Fréttatíminn - 21.09.2012, Side 38
40-70%
Rýmingarsala
Korputorgi
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Opið næstu daga. Kl. 11:00–18:00
U
m sjö milljarðar
manna byggja
nú jörðina. Sam-
kvæmt nýleg-
um tölum eiga
jarðarbúar um
1,2 milljarða tölva en sex milljarða
síma. Þessir sex milljarðar síma
eru vissulega afar misjafnir, allt frá
eldgömlum jálkum upp í iPhone 5.
En þróunin er samt afar hröð og
sífellt fleiri eiga nú og nota snjall-
síma. Í raun má segja að það sé eng-
inn maður með mönnum nú til dags
nema eiga snjallsíma.
Vöxtur snjallsímamarkaðarins er
hraðari en vöxtur sjónvarpsmark-
aðarins á sjötta áratugnum og inter-
netmarkaðarins á tíunda áratugnum
í Bandaríkjunum. Á síðasta ári voru
47 prósent af öllum seldum símum
hjá Vodafone hér á landi snjallsímar.
Það sem af er þessu ári eru eru 60
Smíða öpp fyrir
milljónir manna
Ótrúlegur vöxtur hefur verið
í sölu og notkun á snjall-
símum síðustu misseri. Sextíu
prósent seldra síma á árinu
eru snjallsímar og það hlut-
fall eykst með hverjum mán-
uði. Smátt og smátt virðist
fólk vera að færa netnotkun
sína úr tölvum yfir í síma. Í
Kaaberhúsinu við Sætún er
að finna hugbúnaðarfyrir-
tækið Gangverk sem sérhæfir
sig í að smíða öpp. Milljónir
manna nota öpp Atla Þor-
björnssonar og félaga, allt frá
gestum Iceland Airwaves til
milljóna útvarpshlustenda í
Bandaríkjunum.
prósent allra seldra síma snjallsímar.
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone, segir að þetta hlut-
fall fari hækkandi með hverjum mán-
uði. Þróunin er enda sú að sífellt fleiri
nota símann sinn til að sinna helstu
netnotkun sinni; Facebook, banka-
viðskiptum og upplýsingaleit svo fátt
eitt sé nefnt. Þá eru ótalin öll öppin.
Hundruð þúsunda eru í boði.
Íslendingar í fremstu röð
Á efstu hæð Kaaberhússins í Sætúni
er fyrirtækið Gangverk til húsa. Það
er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki í
framleiðslu appa hér á landi. Fyrir-
tækið hefur gert öpp fyrir Arionbanka
og Símann en starfar líka fyrir erlend
fyrirtæki á borð við fjölmiðlarisann
CBS.
„Fyrsta stóra appið sem fór út frá
okkur var endursmíði á appi fyrir
Radio.com. Það tók sex mánuði að
smíða og kom út í mars á þessu ári,“
segir Atli Þorbjörnsson, einn eigenda
Gangverks. Radio.com er einskonar
regnhlíf yfir allar útvarpsstöðvar
CBS í Bandaríkjunum en þær skipta
hundruðum. Appið virkar einfaldlega
þannig að fólk velur sér staðsetningu
og tegund tónlistar og getur í kjölfarið
hlustað á stöðvar að sínu skapi. Millj-
ónir notast við þetta app. Fyrir vikið
má fullyrða að þetta sé útbreiddasta
app sem íslenskt fyrirtæki hefur
smíðað.
Gangverk hefur framleitt fleiri öpp
fyrir CBS. Má þar nefna svokallað
Metrolyrics-app sem snýst um að
finna texta við lög auk þess sem það
ber kennsl á lög sem fólk þekkir ekki.
Þá eru starfsmenn Gangverks að
skrifa nýja útgáfu af Last.fm-appinu
en það vörumerki þekkja margir Ís-
lendingar.
Smíða fyrir þátt Lettermans
Nýjasta verkefni Gangverks fyrir
CBS er svo Live on Letterman-app.
Live on Letterman er sjónvarpsþáttur
sem sendur er út í beinni útsendingu
í Bandaríkjunum á nokkurra vikna
Atli Þorbjörnsson og félagar á skrifstofu Gangverks í Kaaberhúsinu. Þeir smíða
öpp fyrir fjölmiðlarisann CBS sem milljónir snjallsímanotenda nota. Ljósmynd/Hari
App fyrir sjónvarpsþátt David Letterman.
App fyrir útvarpsstöðvar CBS.
Android-útgáfa Arion
banka appsins.
Kvikmyndahátíðin RIFF. Iceland Airwaves.
N o k k u r Þe i r r A A ppA S e m G A N G v e r k h e fu r S m Í ðA ð
38 úttekt Helgin 21.-23. september 2012