Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
E Ekki er hægt að komast að afdráttarlausri nið-urstöðu um hvort hagkvæmara sé fyrir ríki að halda eigin gjaldmiðli eða gerast aðili að stærra myntsvæði. Stundum geta komið svo alvarleg efnahagsáföll að auðveldara verður
að eiga við þau með sveigjanlegu gengi. Á
öðrum tímum getur sveigjanlegt gengi hins
vegar beinlínis aukið á efnahagslegan óstöð-
ugleika, auk þess sem eigin gjaldmiðill getur
virkað sem viðskiptahindrun
og þannig dregið úr efnahags-
legri velsæld. Það er því ekki
til það gengisfyrirkomulag
sem hentar öllum ríkjum á öll-
um tímum.
Þetta er meðal þess sem
fram kemur í nýrri skýrslu
Seðlabanka Íslands um val-
kosti Íslands í gjaldmiðils- og
gengismálum. Helsta niður-
staða bankans er sú að Íslend-
ingar standi í meginatriðum
frammi fyrir tveimur kostum, endurbættri
krónu eða upptöku evru. Í skýrslunni eru
raktir kostir og gallar þessara tveggja kosta.
Með upptöku evru gæti landsframleiðsla auk-
ist og peningakerfið orðið skilvirkara og ódýr-
ara. Áhætta í bankastarfsemi myndi minnka
og neytendur fengju aðgang að stórum mark-
aði. Aðild að evrusvæðinu myndi hins vegar
fylgja áhætta fyrir Ísland. Ekki yrði lengur
hægt að beita sjálfstæðri peningastefnu til
að draga úr áföllum. Þá bendir bankinn á þá
áhættu sem felst í núverandi kreppu á evr-
usvæðinu en að mati Seðlabankans er áhættu-
samt fyrir Ísland að gerast aðili að evrusvæð-
inu áður en sést hvernig úr rætist. Þar er bent
á að ríkisskuldakreppan sem kom í kjölfar
fjármálakreppunnar hafi leitt til nýrrar efna-
hagskreppu í mörgum evruríkjum „sem hefur
umbreyst í alvarlegustu kreppu myntbanda-
lagsins frá upphafi, kreppu sem gæti jafnvel
ógnað tilvist þess,“ eins og segir í skýrslu
Seðlabankans. Í henni kemur enn fremur
fram að íslensk hagsveifla sé í takmörkuðum
tengslum við hagsveiflur annarra ríkja, það
með talin ríki evrusvæðisins. Reynsla Íslend-
inga af eigin peningastefnu og sveigjanlegu
gengi undanfarin ár er hins vegar ekki góð,
að mati bankans.
Svar við því hvort velja beri krónu eða evru
er ekki einhlítt en með mati á kostum og göll-
um, og ekki síst ef tekið er mið af þeirri óvissu
sem nú ríkir á evrusvæðinu verður að áætla
að minni áhætta sé tekin með því að halda því
kerfi sem við þekkjum – og reyna af fremsta
megni að bæta það – fremur en halda á óvissar
slóðir. Við þurfum, eins og Steingrímur J. Sig-
fússon atvinnuvegaráðherra orðaði það í um-
ræðum um skýrslu Seðlabankans á Alþingi,
að taka til á heimavelli og „koma húsinu í lag“.
Menn verða einnig að vera raunsæir í skoð-
un þessa máls. Þrátt fyrir aðildarumsókn Ís-
lands að Evrópusambandinu verður ekki séð
að pólitískur meirihluti sé í raun fyrir þeirri
umsókn eða meirihlutastuðningur við hana
á þingi. Annar stjórnarflokkurinn er meira
að segja á móti aðild að sambandinu og sama
andstaða er meðal stóru stjórnarandstöðu-
flokkanna. Skoðanakannanir síðustu miss-
era benda einnig til þess að umtalsverður
meirihluti þjóðarinnar muni hafna aðild að
Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Erfiðustu kaflarnir í viðræðum okkar við sam-
bandið, um sjávarútveg og landbúnað, hafa
ekki verið opnaðir og verða varla á þessu kjör-
tímabili. Framhald viðræðnanna er því vafa
undirorpið.
Eðlilegast er því, við þessar aðstæður, að
menn taki til heima hjá sér, beiti þeim aga
í ríkisfjármálum sem nauðsynlegur er fyrir
stöðugleika krónunnar og hætti að tala hana
niður. Krónan er, að mati Seðlabankans, skýr
valkostur, og eins og Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, bendir á í kjöl-
far skýrslu Seðlabankans, eru það aðrir þætt-
ir en gjaldmiðillinn sjálfur sem ráða úrslitum
um efnahagslega velgengni ríkja. Hann bend-
ir einnig á þá augljósu staðreynd, að tímabært
er að við einblínum á þá þætti sem renna stoð-
um undir krónuna sem gjaldmiðil, vegna þess
að um leið eru það þær aðgerðir sem geta til
lengri tíma tryggt að við höfum einhverja val-
kosti, vilji menn hafa þá í framtíðinni.
Skýrsla Seðlabanka Íslands um valkosti í gjaldmiðilsmálum
Raunsæi ráði
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Í skammarkrókinn
Ég vil hafa kurteist fólk á Alþingi, fólk
sem kann íslensku til dæmis.
Sighvatur Björgvinsson, fyrr-
um þingmaður og ráðherra,
hefur nokkrar áhyggjur af
mannasiðum þingmanna og
skaut fast á framsóknarþing-
konuna Vigdísi Hauksdóttur í
Silfri Egils.
Þú og þeir
Mér var ekki einu sinni
boðið á myndina.
Engilbert Jensen er
vægast sagt óhress
með notkun gamla
Hljóma-lagsins Þú og ég
í kvikmyndinni Svartur á leik og hefur
leitað réttar síns þar sem ekki var beðið
um leyfi til að nota lagið.
Eimreiðin brunar
Reglubræðurnir eru mættir
til leiks og það kæmi mér
ekki á óvart að það ætti
eftir að fjölga í hópnum.
Björn Valur Gíslason, þingmaður
Vinstri grænna furðar sig á því að
ráðu neytisstjórinn fyrrverandi Baldur
Guðlaugsson sé kominn til starfa á LEX.
Vanir menn
Já, já, alveg absalútt og
hann nýtist okkur helling.
Við erum bara kátir með
þetta.
Örn Gunnarsson, faglegur
framkvæmdastjóri LEX
lögmannsstofu, er ekki jafn
hissa og Björn Valur Gíslason á störfum
Baldurs Guðlaugssonar fyrir LEX. Hann
lýsti ánægju sinni með ráðninguna í
samtali við DV.
Allt ál er vænt...
Ál er grænn málmur. Hann er að spara
losun gróðurhúsaloft-
tegunda.
Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, var í góðum
gír í útvarpsþættinum
Harmageddon en tókst að
stuða náttúruvæna græningja á vinstri
vængnum.
Tökum höndum saman!
Markmiðið ætti að vera að útrýma því,
svo einn góðan veðurdag verði
hugmyndin um kvennaathvarf
jafn fjarstæðukennd og hug-
myndin um hommaathvarf
eða útlendingaathvarf.
Þórdís Elva Þorvalds-
dóttir, stjórnar formaður
Kvennaathvarfsins, benti á
að þörf fyrir kvennaathvarf er
tímaskekkja og vill ráðast að rótinni,
kynbundnu ofbeldi.
Andvaka í ár
Ég missti úr svefn og var
að drepast úr stressi
fyrst eftir að ég fékk
stefnuna.
Teiti Atlasyni bloggara
var létt eftir að meið-
yrðamáli Gunnlaugs
Sigmundssonar gegn honum
var vísað frá og getur nú slakað á.
Vikan sEm Var
„Ég þakka heiðurinn,“ segir Elsa B. Friðfinns-
dóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, sem er maður vikunnar að þessu
sinni. Elsa hefur staðið í ströngu að undanförnu
og hún vonar að umræðan sem fylgdi í kjölfar
boðaðrar launahækkunar forstjóra Landspítal-
ans muni leiða til þess að stjórnvöld og stjór-
nendur spítalans og annars staðar í heilbrigðis-
kerfinu meti árangur frekar út frá gæðum
þjónustunnar og öryggi sjúklinga, í stað þess að
horfa eingöngu á hversu vel hefur tekist til við
niðurskurð í kerfinu. „Ég vona einnig að um-
ræðan opni augu manna fyrir verðmæti
starfa í heilbrigðiskerfinu og nauðsyn
þess að halda í allt það vel menntaða og
eftirsótta fólk sem við eigum.“
MaðuR vikunnaR
Verðmætin liggja í fólkinu
Elsa B.
Friðfinnsdóttir.
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
12 viðhorf Helgin 21.-23. september 2012