Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.09.2012, Side 24

Fréttatíminn - 21.09.2012, Side 24
D júpið fjallar, eins og alþjóð veit, um ótrúlega þrek- raun Guðlaugs Friðþórs- sonar sem synti í land um sex kílómetra leið í ís- köldum sjónum við Vestmannaeyjar eftir að bátur hans, Hellisey, sökk austur af Stórhöfða árið 1984. „Ég tók myndina upp fyrir nánast tveimur árum og hún er eiginlega búin að vera í stöðugri vinnslu síðan þá. Auð- vitað í ákveðnum lotum,“ segir Baltasar. „Ég var nú bara síðast að breyta klipp- inu á henni á meðan ég var í tökum á 2 Guns. Þá sátum við bara um helgar og vorum að skoða þetta saman,“ segir leik- stjórinn og lítur á eiginkonu sína. „Fyrir mynd eins og þessa er mikil- vægt að gefa sér góðan tíma, því um- fjöllunarefnið er mjög viðkvæmt. Það er búið að liggja yfir henni í smáatriðum og allir sem að henni hafa komið hafa vandað sig gríðarlega,“ segir Lilja sem kemur jafnan af fullum krafti inn í eftir- vinnslu mynda Baltasars. „Fyrir mynd eins og þessa er rosalega gott að geta gefið sér góðan tíma.“ „Það gerir vinnsluna að ákveðnu leyti kostnaðarsamari en mér finnst þetta hafa gefist mjög vel með Djúpið. Mér er mjög annt um þetta efni og ég vildi vinna þetta og skila af mér eftir bestu getu. Mér fannst mjög gott að koma aftur að myndinni og þá sá alveg hverju þyrfti að breyta og laga. Þetta voru töluverðar breytingar sem ég held að hafi allar verið af hinu góða. Þótt sagan sé svona skýr þá er alveg hægt að fara með hana út um víðan völl en mig langaði ein- hvern veginn að halda henni ofboðslega einfaldri og fókusaðri vegna þess að hún er svo kraftmikil. Hún þarf ekkert auka drama og ég vildi leyfa henni bara að lifa á svolítið einfaldan hátt.“ Goðsöguleg píslarganga Reyndir sjómenn sem hafa séð Djúpið hafa hrósað myndinni fyrir hversu raunveruleg hún er og Baltasar treysti ekki á tölvubrellur þegar hann filmaði Langir Smugutúrar til Hollywood Baltasar Kormákur frumsýnir kvikmynd sína Djúpið í dag, föstudag. Hann er búinn að taka upp tvær Hollywood- myndir frá því hann kláraði tökur á Djúpinu en segist vera búinn að nostra við hana þessi tæpu tvö ár sem liðin eru. Lilja Pálmadóttir, eiginkona hans og einn framleiðenda Djúpsins, segir það algeran lúxus að geta eytt svona miklum tíma í eftirvinnsluna og að búið sé að pússa myndina og „nudda fram og til baka.“ Lilja og Baltasar ræða hér um Djúpið, ástríðuna í íslenskri kvikmyndagerð, hasarinn í Hollywood og villta gæðinginn Denzel Washington. sjóslysið. Hann sökkti bát með mann- skap innan borðs og Ólafur Darri, sem leikur aðalpersónuna, mátti láta sig hafa að busla í sjónum og berjast við að halda jafnvægi í brimsköflunum. „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert en það er svo fáránlegt að tala um það þegar þú berð þetta saman við hið eigin- lega afrek,“ segir Baltasar og Lilja tekur undir. „Það verður frekar hjákátlegt að út- tala sig um hversu erfitt var að taka þetta upp,“ segir hún og bætir við að slíkt tal verði mjög hjáróma þegar hin raunveru- lega mannraun sé höfð í huga. „Vissulega verður það dálítið hjáróma,“ segir Baltasar. „En þarna er samt nánast verið að gera hið ómögulega. Og ég ætla nú bara að leyfa mér að raupa af því að ég veit ekki til þess að sjóslys hafi verið kvik- myndað svona áður í bíómynd. Ég hef í það minnsta ekki séð þetta gert svona.“ Auðmjúkur gagnvart mætti hafsins Baltasar nefnir sjóslysamyndina Perfect Storm til sögunnar. „Þar var þetta mikið Það eru líka ekki allir jafn bilaðir og þú. Það er bara þannig. Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur eiga sitt griðland og heimili í Skagafirðinum þar sem þau njóta lífsins og slaka á þegar stundir gefast milli stríða frá hasarnum í Hollywood. Ljósm: Hari 24 viðtal Helgin 21.-23. september 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.