Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 74

Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 74
Árshátíð? ...eða afmæli, brúðkaup, kynningarfundur, haustfagnaður, erfidrykkja, brúðkaupsafmæli, vörukynning, bekkjarpartí, peppfundur, útgáfuteiti eða er tímabært að hrista saman vinahópinn? Þá erum við til staðar með allt sem til þarf: Staðinn, veitingarnar, tæknibúnað og ráðgjöf. www.idusalir.is Lækjargötu 2a • Reykjavík • sími 517 5020 „Það er einstakt þegar maður hittir annan tónlistarmann og hlutirnir smella svona vel saman. Ég fann það þegar ég var smápolli, ung- lingur, að við ættum vel saman,“ segir Óskar Guðjónsson tónlistar- maður um samstarf sitt og Skúla Sverrissonar. Í dag, föstudag, kemur út ný hljómplata þeirra Óskars og Skúla, The Box Tree. Þetta er önnur plata þeirra, en sú fyrri, Eftir þögn, kom út fyrir áratug og er fyrir löngu orð- in sígild í djassheiminum. Af þessu tilefni flytja þeir tónlist af plötunni í Listasafni Íslands í kvöld. Báðir eru þeir Óskar og Skúli virtir og farsælir tónlistarmenn. Óskar hefur síðustu ár einkum getið sér gott orð með Mezzoforte og ADHD en Skúli hefur til að mynda gefið út plöturnar Sería I og Sería II sem vöktu mikla athygli. Margir hafa beðið eftir að framhald yrði á samstarfi þeirra og er sú bið loks á enda. „Þetta er beint framhald á Eftir þögn-verkefninu. Helsti munurinn er að þá plötu sömdum við báðir, ég átti helming laganna og Skúli helming. Að þessu sinni rann bara á Skúla æði, eða einhver dýrðar- ljómi, og hann var tilbúinn með heila plötu. Það var náttúrlega bara draumur fyrir mig, ég held að ég hafi beðið hann um að fá að endur- taka eina melódíu og því eigum við eitt lag á plötunni saman,“ segir Óskar. Upptökurnar fóru fram í Lang- holtskirkju í október árið 2010 og síðan þá hefur farið fram eftir- vinnsla og undirbúningur fyrir út- gáfuna meðfram öðrum verkefnum. Upptökum á plötunni stjórnaði Orri Jónsson en hann og Ingibjörg Birgisdóttur hönnuðu einnig um- slag plötunnar sem er afar glæsi- legt enda er það í formi landakorts. The Box Tree er fyrsta verk Meng- ishópsins svokallaða og markar upphaf á samstarfi hópsins við Listasafn Íslands. Tónleikar Skúla og Óskars í Listasafni Íslands hefj- ast klukkan 20 í kvöld og kostar þrjú þúsund krónur inn. Hægt verður að kaupa diskinn á staðnum. Óskar lætur vel af Listasafninu sem tónleikastað. „Við höfum verið að æfa þarna og hljómburðurinn er einstakur. Salurinn hentar mjög vel fyrir þá nánu og persónulegu stemningu sem verður á svona tón- leikum.“  Djass Ný plata skúla sverrissoNar og Óskars guðjÓNssoNar Það rann á Skúla æði Tíu árum eftir að þeir Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson sendu frá sér hina eftir- minnilegu djassplötu Eftir þögn leiða þeir saman hesta sína á ný. Óskar segir að þeir eigi einstaklega vel saman á tónlistarsviðinu. Óskar Guðjónsson saxafónleikari og Skúli Sverrisson bassaleikari leiða saman hesta sína á ný á plötunni The Box Tree. Ljósmynd/Hari Höskuldur Daði Magnússon hdm@ frettatiminn.is Rakarinn frá Hellu með tónleika Ómar Diðriksson og Sveitasynir verða með tónleika í Edrúhöllinni í Von Efstaleiti 7 í kvöld klukkan 21. Ómar er einn af frægu rökurunum á Suðurlandi og stendur sína vakt á Hellu. Þeir félagar spila frumsamda alþýðutónlist og í fyrra fengu þeir styrk frá Menningarráði Suðurlands til að ferðast um og kynna sína sunnlensku tóna. Rakarinn á Hellu í miðið á Sveitasonum. Furstar fagna Geir Ólafsson er unglambið í hinum sprell- fjörgu Furstum en meðalaldur sveitar- innar er 60 ár. Hljómsveitin Furstarnir ætlar að halda upp á sextán ára starfsafmæli sitt á Restaurant Reykjavík á föstudags- og laugardagskvöld. Söngfuglinn síkáti, Geir Ólafsson, fer fyrir Furstunum sem hann segir um margt vera merkilega hljómsveit. „Við erum búnir að halda svona tuttugu tónleika á hverju ári í öll þess sextán ár og það er nú svolítið mikið,“ segir Geir sem ætlar sér hvergi að draga af sér um helgina. „Síðan er auð- vitað mjög athyglisvert að meðalaldur bandsins er 60 ár,“ segir unglambið Geir sem hefur haft bæði gagn og gaman að því að syngja með vöskum og þaulvönum mönnum í á annan áratug. „Guðmundur Steingrímsson er trommu- leikarinn okkar og hann er nú kominn á níræðisaldur. Er 83 ára og trommar enn eins og óður maður,“ segir Geir og leggur ríka áherslu á að fjörið hefjist stundvíslega klukkan 20 bæði kvöldin og það borgi sig að mæta snemma til þess að missa nú ekki af neinu. 74 tónlist Helgin 21.-23. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.