Fréttatíminn - 21.09.2012, Síða 65
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
STÖÐ 2
07:00 Strumparnir / Villingarnir /
Svampur Sveins / Algjör Sveppi /
Tasmanía / Ofurhetjusérsveitin / Scooby-
Doo! Leynifélagið / iCarly
12:00 Spaugstofan (1/22)
12:25 Nágrannar
14:10 The X-Factor (4/26)
14:55 Masterchef USA (18/20)
15:40 Týnda kynslóðin (3/24)
16:05 Spurningabomban (2/12)
16:55 Beint frá býli (3/7)
17:40 60 mínútur
18:30 Fréttir Stöðvar 2
19:15 Frasier (1/24) Sígildir og marg-
verðlaunaðir gamanþættir.
19:35 Last Man Standing (13/24)
20:00 Harry's Law (10/12)
20:45 Rizzoli & Isles (15/15)
21:30 Mad Men (7/13)
22:20 60 mínútur
23:05 Fairly Legal (3/13)
23:50 The Pillars of the Earth (6/8)
00:45 Georgia O'Keeffe
02:10 Blue State
03:40 Nikita (12/22)
04:20 Harry's Law (10/12)
05:05 Rizzoli & Isles (15/15)
05:50 Fréttir
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
08:20 Young Boys - Liverpool
10:05 Pepsi mörkin
11:40 Singapúr
14:50 Evrópudeildarmörkin
15:45 Pepsí deildin 2012
18:00 Meistaradeild Evrópu (E)
19:45 Þorsteinn J. og gestir - meistara-
mörkin
20:30 Meistarad. Evrópu - fréttaþáttur
21:00 Pepsi mörkin
22:10 Spænski boltinn
23:55 Pepsí deildin 2012
01:45 Pepsi mörkin
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
08:20 Chelsea - Stoke
10:10 Newcastle - Norwich
12:00 Liverpool - Man. Utd.
14:45 Man. City - Arsenal
17:00 Sunnudagsmessan
18:15 Tottenham - QPR
20:05 Sunnudagsmessan
21:20 Liverpool - Man. Utd.
23:10 Sunnudagsmessan
00:25 Man. City - Arsenal
02:15 Sunnudagsmessan
SkjárGolf
06:00 ESPN America
07:05 Tour Championship (3:4)
11:05 Ollie´s Ryder Cup (1:1)
11:30 Tour Championship (3:4)
15:30 Tour Championship (4:4)
22:00 Upphitun fyrir Ryderbikarinn
22:30 Tour Championship (4:4)
01:30 ESPN America
23. september
sjónvarp 65Helgin 21.-23. september 2012
Sjónvarpsstöðin ÍNN er lítið krafta-
verk á íslenskum sjónvarpsmarkaði.
Stöðina keyrir sá vaski forkur Ingvi
Hrafn Jónsson áfram af miklu harð-
fylgi og býður upp á alíslenska dag-
skrá og skrautlegt úrval ansi hreint
sérkennilegra þátta.
Höfðingjar á borð við Geir H.
Haarde og Björn Bjarnason hafa lagt
Ingva Hrafni lið og ausa reglulega
úr hyldjúpum viskubrunnum sínum.
Stundum af svo mikilli einurð og festu
að manni rennur kalt vatn milli skinns
og hörunds.
Enginn á ÍNN skyggir þó á kóng-
inn sjálfan, Ingva Hrafn, sem hefur
verðskuldað verið kallaður „meistari
ljósvakans“. Ingvi er reynslubolti sem
gjörþekkir svo möguleika miðilsins
að unun er á að horfa þegar Hrafninn
nær flugi.
Ingvi Hrafn er jafnan bestur þegar
hann heldur einræður sínar í byrjun
þátta sinna. Leikræn tilþrif hans
eru með ólíkindum. Hann hefur til
dæmis leikið skrattann með slíkum
bravúr að YouTube verður aldrei
samt. Þá hefur hann hysjað upp um
sig brækurnar fyrir hönd íslenskrar
blaðamannastéttar í útsendingu og
svo mætti lengi telja.
Í síðustu viku tók Ingvi sig til, fól
andlit sitt í höndum sér og grét yfir
því að Jóhanna Sigurðardóttir teldi
sig enn eiga erindi í stjórnmálum. Og
bætti svo um betur þegar hann tók
til varna fyrir klaufann Mitt Romney
sem er í vondum málum eftir að hann
náðist á myndbandi lýsa helmingi
bandarískra kjósenda sem þurfaling-
um og afætum.
Ingvi Hrafn, sem virðist líta á
demókrata og Obama sem örgustu
kommalufsur, benti ákveðinn á að
Romney hefði rétt fyrir sér og hrak-
spár um að orð hans væru til þess
fallin að tæta af honum fylgi væru
innistæðulausar. Allir almennilegir
Bandaríkjamenn hlytu að sjá sann-
leikann í orðum Romneys og fylkja
sér að baki honum.
Eins og frægt er orðið vilja aðeins
2% Íslendinga sjá Romney í Hvíta hús-
inu og maður er eiginlega gáttaður
á því að annars eins kappi og Ingvi
Hrafn þrífist í jafn þröngum hópi.
Hann á skilið stærri aðdáendahóp en
svo. Þórarinn Þórarinsson
Tveggja prósenta maðurinn
Sjónvarp Hrafnaþing
ÞVottaefni fyrir hVert tilefni
StórÞVottur
framundan?
hafðu Það fínt
nú er Það SVart
Ekkert jafnast á við
Neutral Storvask til
að komast til botns
í þvottakörfunni.
Hentar fyrir þvott
af öllu tagi.
Silkihönskum, ullarteppum
og dúnúlpum hæfir 30 til
40 gráðu þvottur í höndum
eða vél með Neutral Uld-
og finvask.
Neutral Sort vask varðveitir
svartan glæsileikann svo hann
tapi ekki lit sínum. Upplitað er
bara ekki í tísku þessa dagana.
Fyrir alla muni, ekki láta
þennan lenda í hvíta
þvottinum.
Létt er að flokka
litríka sokka.
nú er Það hVítt haltu lífi í litunum
Ensímin í Neutral Hvid vask
losa þig við erfiða bletti og
óhreinindi. Það skilar sér í
björtum og hvítum þvotti.
Fljótandi Neutral leysist vel
upp og hentar því líka vel í
handþvottinn.
Settu svolítið af Neutral Color
í hólfið og njóttu þess að fá
þvott inn jafn litríkan úr vélinni
aftur. Þetta er kröftugt, þú
notar bara lítið af dufti í
hverja vél. Fljótandi Neutral
Color endist líka og endist.
Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi
mælir með vörum frá Neutral
Dönsku astma- og
ofnæmissamtökin
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
N
AT
5
96
94
0
5.
20
12