Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 72
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Leikdómur með fuLLa vasa af grjóti
Tveir bestu leikararnir
Um síðustu helgi tók Þjóðleikhúsið leikritið Með fulla vasa af grjóti aftur til sýninga en það
var fyrst frumsýnt árið 2000 og þá sáu 40 þúsund manns sýninguna. Hilmir Snær Guðnason
og Stefán Karl Stefánsson halda verkinu uppi með stórgóðum leik.
Stefán Karl Stefánsson og Hilmir Snær Guðnason halda verkinu uppi með stórkostlegum leik.
f yrir tólf árum frumsýndi Þjóðleik-húsið leikritið Með fulla vasa af grjóti eftir Marie Jones og var það
sýnt við miklar vinsældir – 180 sýn-
ingar og 40 þúsund miðar seldir. Verkið
fjallar um tvo aukaleikara (Stefán Karl
Stefánsson og Hilmir Snær Guðnason) í
Hollywoodmynd sem setur allt á annan
endann í írskum smábæ. Fyrirfram
hefði maður haldið að efnið myndi eiga
vel við í dag þegar Ben Stiller og Russel
Crowe og Emma Watson eru okkur svo
hugleikin.
Frábærir leikarar
Bæði verkið og sýningin eldast ekki vel
og ég segi sýningin því ekki er um að
ræða nýja uppfærslu á verkinu heldur
endursýningu. Á síðustu tólf árum
hefur erindið tapast og maður átti erfitt
með að tengja við annað en frábæran
leik þeirra Stefáns Karls Stefánssonar
og Hilmis Snæs Guðnasonar sem gáfu
sig alla í sýninguna þannig að úr varð
ánægjuleg kvöldstund, stórskemmtileg
á köflum.
Það er einfaldlega ekki á valdi margra
leikara að halda uppi svona sýningu en
Hilmir Snær og Stefán Karl leika fjölda
persóna og draga þær allar listilega vel
upp, bæði karla og konur, börn og gam-
almenni. Oft er þetta ýkt og kómískt en
aldrei kasta þeir til hendinni eða reyna
að komast billega frá verkinu. Allar
tímasetningar hjá þeim félögum eru hár-
réttar og aldrei dauð stund í leiknum,
enda samvinna þeirra og samtal til fyrir-
myndar.
Uppgjör við Hollywoodmyndir
Auðvitað hefði verið skemmtilegra að
sjá þessa fínu leikara spreyta sig á ein-
hverju nýju en það má með sanni segja
að þeir hafi þroskast vel sem leikarar á
tólf árum – þeir voru góðir en eru miklu
betri í dag – og þótt verkið sé sniðugt
og að mörgu leyti vel upp byggt þá á
sagan ekki lengur erindi við okkur. Með
fulla vasa af grjóti botnar einhverskonar
uppgjör Íra við allar þessar Hollywood-
myndir sem skotnar voru á Írlandi á
níunda áratugnum. Það er ákveðinn
vælutónn, mjög írskur, í verkinu undan
ágengni kvikmyndafólksins og minni-
máttarkennd sem ég held að við Íslend-
ingar tengjum ekki lengur við.
Í lok verksins leita aukaleikararnir á
náðir leikstjóra Hollywoodmyndarinnar
og vilja selja honum söguþráð leikritsins
sem við áhorfendur í Þjóðleikhúsinu
höfðum setið undir. Leikstjórinn segir,
eins og við, að þessi saga gangi ekki upp.
Niðurstaða:
Ánægjuleg kvöldstund
og stórskemmtileg á
köflum. Hilmir Snær
Guðnason og Stefán
Karl Stefánsson leika
bæði karla og konur,
börn og gamalmenni,
og stíga vart feilspor í
sýningunni.
með fulla vasa
af grjóti
Höfundur: Marie Jones.
Leikstjórn: Ian McElhinney.
Útfærsla leikmyndar
og búninga: Elín Edda Árnadóttir.
Aðstoðarleikstjóri:
Selma Björnsdóttir.
Þýðing: Guðni Kolbeinsson.
Leikarar: Hilmir Snær Guðnason,
Stefán Karl Stefánsson.
Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónsson leika listamann-
inn og aðstoðarmann hans.
frumsýning BorgarLeikhúsið frumsýnir verkið rautt í kvöLd
Leikrit eftir handritshöfund The Aviator, Gladiator og Hugo
Í kvöld frumsýnir Borgarleikhúsið
verkið Rautt eftir John Logan,
margverðlaunað leikskáld og kvik-
myndahandritahöfund, í leikstjórn
Kristínar Jóhannesdóttur. Með
aðalhlutverk fara þeir Jóhann Sig-
urðarson og Hilmar Guðjónsson en
verkið fjallar um listamanninn Mark
Rothko sem var í framvarðarsveit
abstrakt-expressjónistana þar til að
hann drap sig fyrir rúmum fjörutíu
árum, þá 66 ára gamall.
Það er Jóhann sem leikur lista-
manninn en Hilmar leikur aðstoðar-
mann hans. Leikritið sækir innblást-
ur til þess þegar Rothko, í lok sjötta
áratugarins, tók að sér að mála verk
fyrir svimandi háar upphæðir fyrir
veitingastað Four Season hótels-
ins á Manhattan. Honum var mikið
niðri fyrir, eins og svo oft áður, og
ætlaði að láta þessa ríku andskota
svelgjast á matnum, svo kraftmikil
áttu verkin að vera. Eða svo sagði
listamaðurinn sem barðist oft við
sjálfan sig – um það fjallar verkið
einmitt; baráttu Rothko við sjálfan
sig og eigin goðsögn – og lét oft sem
verkin segðu svo miklu, miklu meira
en þau gæfu uppi beint. En svo fór
að Rothko endurgreiddi á endanum
hótelinu peningana sem hann hafði
fengið greitt og leyfði ekki að verkin
yrðu hengd upp á veitingastaðnum.
Mark Rothko var margflókinn
persónuleiki. Hann flutti ungur
frá Rússlandi til Bandaríkjanna
með foreldrum sínum og átti alla
tíð í miklum átökum við sjálfa
sig og listina. Það er hinn reyndi
John Logan sem skrifaði leikritið
og hefur hlotið verðlaun fyrir en
hann er kannski þekktastur fyrir
kvikmyndahandritin sín en Logan
skrifaði handritin að Gladiator, The
Aviator og Hugo og er að auki einn
þriggja handritshöfunda að nýjustu
James Bond myndinni.
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Rautt – frumsýnt í kvöld kl 20
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 6.k Lau 29/9 kl. 20:00 11.k Sun 7/10 kl. 20:00 15.k
Lau 22/9 kl. 20:00 7.k Sun 30/9 kl. 20:00 12.k Þri 9/10 kl. 20:00 16.k
Sun 23/9 kl. 20:00 8.k Fim 4/10 kl. 20:00 aukas Mið 10/10 kl. 20:00 17.k
Fim 27/9 kl. 20:00 9.k Fös 5/10 kl. 20:00 13.k Fim 11/10 kl. 20:00 18.k
Fös 28/9 kl. 20:00 10.k Lau 6/10 kl. 20:00 14.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Lau 22/9 kl. 14:00 4.k Sun 30/9 kl. 16:00 7.k Lau 13/10 kl. 14:00 11.k
Sun 23/9 kl. 16:00 5.k Sun 30/9 kl. 19:00 8.k Sun 14/10 kl. 14:00 12.k
Sun 23/9 kl. 19:00 aukas Lau 6/10 kl. 14:00 9.k Lau 20/10 kl. 14:00 13.k
Lau 29/9 kl. 14:00 6.k Sun 7/10 kl. 14:00 10.k Sun 21/10 kl. 14:00 14.k
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:00 frums Lau 6/10 kl. 22:00 4.k Lau 13/10 kl. 19:00 7.k
Lau 29/9 kl. 20:00 2.k Sun 7/10 kl. 20:00 5.k Lau 20/10 kl. 19:00 8.k
Lau 6/10 kl. 19:00 3.k Fös 12/10 kl. 19:00 6.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur
Rautt (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 frums Fös 28/9 kl. 20:00 6.k Fös 5/10 kl. 20:00 11.k
Lau 22/9 kl. 20:00 2.k Lau 29/9 kl. 20:00 7.k Lau 6/10 kl. 20:00 12.k
Sun 23/9 kl. 20:00 3.k Sun 30/9 kl. 20:00 8.k Sun 7/10 kl. 20:00 13.k
Mið 26/9 kl. 20:00 4.k Mið 3/10 kl. 20:00 9.k Fim 11/10 kl. 20:00 14.k
Fim 27/9 kl. 20:00 5.k Fim 4/10 kl. 20:00 10.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 1.k Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k
Fös 26/10 kl. 20:00 2.k Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fim 29/11 kl. 20:00 12.k
Fös 2/11 kl. 20:00 3.k Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fös 30/11 kl. 20:00 13.k
Lau 3/11 kl. 20:00 4.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fim 6/12 kl. 20:00 14.k
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Fös 23/11 kl. 20:00 10.k
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 7/10 kl. 13:00 1.k Sun 14/10 kl. 13:00 2.k Sun 21/10 kl. 13:00 3.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 SÝNINGAR Á 11.900 KR.
MEÐ LEIKHÚSKORTI
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 23/9 kl. 14:00 5.sýn Sun 14/10 kl. 14:00 11.
sýn
Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn
Sun 23/9 kl. 17:00 6.sýn Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn
Sun 30/9 kl. 14:00 7.sýn Lau 20/10 kl. 14:00
AUKAS.
Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn
Sun 30/9 kl. 17:00
TÁKNMÁL
Lau 20/10 kl. 17:00
AUKAS.
Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn
Sun 7/10 kl. 14:00 9.sýn Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn
Sun 7/10 kl. 17:00 10.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn
Lau 13/10 kl. 14:00
AUKAS.
Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn
Lau 13/10 kl. 17:00
AUKAS.
Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn
Sýningar í október komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 21/9 kl. 19:30 Lau 22/9 kl. 19:30 Sun 23/9 kl. 19:30 Síð.sýn
Þrenn Grímuverðlaun! Sýningum lýkur í september!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:30 3.sýn Sun 30/9 kl. 20:30 8.sýn Sun 7/10 kl. 20:30 13. sýn.
Lau 22/9 kl. 20:30 5.sýn Fim 4/10 kl. 20:30 9.sýn Lau 13/10 kl. 20:30 14.sýn
Fim 27/9 kl. 20:30 6.sýn Fös 5/10 kl. 20:30 10.sýn
Fös 28/9 kl. 20:30 7.sýn Lau 6/10 kl. 20:30 12.sýn
Sýningin sem sló öll aðsóknarmet aftur á svið. Sýnd í september og október.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mið 7/11 kl. 19:30 Fim 15/11 kl. 19:30
Fim 8/11 kl. 19:30 Fös 16/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins þessar fjórar sýningar í nóvember.
72 leikhús Helgin 21.-23. september 2012