Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 21.09.2012, Blaðsíða 26
og þótt þetta sé að einhverju leyti klisja – að fólk hugsi til baka – þá er þetta bara sannleikurinn. Lífið rennur í gegnum huga þér á þessum stundum. Þetta er líka svo mögnuð pæling í þessari mynd- líkingu um Ísland. Landið gerir allt til þess að ganga frá þér. Fyrst gýs yfir þorpið og það fer hálft undir hraun og hinn helmingurinn undir vikur. Eyjamenn koma svo og moka sig út úr þessu en síðan ræðst sjórinn á hann og reynir að drepa hann en hann syndir í land og gengur svo yfir hraunið sem reyndi að drepa hann fyrir tíu árum. Og hvað gerirðu? Þú ferð aftur heim. Það er mjög magnað hvernig þetta spilar allt saman í þjóðarsálinni. Margir Eyjamenn komu ekki aftur heim eftir gos og í myndinni hefur lítill strákur eftir föður sínum að þeir sem fóru séu aumingjar sem fóru til Reykjavíkur. Þetta er ekki bara hugsunar- háttur sem einkennir Vestmanna- eyinga heldur Íslendinga sem þjóð. Þeir sem fóru burtu í hruninu eru aumingjar. Þetta er mjög viðtekin pæling. Ég er ekkert að segja að það sé rétt eða rangt. Þetta er bara áhugavert og ég er ekkert að reyna að predika en ég tengi við þetta. Ameríkanar tengja við fólk í skikkj- um að fljúga sem hetjur. Ég tengi við þennan dreng sem vinnur þetta afrek og er einhvers konar hetja. Með því að tengja við þessa sögu þá getum við speglað okkur sjálf í henni eins og við speglum okkur í Íslendingasögunum til dæmis. Og það er heilbrigðara en að spegla sig í áliti útlendinga á okkur. Það var eitthvað sem dró mig að því að gera þetta á þessum tíma,“ segir Baltasar sem réðist í gerð Djúpsins eftir hrun. Hollywood var ekki takmarkið Lilja og Baltasar búa norður í Skagafirði en eru eðli málsins sam- kvæmt á miklum þeytingi sem hefur síst minnkað eftir að Balt- asar haslaði sér völl í Hollywood. Hof er griðastaður þeirra þar sem þau sinna börnum á ýmsum aldri og auðvitað hestunum sem skipa stóran sess í lífi þeirra. Baltasar klippir oftast myndir sínar að ein- hverju leyti á Hofi og fór þannig með stórmynd sína Contraband frá Hollywood í klipp- ingu í Skagafjörðinn. En hvað finnst stórlöxunum í Hollywood um að leikstjór- inn láti sig hverfa í íslenska sveit í eftirvinnslu? „Þeir ná þessu ekki alveg,“ segir Baltasar en Lilja bætir um betur: „Þeir ná þessu ekki. Það er ekki séns.“ Baltasar brosir: „Þeim finnst þetta samt svolítið magnað.“ Og Lilja hlær: „Þeim finnst þetta bara skrítið. Þeir botna ekkert í þessu.“ Það er því deginum ljósara að Íslendingurinn þykir nokkuð kyn- legur kvistur í höfuðborg kvik- myndaiðnaðarins. „Mark Wahlberg sagði við mig þegar ég var að leika í Listaverkinu að ef ég skyldi ekki hafa orðið var við það þá vildi hann bara benda mér á að ég væri orðinn stór Hollywood-leikstjóri þannig að hann fattaði ekki alveg hvað ég væri að gera uppi á einhverju sviði á Íslandi,“ segir Baltasar sem hefur engin áform um að slíta ræturnar. „Ég get bara ekkert að þessu gert. Ef við horfum á þetta eins og þetta er þá gerði ég ekki íslenskar myndir til þess að komast að í Hollywood. Þetta var ekki stökk- pallur þangað þannig að þótt mér hafi boðist verkefni upp úr þessu öllu þá hefur það ekkert með það að gera að mig langi ekki til þess að gera íslenskar bíómyndir. Mér finnst ég ekkert vera búinn með þetta og sé kominn á annan stað. Ég held að margir hugsi það þannig. Að nú sé ég bara farinn til Ekki hægt að sleppa Ólafi Darra Ólafur Darri Ólafsson er frábær í aðal- hlutverkinu í Djúpinu þar sem hann leikur sjómanninn Gulla. Í raun standa allir leikarar sig með stakri prýði en Baltasar segist hafa gætt sín á því að fylla ekki myndina af stjörnum. „Ólafur Darri lá náttúrlega beint við en ég hugleiddi aðra leikara en það var ekkert hægt að komast fram hjá honum. Hann er eins og fæddur í þetta hlutverk, sem er risahlutverk fyrir mann af hans kaliberi, og það var ekki hægt að láta hann ekki leika þetta. Það var bara ekki réttlætanlegt. Guðlaugur var aðeins yngri en Darri þegar sjóslysið varð en við gátum ekki verið að velta okkur upp úr aldrinum nákvæmlega. Strákarnir í áhöfninni voru einhverjir yngri í raunveruleik- anum en mér finnst þetta vera meira um íslenska sjómenn í heild þannig að ég vildi lýsa nokkrum manngerðum sem eru nokkuð dæmigerðar fyrir ýmsar gerðir íslenskra sjómanna.“ Hollywood. En það er ekki þannig. Ég er að þróa verkefni hérna, kaupa bækur og skoða ýmislegt sem ég hef áhuga á að gera.“ Baltasar stofnaði nýlega fram- leiðslufyrirtæki á Íslandi og stefnir að því að gera sakamálaþætti ásamt Magnúsi Viðari Sigurðssyni og Sigurjóni Kjartanssyni. Þá hefur hann tryggt sér kvikmyndarétt- inn á Sjálfstæðu fólki og Gerplu eftir Laxness. Og síðan hefur hann ekki gleymt Grafarþögn, framhaldi Mýrarinnar sem hann hefur lengi haft hug á að gera. „Mig langar rosalega að gera Grafarþögn. Ég var búinn að fjármagna hana en það hefur gengið illa að finna rétta tækifærið til að ná öllum saman og klára dæmið. Án þess að ég vilji hljóma eitthvað væminn þá er ég að Ólafur Darri sýnir stórleik í Djúpinu. reyna að nota þessi tengsl mín úti og setja fjármagn í þennan bransa hérna heima. Ég vil halda áfram að fjárfesta og framleiða hérna.“ Baltasar segist ekki sjá neitt nema jákvætt við þann árangur sem hann hefur náð ytra. „Það er alveg hægt að taka afbrýðisemina á þetta en ég held að þetta sé allt af hinu góða og geti gagnast fleiri. Maður finnur alveg að þetta opnar möguleika. Það hefur til dæmis aldrei komið leikstjóri frá Fær- eyjum sem hefur náð í gegn en ef einn slíkur kæmi fram þá myndi fólk fara að líta á aðra leikstjóra frá Færeyjum. Þannig er þetta og þetta hangir allt saman,“ segir Baltasar og nefnir útrás íslenskrar tónlistar í kjölfar Bjarkar sem dæmi um hvernig eitt leiðir af öðru. Risavél með þúsund tannhjólum Þegar færi hefur gefist hef- ur Lilja verið með Baltasar á tökustöðum í Bandaríkj- unum og hún segir í raun um tvo gerólíka heima að ræða þegar kvikmynda- gerð á Íslandi er borin saman við það sem er í gangi í Hollywood. „Ástríðan í sköpuninni og kvik- myndagerðinni hérna er allt önnur. Áran og orkan eru bara allt öðru- vísi. Hún er ekkert betri eða verri en þegar ég er búin að vera með Baltasar á setti í margar vikur og er búin að anda þessu andrúmslofti að mér þá finn ég alveg hverslags rosaleg maskína þetta er. Og hvað þetta er mikill iðnaður. Þetta er eins og bílaframleiðsla.“ „Já, já og það er hægt að gera góða bíla og það er hægt að gera lélega bíla. Þetta er náttúrlega stærsta útflutningsgreinin þeirra og er eins og stóriðja,“ segir Baltas- ar og Lilja tekur undir: „Nákvæm- lega. Það er ofboðslegur máttur í þessu. Þetta er eins og risavél með þúsund tannhjólum og það er magnað að sjá þetta apparat virka.“ Baltasar segir að sér finnist að mörgu leyti frábært hvernig hlut- irnir ganga fyrir sig í Hollywood. „Evrópubúar tala oft niður til Hollywood og finnst allt frábært í Evrópu. Við horfum á svo mikið sem kemur frá Ameríku en ef þú horfir á allt sem kemur frá Evrópu Framhald á næstu opnu Hjónin deila ástríðu fyrir hestamennsku og reynslan af hestunum gagnast Baltasar vel þegar hann þarf að hafa taumhald á Hollywood-stjörnum. 26 viðtal Helgin 21.-23. september 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.