Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 6
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Á góðu verði í eldhúsið
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Töfrasproti – Blandari
2.690,-
Kaffivél með Thermo hitakönnu
10-12 bolla, 900w
2.990,-
Djús/ávaxtablandari
með glerkönnu
3.990,-
Blandari og matvinnsluvél
4.990,-
Engar sérreglur fyrir Baldur
Fundir og ráðstefnur
Veislusalurinn er vel tækjum búinn og er því tilvalinn
fyrir hvers kyns ráðstefnur og fundi, stóra sem smáa.
Í salnum er meðal annars hágæða hljóðkerfi, skjávarpi,
flettitafla og púlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf
varðandi veitingar og annað sem huga þarf að.
GLÆSILEGUR VEISLUSALUR!
Náttúruparadís í hjarta borgarinnar
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660
Þ etta er bara rétt að byrja,“ segir María Heimisdóttir, læknir og framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Landspítala, um þá staðreynd að um
helmingi fleiri Íslendingar verði yfir
sextugt árið 2025. Í dag telur þessi
hópur um 55 þúsund manns en mun
hafa fjölgað um ríflega 50% árið 2025 og
verða um 84 þúsund.
Á næstu þrettán árum, til ársins 2025
mun Íslendingum fjölga um 13 prósent,
úr um 319.000 í ca. 361.000 samkvæmt
mannfjöldaspám Hagstofu Íslands, en
vegna þess að fjölgunin er langmest í
elstu aldurshópunum má reikna með að
legudögum á Landspítala þurfi að fjölga
um 33% ef sinna á þessum stóra hópi.
„Endurnýjun á húsnæði spítalans
með nýrri byggingu við Hringbraut er
ein forsenda þess að við getum tryggt
örugga og fullnægjandi þjónustu við
þennan stóra hóp eldri landsmanna til
framtíðar,“ segir María og tekur fram að
þá eigi hún ekki eingöngu við háaldraða
heldur í raun þann hóp sem kominn er
vel yfir miðjan aldur og er því í meiri
hættu á að fá ýmsa sjúkdóma. „Breskar
rannsóknir sýna að sjúkrahúskostnaður
fjórfaldast eftir 65 ára aldur og því verð-
um við að bregðast strax við þróuninni.“
Auk hærri meðalaldurs og lengri líftíma
fólks kallar aukin tíðni langvinnra sjúk-
dóma (svo sem hjartabilunar, stoðkerfis-
sjúkdóma, langvinnra lungnasjúkdóma,
krabbameins, offitu, og fíknisjúkdóma)
einnig á aukin afköst og nýja tækni til
að tryggja framboð á þjónustu.
Bygging nýs spítala er ekki það eina
sem þarf að gera að mati Maríu til að
mæta því þegar aldurinn færist yfir
barnakynslóðina svokölluðu (e. Baby
Boomer Generation – fólk fætt eftir
seinna stríð): „Við verðum að efla sam-
fellu í þjónustu með því til dæmis að
koma á fót rafrænum og samræmdum
sjúkraskrám. Það gengur ekki að ég
fari til heimilislæknis og hann sendi
mig til sérfræðilæknis og svo enda ég
kannski á bráðamóttöku en þar sem
sjúkraskrárnar eru ekki samtengdar
veit enginn þessara aðila almennilega
hvað var skráð eða hefur verið gert hjá
hinum,“ segir María og fullyrðir að ekki
strandi á hennar kollegum heldur þurfi
pólitískan vilja, s.s. fjármagn, til að fara
í þetta verk og klára svo auka megi hag-
ræði og öryggi og velferð sjúklinganna.
María er læknir og sérfræðingur í lýð-
heilsufræðum og hefur ásamt sínu sam-
starfsfólki skoðað sérstaklega þróun í
eftirspurn og kostnaði við sjúkrahús-
þjónustu en sú þróun er ein forsenda
forgangsröðunar og skipulags heil-
brigðismála. „Við megum ekki tefjast
deginum lengur. Við stöndum frammi
fyrir stórum hópi af fólki sem þarf á
þjónustu okkar að halda á næstu árum.
Þetta er fólkið sem borgaði það sem við
höfum í dag. Ef við hefjumst ekki þegar
handa við að endurnýja húsnæði LSH
þannig að unnt verði að taka í notkun
nýja tækni og auka afköst enn frekar þá
munum við eiga mjög erfitt með að anna
þessari miklu aukningu á eftirspurn,“
segir María.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
Guðmundur Friðrik Magnússon
hefur sent kæru til utanríkis-
ráðuneytisins og kærunefndar
jafnréttismála vegna ráðningar
Þróunarsamvinnustofnunar Ís-
lands á starfsnema til Malaví.
Kæran er á grundvelli ákvæða
jafnréttislaga. Guðmundur telur
sig að minnsta kosti jafnhæfan
konunni sem ráðin var, Heiði
M. Björnsdóttur, og að ráðning
hennar sé þannig brot á lögum
um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla.
Guðmundur óskaði eftir rök-
stuðningi frá Þróunarsamvinnu-
stofnun og fékk hann í júlí.
Þar kemur fram að Heiður hafi
staðið öllum öðrum umsækj-
endum framar og sé það byggt á
málefnalegum sjónarmiðum.
„Ég tel vinnubrögðin sem við-
höfð voru við þessa ráðningu
röng og að brotið hafi verið
gegn jafnréttislögum með henni
þar sem mikill meirihluti starfs-
nema hjá Þróunarsamvinnu-
stofnun hafa verið konur,“ segir
Guðmundur. Hann bendir á að
frá árinu 2004 hafi 30 starfs-
nemar verið ráðnir til starfa og
26 þeirra voru konur, eða 87
prósent. „Ég tel að með ráðn-
ingu Heiðar hafi verið gengið
framhjá jafnhæfum eða hæfari
einstaklingi af gagnstæðu kyni.
Mikið hefur hallað á karla í
þessum stöðum og ekki er hægt
að réttlæta slík vinnubrögð með
vísan til þess að færri karlar
hafi sótt um, eins og gert var í
rökstuðningi stofnunarinnar.
Það er deginum ljósara að
ráðningin brýtur í bága við jafn-
réttislög,“ segir Guðmundur.
Fréttaskýring Barnasprengja eFtirstríðsáranna
Barnakynslóðin sprengir
utan af sér sjúkrahúsin
Um helmingi fleiri Íslendingar verða yfir sextugt árið 2025. Í dag telur þessi hópur um 55 þúsund
manns en verður um 84 þúsund. Fyrir Landspítalann þýðir þetta að þar muni fólk ekki geta veitt
þessum hópi fulla þjónustu nema mikið breytist.
María Heimis-
dóttir, læknir og
framkvæmdastjóri
fjármálasviðs
Landspítalans,
segir að við
megum ekki bíða
deginum lengur
með að bregðast
við fjölgun eldri
borgara á Íslandi.
Eins og sést á grafinu fjölgar eldri borgurum mest og það felur sjálfkrafa í sér
að legudögum mun fjölga því þeir eldri eru eðli málsins samkvæmt líklegri til að
leggjast inn á sjúkrahús.
‘68-kynslóðin gæti
verið kröfuharðari
Unnar Stefánsson, formaður
Félags eldri borgara, segir
að læknisframfarir hafi svo
sannarlega verið svo miklar að
fólk sé í dag hraustara og eldra.
Hann segir að til mikils sé unnið
með bættri heimaþjónustu og
finnur fyrir því að hópur hinna
eldri fari ört stækkandi. „Þetta
er samt ekkert áhyggjuefni í
mínum huga. Nema að þessi
svokallaða ‘68-kynslóð verði
mun kröfuharðari en við sem
ólumst upp á stríðsárunum.“
0–9 10–19
20–29 30–39 40–49
50–59 60–69 70–79 80–89 90–99 100 og
eldriAldursbil
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
Mannfjöldi 2011 Mannfjöldi 2025 Legudagar 2011 Legudagar 2025
Aldursdreifing og innlangnir á Landspítala 2011 og 2025
jaFnréttismál karl kærir Fyrir Brot á jaFnréttislögum
Segist að minnsta kosti jafnhæfur
Guðmundur Friðrik Magnússon hefur sent kæru á grundvelli jafnréttis-
laga en hann fékk ekki stöðu starfsnema hjá Þróunarsamvinnustofnun.
„Við förum að lögum og reglum. Við höfum engan áhuga
á öðru,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri spurður um
gang máls Baldurs Guðlaugssonar,
fyrrum ráðuneytisstjóra, hjá fang-
elsisyfirvöldum. „Ég kæmist aldrei
upp með að bjóða upp á sérreglur
fyrir útvalda.“ Baldur er við störf
hjá lögfræðistofunni sem varði
hann fyrir dómi og ætlar með
málið fyrir mannréttindadóm-
stól Evrópu. Hann er vistaður á
Vernd. Í dómi Hæstaréttar var innherjabrot Baldurs talið
stórfellt en hann seldi bréf sín í Landsbankanum fyrir
rúmar 170 milljónir króna eftir að hann vissi um áhyggjur
af stöðu bankans. Milljónirnar voru kyrrsettar 2009 og
gerðar upptækar með dómi Hæstaréttar. - gag
Jón og Gunna
tróna á
toppnum
Þrátt fyrir að nöfnin Aron
eða Emilía hafi verið
vinsælust annað árið í röð
eru karlmannsnafnið Jón
og kvenmannsnafnið Guð-
rún þau sem flestir heita.
Ríflega 5.400 bera nafnið
Jón en 942 nafnið Aron
sem vermir þrítugasta
sætið. Þá heita 4.950 kon-
ur Guðrún en 530 annað
hvort nafnið Emilía eða
Emelía. Það situr í 77. sæti
nafnalistans, samkvæmt
tölum Hagstofunnar.
6 fréttir Helgin 21.-23. september 2012