Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.09.2012, Page 4

Fréttatíminn - 21.09.2012, Page 4
OYSTER PERPETUAL DATEJUST Michelsen_255x50_C_0612.indd 1 01.06.12 07:21 Gasgrill frá 12.900 Aukahlutir 30% afsl Garðhúsgögn 30% afsl Opið virka daga til kl. 18 og laugardag til kl. 14Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Suðlæg átt, með rigningu Sunnan og veStantil en þurrt annarS Staðar. HöfuðborgarSvæðið: Suðlæg átt, Skýjað og rigning. Fremur milt. SuðauStlæg átt rigningu um meSt allt land, en þurrt norðauStantil. HöfuðborgarSvæði : SuðauStanátt og rigning. áFram Fremur milt. SuðauStanátt og rigning einkum Sunnan og auStan- til. dálitlar Skúrir nv-til annarS yfirleitt þurrt. HöfuðborgarSvæðið: SuðauStlæg átt, Skýjað og dálítil úrkoma. vætusamt um allt land Sunnan og suðaustanáttir verða viðloðandi alla helgina með rigningu, einkum um sunnanvert landið. á föstudag má helst búast við rigningu og súld um sunnan og vestanvert landið, en þurru veðrið eystra. á laugardag fer einnig að rigna fyrir austan en áfram verður þurrt um norðanvert landið, þó einhverjar skúrir kunni að falla norðvestantil og úrkoman minnkar suðvestantil. á sunnudag má svo búast við svipuðu veðri. Það verður milt í flestum lands- hlutum og hiti 5-10 sig yfir daginn. 8 6 6 7 8 8 10 10 9 8 8 10 9 10 8 elín björk Jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is n orsk listakona, Annine Birkeland, lánaði Sig­urjóni Einarssyni háar fjárhæðir árið 2004 og hefur einungis fengið greitt að hluta til baka. Fréttatíminn sagði frá því í síðustu viku að bresk kona á sextugsaldri, Lindsey Andrews, hefði í höndunum skjöl sem sýndu fram á 20 milljón króna lán til Sigurjóns árið 2009 sem hún hefur ekki fengið endur­ greitt þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Sig­ urjón vísaði ásökunum hennar á bug. Í kjölfarið bárust Fréttatímanum upp­ lýsingar um aðra konu, Annine Birke­ land, sem hefði lánað Sigurjóni peninga. Árið 2004 vann Sigurjón undir stjórn Annine við verkefni tengt listum og menningu. Hann þurfti að fara til New York vegna þessa verkefnis en skömmu áður en hann átti að fara sagðist hann ekki geta farið nema hún lánaði honum peninga, segir Annine. „Hann sagðist þurfa að bjarga húsinu sínu og konu sinni og börnum og að hann kæmist því ekki til New York nema ég lánaði honum peninga,“ segir Annine. Um var að ræða rúmlega eina milljón norskra króna, sem samsvarar 22 milljónum íslenskra króna á núgildi. „Eins bjánalegt og það hljómar, þá lánaði ég honum peningana,“ segir Annine. Hún segist hafa treyst honum því hann hafi sýnt það í vinnu að honum væri treystandi. Einnig hafi hann verið á góðum launum og því hafi ekki hvarflað að sér að hann gæti átt í fjárhagsvand­ ræðum. „Ég trúði því sem hann sagði, að hann þyrfti á þessum peningum að halda í eina viku á meðan hann væri að færa húsnæðislán sitt milli banka,“ segir hún. Annine hafði lent í hjólreiðaslysi og fékk bætur vegna þess. Hún segir að Sigurjón hafi vitað af bótunum. „Ég á ekki peninga, ég er listamaður. Þetta er í raun mannlegur harmleikur. Ég þurfti að selja bílinn minn og grípa til ýmissa ráðstafana vegna þessa,“ segir hún. Hún fór að krefja hann um endur­ greiðslu á láninu fljótlega eftir að hann kom frá New York. „Ég hef verið mjög aðgangshörð við hann og hann hefur greitt til baka 600 þúsund norskar krónur [um 13,2 milljónir íslenskar krónur]. Hann skuldar mér ennþá 400 þúsund [8,8 milljónir] en ég veit að ég fæ það aldrei greitt,“ segir Annine. „Ég hef ákveðið að gleyma þessu, ég verð að gera það til að geta haldið áfram að lifa mínu lífi,“ segir Annine. Að sögn Annine fékkst Sigurjón ekki til að skrifa undir skuldaviðurkenningu fyrir láninu öllu. „Lögmaðurinn sem var að vinna með okkur í þessu verk­ efni reyndi að láta hann skrifa undir. Sigurjón skrifaði síðar undir að hann skuldaði mér 600 þúsund norskar krón­ ur, þá hafði hann greitt mér til baka 400 þúsund,“ segir hún. Hún segist vera með pappíra sem sýna fram á að lánið var rúmlega milljón norskra króna. „Hann hringir ennþá í mig öðru hvoru. Hann er alltaf að reyna að halda mér sem vini og kemur með ótal afsak­ anir fyrir því að geta ekki greitt mér til baka,“ segir Annine. Sigríður dögg auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is  lán tvær erlendar konur segja Farir sínar ekki sléttar eFtir viðskipti við íslenskan karlmann Önnur kona stígur fram norsk kona hefur stigið fram og sagt frá láni til Sigurjóns einarssonar, sem samsvarar 22 milljónum íslenskra króna að núvirði. Hún segir hann einungis hafa greitt lánið að hluta til baka. Hún treysti honum og lánaði góðri trú. eftir að hafa gengið hart að honum í mörg ár skuldar hann, að sögn konunnar, enn tæpar 9 milljónir króna. Bresk kona greindi frá því í síðustu viku að hún hefði ekki fengið 20 miljón króna lán til Sigurjóns endurgreitt, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Sigurjón segir fullyrðingar norsku konunnar ekki standast. Sigurjón einarsson segir fullyrðingar annine ekki standast. „Ég fékk fyrirframgreitt fyrir vinnu mína,“ segir Sigurjón. „Bókhaldið þeirra [fyrirtækis annine] passaði ekki seinna þannig að ég borgaði til baka. Ég fékk 700 þúsund fyrirfram, ég borgaði 600 þúsund til baka. restin voru laun. Ég á pappíra til að sýna fram á það,“ segir hann. „Ég skulda henni ekki neitt.“ annine birkeland segist hafa lánað Sigurjóni 22 milljónir íslenskra króna en eigi enn eftir að fá endurgreiddar tæpar 9. 4 fréttir Helgin 21.-23. september 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.