Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.09.2012, Side 42

Fréttatíminn - 21.09.2012, Side 42
42 fjármál Helgin 21.-23. september 2012  Fjármál SnjallSímaForrit arion banka n ei, ég er ekki með yfirdrátt,“ segir Jón Jónsson, tónlistar­maður og hagfræðingur („ég titla mig reyndar ekki sem neinn hagfræðing en jú, jú, ég er með þessa gráðu“), sem hefur síðustu misseri haldið fyrirlestra á vegum Arion banka fyrir ungt fólk um fjármál. „Fyrirlestrarnir eru hugsaðir sem leið til að kveikja á perunni hjá þessum krökkum sem eru að detta á þann aldur að geta tekið lán,“ útskýrir Jón og segir megin þemað í því dæmi öllu saman vera að krakkarnir eyði ekki um efni fram. Þótt Jón titli sig ekki dagsdaglega sem hagfræðing (hann er ritstjóri vikuritsins Monitor sem fylgir með Mogganum) þá útskrifaðist hann með fínar einkunnir í hagfræði frá hinum virta háskóla, Boston University, árið 2009. Þar bjó hann í þrjú ár og bjó með öðrum Íslendingi – þeir voru báðir í fótboltaliði skólans – í þrjú ár. Honum fannst í fyrstu pínu glatað að koma heim, hann var orðinn pínu Amer­ íkani í sér, en hún Hafdís Björk beið hans (þau höfðu verið í „Lond Distance Rela­ tionship,“ útskýrir Jón) þannig að það var líka frábært að koma aftur til Íslands. Og á dögunum varðstu Íslandsmeistari í fótbolta með FH? „Jú, jú,“ svarar Jón sem spilar stöðu hægri bakvarðar og allt í leikmannahópn­ um þótt hann hafi setið á bekknum mest allt sumar. Jón er 26 ára gamall og heilbrigðið upp­ málað, bæði hvað fjármálin varðar (eina lánið sem hann hefur tekið er íbúða­ lán) og allt annað. Hann reykir ekki og KYNNING  Fjármál meginþema jónS er að krakkarnir eyði ekki um eFni Fram Jón Jónsson er ekki með neinn yfirdrátt Jón Jónsson, tónlistarmaður, hag- fræðingur og ritstjóri Monitors, segist hafa byrjað ungur að safna sér fyrir því sem sig langaði í og hann fer aldrei yfir á reikningnum og vill alltaf eiga varasjóð. Jón Jónsson hefur síðustu misseri haldið fyrirlestra á vegum Arion banka fyrir ungt fólk um fjármál. „Á þriðjudaginn verður Jón á Akureyri með fyrirlestur um fjármál.“ drekkur ekki og heldur ekki bara fyrirlestra um fjármál heldur predikar hann líka yfir krökkum um skaðsemi munntóbaks („ég drekk ekki einu sinni kaffi,“ útskýrir Jón). Ertu ekki hinn fullkomni tengdasonur? „Ég held ég sé alveg ágætur. Þú getur hringt í tengdó ef þú vilt,“ svarar Jón og skrifar eigið ágæti fyrst og síðast á foreldra sína, þau Jón Rúnar Halldórsson og Ásthildi Ragnarsdóttur. Mamma hans vinnur ein­ mitt í banka og pabbi hans er í viðskiptum, var lengi framkvæmdarstjóri, en þau eiga fjögur börn: Jón auðvitað, Friðrik Dór (yngri bróðir) og svo á Jón tvíburasystur, hana Hönnu Borg, og elsta systirin heitir María Mjöll og vinnur hjá Sameinuðu þjóð­ unum í New York. Allt óvenjuvel heppnað fólk og ekkert þeirra með yfirdráttarheim­ ild, segir Jón og hlær. Á þriðjudaginn verður Jón á Akureyri með fyrirlesturinn sinn en áhugasamir ættu að fylgjast með vefsíðu Arion og auglýsingum. m eð snjallsímaforriti Arion banka geta viðskiptavinir fylgst með færslunum sínum, stöðu reikn­ inga og korta án þess að skrá sig inn í net­ bankann. Það þarf einungis að skrá þig inn þegar framkvæmdar eru fjárhagsleg­ ar færslur eins og að millifæra og greiða ógreidda reikninga. Notendur appsins geta valið þá reikninga og þau kort sem þeir vilja fylgjast með. Aðal áherslan var lögð á að auðvelda aðgengi viðskiptavina að fjárhagslegum upplýsingum sínum. Þannig þarf einungis einn smell til að nálgast stöðu reikninga og kreditkorta, ógreidda og útistandandi reikninga og síðustu innborganir og útborganir. Við látum viðskiptavini einnig vita ef þeir fara á FIT, þegar greitt er inn á reikning ofl. Nú hafa viðskiptavinir sannarlega fjármálin sín í vasanum sem auðveldar þeim til muna að fylgjast með og hafa yfirsýn yfir heimilisfjármálin. Árangurinn lét ekki á sér standa og á fyrsta mánuðinum hafa þúsundir við­ skiptavina þegar sótt appið. Við erum líka sjá mikla notkun á appinu en rúmlega 10% innskráninga eru að koma þar í gegn. Þetta rímar líka vel við það sem er að ger­ ast í Evrópu en þar hefur á milli ára orðið 90% aukning í því að fólk nálgist fjárhags­ legar upplýsingar í gegnum snjallsíma. Til að nota snjallsímaforritið skrá við­ skiptavinir sig inn með sömu auðkenn­ ingu og notuð er í netbankanum. Að lokinni fyrstu uppsetningu er hægt að sjá upplýsingar um stöður í rauntíma og án innskráningar. Óski viðskiptavinir þess geta þeir læst forritinu með leyninúm­ eri. Forritið er hannað fyrir Android og iPhone síma en virkar einnig vel á töflum eins og t.d. iPad. Appið er nýjasta lausnin fyrir síma en Arion hefur um margra ára skeið boðið upp á þjónustusíma bankanna 515­4444 sem er mörgum kunnur. Einnig hefur sms þjónustan í netbankanum verið vinsæl þar sem viðskiptavinir geta fengið stöðu reikninga ofl. sent með sms­i. Í haust 2011 buðum við upp á m.Arion.is sem er sérhannaður vefur fyrir farsíma og allir farsímar sem komast á netið geta nýtt sér. Allar al- mennar upplýsingar er hægt að nálgast á vef bankans www.arion- banki.is. Arion appið KYNNING

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.