Fréttatíminn - 21.09.2012, Síða 8
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Tækifæri
16.900
7.900
Ryksuga VS 59E20
Tækifærisverð:
kr. stgr.
(Fullt verð: 24.900 kr.)
Sími AS510
Tækifærisverð:
kr. stgr.
(Fullt verð: 9.268 kr.)
VERTU VINUR
Á FACEBOOK
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið
yfirhaf
nir
á laxda
l.iS
Vandaðar
haustyfirhafnir
dúnúlpur - Vattjakkar - ullarkápur
Hraðvirkt bólgueyðandi verkjalyf
ibuxin rapid
fæst án lyfseðils í apótekum
ibuprofen
Notkunarsvið: ibuxin rapid inniheldur ibuprofen sem er lyf sem dregur úr verkjum og hita (flokkur:
bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki er steri). ibuxin rapid er notað við vægum til miðlungi miklum verkjum,
svo sem höfuðverk, tannverk, tíðaverk, bráðum mígrenihöfuðverk, hita og verkjum vegna kvefs. Ekki má
nota ibuxin rapid: Ef þú ert með ofnæmi fyrir ibuprofeni eða einhverju öðru innihaldsefni ibuxin rapid. Ef
þú hefur fundið fyrir mæði, astma, nefrennsli, þrota eða ofsakláða eftir notkun acetylsalicylsýru eða
annarra bólgueyðandi gigtarlya sem ekki eru sterar (NSAID). Ef þú ert með óútskýrða blóðmyndunar-
truflun. Ef þú ert með eða hefur haft endurtekin sár (ætisár) eða blæðingu í maga/skeifugörn. Ef þú hefur
fengið blæðingu eða rof í meltingarvegi við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyum (NSAID). Ef þú
ert með blæðingu í heilaæðum eða aðra virka blæðingu. Ef þú ert með alvarlega skerðingu á lifrar- eða
nýrnastarfsemi. Á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Ef þú ert með kransæðasjúkdóm eða alvarlega
hjartabilun. Ef þú þjáist af verulegri ofþornun. Gæta skal sérstakrar varúðar við notkun ibuxin rapid:
Ef þú ert með arfgengan blóðmyndunarsjúkdóm (bráða porfýríu með hléum). Ef þú ert með ákveðna
sjálfsnæmissjúkdóma (rauða úlfa og blandaðan bandvefssjúkdóm). Ef þú ert með sjúkdóma í
meltingarfærum eða langvinna bólgusjúkdóma í þörmum (sáraristilbólgu, Crohn´s sjúkdóm). Ef þú ert
með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi. Ef þú þjáist af ofþornun. Ef þú ert með eða hefur haft háþrýsting eða
hjartabilun. Ef þú ert með ofnæmi (t.d. húðviðbrögð við öðrum lyum, astma, ofnæmiskvef ), langvarandi
þrota í slímhúðum eða langvarandi teppusjúkdóm í öndunarfærum. Ef þú ert með storkutruflun í blóði.
Strax eftir stórar skurðaðgerðir. Meðganga og brjóstagjöf: Þú mátt aðeins nota ibuxin rapid á fyrstu 6
mánuðum meðgöngu eftir að hafa ráðfært þig við lækninn. Ekki má nota ibuxin rapid síðustu 3 mánuði
meðgöngu. Yfirleitt er ekki nauðsynlegt að gera hlé á brjóstagjöf við skammtíma notkun í ráðlögðum
skömmtum. Algengustu aukaverkanir: Sár, rof eða blæðing í meltingarvegi, stundum lífshættuleg,
einkum hjá öldruðum, geta komið fram. Ógleði, uppköst, niðurgangur, vindgangur, hægðatregða,
meltingartruflanir, kviðverkur, sortusaur, blóðuppköst, sáramunnbólga, versnun ristilbólgu og Crohn´s
sjúkdóms hafa komið fram. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar yfir 40 kg: 200 mg – 400 mg
skammtar, að hámarki 1.200 mg á sólarhring. Börn og unglingar: Hámarksskammtur af ibuprofeni á dag
er 30 mg á hvert kg líkamsþyngdar, skipt niður í 3 til 4 staka skammta. 20-29 kg: 200 mg skammtar, að
hámarki 600 mg á sólarhring. 30-39 kg: 200 mg skammtar, að hámarki 800 mg á sólarhring. Ekki skulu líða
minna en 6 klst. á milli skammta. ibuxin rapid skal aðeins nota hjá börnum sem eru a.m.k. 20 kg að
þyngd. Lesið vandlega leiðbeiningar í fylgiseðli sem fylgir lynu. Júlí 2012.
HÖFUÐVERKUR - TANNVERKUR - TÍÐAVERKUR - MÍGRENI - HITI
Ný hjólaþrautabraut við
Nauthólsveg í Öskjuhlíð
Ný hjólaþrautabraut hefur verið opnuð í
Öskjuhlíð. Um er að ræða „pumpu-braut“
(„Pump Track“) sem farin er með sérstakri
tækni og notuð til þjálfunar og leikja. Félagar
í hjólreiðafélaginu Tindi eiga heiðurinn af
lagningu brautarinnar og hafa unnið hana í
samvinnu við Reykjavíkurborg sem leggur til
svæðið. Brautin er við Nauthólsveg norðan við
Háskólann í Reykjavík. Fyrirmyndin er erlend
en útfærð af félögum í Tindi. Hjólreiðafélagið
Tindur var stofnað í febrúar 2011 með það að
markmiði að fjölga þátttakendum í keppnis-
hjólreiðum á Íslandi, sem og þeim greinum
sem stundaðar eru hvort heldur það eru
samgönguhjólreiðar, keppnishjólreiðar eða
hjólreiðar til skemmtunar. Tindur er íþróttafé-
lag innan ÍSÍ og stendur öllum opið. -jh
Uppáhellibar á nýju kaffihúsi
Te & Kaffi opnaði í vikunni
nýtt kaffihús að Aðal-
stræti 9 við Fógetagarð.
Þetta er níunda kaffihús
fyrirtækisins. Það hefur
sérstöðu því þar verður
uppáhellibar þar sem við-
skiptavinir geta valið kaffi
sem er sér uppáhellt fyrir
hvern og einn. Þar er einnig
hægt að rista kaffitegundir
í ofni. Einnig er þar kaffivél
sem er eins og notuð er á
heimsmeistarmóti kaffibarþjóna og auk þess gömul espresso vél sem notast við yfir
100 ára gamla aðferð við að laga espresso. „Þetta er sama aðferð og Ítalirnir notuðu
þegar þeir fundu upp hinn himneska espresso drykk,“ segir Halldór Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Te & Kaffi. „Við ætlum,“ segir hann, „að bjóða upp á námskeið
fyrir einstaklinga og hópa sem vilja læra meira um kaffi og kaffigerð.“ - jh
Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri.
F oreldrar barna með greiningar á borð við einhverfu eru margir hverjir ósátt-ir við þann litla sveigjanleika sem ís-
lenskt skólakerfi býður upp á með stefnu
sinni, skóli án aðgreiningar. Í lögum um
grunnskóla frá 2008 kemur fram að nem-
endur eigi rétt á að komið sé til móts við
námsþarfir þeirra í almennum grunnskóla
án aðgreiningar og án tillits til líkamlegs
eða andlegs atgervis. Í kjölfar nýju grunn-
skólalaganna voru inntökuskilyrði í sérskóla
hert enda miðast stefna stjórnvalda við að
börnum með sérþarfir sé sinnt í almennum
grunnskólum. Við þetta eru ekki allir for-
eldrar barna með sérþarfir sáttir.
„Skóli án aðgreiningar hentar ekki öllum
börnum,“ segir Þorgerður Jörundsdóttir
foreldri. Hún segir að stefnan eigi vissulega
rétt á sér enda sé ekki vilji til að ýta börn-
um út úr almennum skólum sem geta verið
þar og það reynist best fyrir þeirra þroska.
„Við þurfum hins vegar líka sveigjanlegri
leið,“ segir Þorgerður.
Hún vill að foreldrar hafi val fyrir hönd
barna sinna, ýmist hvort þau geti gengið
í sérskóla fyrir þau börn sem þurfa á því
að halda vegna fötlunar sinnar. „Svo má
líka vera til sveigjanlegri leið, eins konar
millibil, þar sem boðið er upp á sérdeildir í
skólum þar sem þátttaka inn í bekk er hluti
af degi barnanna,“ segir hún.
„Skóli án aðgreiningar þarf að brúa ansi
breitt bil,“ segir Þorgerður. „Það er svo
misjafnt við hvað börnin eru að glíma. Við
erum að tala um allt frá einhverfum börn-
um með hegðunarraskanir en góða greind
upp í börn með greindarskerðingu og aðrar
fatlanir,“ segir hún.
„Ef hér á að vera skóli án aðgreiningar
viljum við kennara sem taka þessum börn-
um fagnandi og líta ekki á þau sem byrði á
skólanum. Kennarar verða að geta horft á
þessi börn og séð hvað í þeim býr. Það er
líka akkur fyrir skólana að hafa þau,“ segir
Þorgerður.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Skólamál Skóli án aðgreiningar hentar ekki öllum börnum
Foreldrar vilja val
Skóli án að-
greiningar
þarf að brúa
ansi breitt bil,
að mati for-
eldra, og lítill
sveigjanleiki
er í íslensku
skólakerfi. For-
eldrar vilja val
fyrir börnin sín
og hafa þann
möguleika að
setja þau í sér-
skóla, henti það
þeim betur.
Skóli án að-
greiningar
hentar ekki
öllum börn-
um með
þroskarask-
anir, að
mati Þor-
gerðar Jör-
undsdóttur.
Ljósmynd/
Nordic Photos
Getty Images
8 fréttir Helgin 21.-23. september 2012