Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 50
50 matur Helgin 21.-23. september 2012
Þ að þarf rétta olíu, kókosolía og jarðhnetuolía passa best með poppinu. Flest annað setur olíu-bragð í poppið. Smjör brúkum við ekki. Hita
olíuna vel og hella botninn nokkurn veginn fullan.
Passa að engar hrúgur myndist og allur maísinn liggi
á botninum.
Í fyrstu tilraununum er best að nota lítinn pott.
Kannski ekki þann allra minnsta, bara ekki of stóran.
Ef til er lok á pottinn þarf að setja það á. Annars er
gott að festa álpappír yfir pottinn og gera tvö, þrjú
göt á hann og bíða þangað til aksjónin byrjar. Þegar
hún hefst er gott að lækka hitann aðeins og rugga
pottinum fram og til baka á hellunni þannig að ekkert
brenni nú við. Þegar poppið hættir að poppast á fullu
þarf að slökkva undir og bíða eftir að það hætti alveg.
Þá er það saltið. Ekki setja bara hvaða borðsalt sem
er á poppið. Það er of gróft og festist illa við. Það er
hægt að kaupa poppsalt, fínt duft, oft gult á litinn. Það
er líka hægt að búa til poppsalt með því að setja slatta
af góðu grófu salti í matvinnsluvél og bíða eftir því að
það verði að púðri. Einfaldast er að hafa það hreint
en það einnig er hægt að blanda það með hvítlauks-
dufti, chilidufti eða hverju því sem hugurinn girnist.
Ef saltið púðraðist ekki við fyrstu tilraun er gott
að setja það í mortel og mylja það þangað til úr
verður algert duft.
Fyrir þá sem vilja aðeins meiri fitu í líf sitt
er um að gera að bræða smér í potti og löðra
kornið upp úr því að hætti Kanans.
Matur HeiMalagað poppkorn
Kósíkvöld
Krakkarnir eru
sofnaðir og spóla
komin í tækið. Hvað
er þá best að narta
í? Svarið er auðvitað
popp og nú er tími
kominn til að sleppa
örbylgjustöffinu og
læra að poppa popp
með gamla stílnum.
Vegna þess að það
er betra, hollara og
eftir smá undirbúning
tekur það ekki lengri
tíma en í örbylgju-
ofninum.
Það er fátt betra en
mátulega saltað,
volgt, heimalagað
popp til að hafa á
kósíkvöldinu.
Hámarks skammtur
Ef þörf er fyrir stærri skammta og færn-
in er orðin sæmileg er tími til kominn
að stækka pottinn. Ekki er þörf á því
að rjúka í stærsta súpupottinn heldur
því hinn fullkomni popp-pottur er ekki
einu sinni pottur heldur Wokpanna.
Rafeldavélawokpanna til að vera
nákvæmur, þessi með slétta botninum.
Hún er nálægt því að vera fullkomin
vegna þess að poppið situr ekki allt ofan
á hitanum heldur dreifist til hliðanna og
brennur því síður. Þessar pönnur fást þó
sjaldan með loki og því þarf álpappír til að
loka. Jafnvel tvær umferðir.