fréttablaðið. Margir áhugamenn um fjölmiðla hafa í kjölfarið velt því fyrir sér, bæði í gamni og alvöru, hvort Skarphéðinn eða einhverjir aðrir af ljósvakasviðinu muni ekki fljótlega taka að sér skrif á fjölmiðlapistlum Frétta- blaðsins. Svona til að efla samstöðuna hjá Ara Edwald og hans fólki. Snertir ekki á prinsessubrjóstum Eiríkur Jónsson hefur tekið góða spretti á vef sínum eirikurjonsson.is þar sem hann er orðinn einyrki í blaðamennsku. Þar upplýsti hann á fimmtudag að Séð og heyrt ætlaði ekki að fylgja fordæmi systurblaða sinna í Danmörku og Svíðþjóð með því að birta myndir af Katrínu, hertogaynju af Cam- bridge, berbrjósta. Segja má að málið sé Eiríki skylt þar sem hann er fyrrverandi ritstjóri Séð og heyrt. Björk Eiðsdóttir, sem ritstýrir tímaritinu núna, staðfesti í spjalli við forvera sinn að henni þætti myndbirting af þessu tagi „fullgróf“ og hún myndi því ekki spila með Se og Hör. Ekki fylgdi sögunni hvað Eiríkur sjálfur hefði gert væri hann í sporum Bjarkar. 78 dægurmál Helgin 21.-23. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.