Fréttatíminn - 21.09.2012, Síða 58
Helgin 21.-23. september 201258 tíska
„Burgundy“ fyrir
veturinn
Það er ávallt gaman fyrir áhugafólk um förðun að spá í
hvernig tískan verður fyrir næstu árstíð. Spennan er mikil
víðs vegar um heiminn þegar fylgst er með „Fashion
Week“ sem nú stendur yfir. Nú þegar henni er að ljúka er
farið að spá og spekúlera í vor og sumarlitina. Hvað verður
í hávegum haft og hver verða aðal „trendin“. Þegar litið er
til baka á tískuvikur fyrri hluta þessa árs er hægt að sjá
hvernig stemningin verður í vetur.
Þekktir „Make Up Artistar“ eru fengnir til að hanna og
sjá um förðunina fyrir stóru fatamerkin. Oft hanna þeir
útlit sem er mjög ýkt og ekki hentugt fyrir okkur hin dags
daglega, en tískusýningar eru oft eins og leiksýningar,
skrautlegar og til skemmtunar. Þá má oft sjá ákveðna
strauma eða þemu sem eru hálfpartinn leiðarvísar um
hvað er fram undan. Svo eru það einstaklingarnir sem
útfæra að eigin vild.
Það sem bar hæst og er augljóslega aðalmálið fyrir vet-
urinn er varaliturinn. Dökkir „burgundy“ litir, „nude“ og
svo rauðir. Á tískusýningum hjá nokkrum fatahönnuðum,
t.d. Gucci, Badgley Mischka og Donnu Karan voru varirn-
ar vínrauðar en það verður aðal „trendið“ í vetur. Hjá Rick
Owens, Marc Jacobs og Zac Pozen var förðunin í lágmarki,
en varirnar eldrauðar. Þykkur og mikill „eyeliner“ var not-
aður hjá Lanvin og meira að segja voru margar fyrirsæt-
urnar með litaglaða „eyelinera“, sérstaklega kóngabláa.
Í hnotskurn þá mun látlaus augnförðun, litskrúðugar
varir og vel mótaðar, þykkar augabrúnir vera það allra
vinsælasta í vetur. Svo er upplagt að panta tíma í einkaráð-
gjöf í Make Up Store Smáralind. 50 mínútna kennsla kostar
9.990 krónur og í lok kennslunnar getur viðkomandi valið
vörur fyrir upphæðina.
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Margrét R.
Jónasar, förðunar-
meistari og eigandi Make
Up Store á Íslandi. www.
margret.is
Stígur upp úr hverSdagSleikanum í SparidreSSið með Sömu flíkinni
Hálsmálið heillaði
Hversdagsdressið Sparidressið
Forever21
Guðný Sara Birgisdóttir, 19 ára nemi í Menntaskólanum við Hamrahlíð, heldur mikið upp á svarta
kjólinn sinn sem hún keypti út á Spáni í sumar. Hún fann hann í versluninni Pull and Bear og varð
heilluð af öðruvísi hönnun hálsmálsins. „Hönnun kjólsins er öðruvísi og töff og líklega var það háls-
málið sem ég féll fyrir. Ég hef notað hann mikið síðan ég kom heim frá Spáni og þá helst hversdags,
en þó líka við spariskóna þegar ég kíki út á lífið. Þetta er hentugur kjóll fyrir hvert tilefni og fer það
algjörlega eftir því hvort ég klæðist þægilegri skyrtu við eða fínan jakka. Ég er þó meiri „tomboy“ í mér
þegar kemur að persónulegum stíl, sem er kannski ástæða þess að ég nota kjólinn meira hversdags.
Mangó
Pull And Bear
H&M
Timberland
Pull And Bear
Götumarkaður
Fyrsti ilmur Olsensystra væntanlegur
Olsensystur, sem lagt hafa leiklistarferil sinn á hilluna til að sinna tísku-
fyrirtækinu Elizabeth and James, sem átt hefur vaxandi velgengni að
fagna, tilkynntu í vikunni að fyrsti ilmur þeirra sé væntanlegur í lok
þessa árs. Ilmurinn er unninn í samstarfi við snyrtihúsið Sephora en
verður framleiddur undir merki þeirra systra. Hann mun endurspegla
persónuleika þeirra beggja, líkt og fata- og fylgihlutalína þeirra gerir, en
það virðist einmitt vera það sem viðskiptavinir þeirra sækjast helst eftir.
Ilmurinn verður þó ekki fyrir hvern sem er, en verð hans verður rjúk-
andi hátt, líkt og á öðrum vörum frá hátískufyrirtæki þeirra systra.
Best klæddu
konur heims
Árlegi listinn yfir best klæddu
stjörnurnar var birtur á dögunum
af slúðurtímaritinu People og var
það bandaríska leikkonan Gwyneth
Paltrow sem hreppti titilinn best
klædda stjarnan. Hún hefur sýnt sig
og sannað á þessu ári, með fágaðan,
glæsilegan og djarfan stíl. Prins-
essan og tískuíkonið Kate Middleton,
sem mikið hefur verið í fjölmiðlum
vegna klæðaburðar, hafnaði í öðru
sæti og rauðhærða leikkonan Emma
Stone í því þriðja. Fleiri stjörnur
sem náðu á listann í ár voru meðal
annars Kardashian systur, fyrirsætan
Miranda Kerr, Reese Witherspoon,
Rihanna og Jessica Alba.