Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 4
Fundir og ráðstefnur
Veislusalurinn er vel tækjum búinn og er því tilvalinn
fyrir hvers kyns ráðstefnur og fundi, stóra sem smáa.
Í salnum er meðal annars hágæða hljóðkerfi, skjávarpi,
flettitafla og púlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf
varðandi veitingar og annað sem huga þarf að.
GLÆSILEGUR VEISLUSALUR!
Náttúruparadís í hjarta borgarinnar
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is sími 599 6660
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
SuðveStan og veStanátt, 5-10 m/S og Slydda
SíðdegiS en rigning undir kvöld.
HöfuðborgarSvæðið: SuðveStlæg átt,
þykknar upp með Slyddu í fyrStu en rigningu
undir kvöld og hlýnar heldur.
v- og Sv-átt 5-13 m/S, rigning um allt land.
SnýSt í n-átt og Snjókomu n- ogg a-landS.
HöfuðborgarSvæði : veStlæg átt og rigning
með köflum, en norðlægari og Styttir upp um
kvöldið. kólnar.
n-átt og léttir til. SnýSt í Sv-átt með
Skúrum eða éljum með v-Ströndinni.
HöfuðborgarSvæðið: hæg breytileg
og Síðar veStlæg átt og bjartviðri.
úrkomusamt en fallegt
á sunnudaginn
fyrri hluta helgarinnar verður úrkomusamt,
einkum um vestanvert landið en einnig aust-
antil á laugardag. Yfirleitt rigning á láglendi
en mögulega slydda til fjalla. á sunnudag
má þó búast við fallegu veðri víðast hvar um
landið, þó það verði vissulega
frekar svalt. vestlægar áttir
og úrkoma fram á aðfaranótt
sunnudags, þegar snýst til
norðlægrar áttar, léttir
til og kólnar.
3
2 -2
-2
5
5
3 3 3
6
2
0 -2
-3
4
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
OYSTER PERPETUAL ROLEX DEEPSEA
Michelsen_255x50_K_0612.indd 1 14.06.12 16:57
sjávarútvegur
Sjávarútvegurinn snertir okkur öll
„þetta er þriðja árið sem við höldum þessa
ráðstefnu,“ segir finnbogi alfreðsson, fram-
kvæmdarstjóri Sjávarútvegsráðstefnunnar sem
haldin verður á grand hótel í reykjavík 8.-9.
nóvember. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Horft til
framtíðar“ en finnbogi segir að fólk megi ekki
gleyma að sjávarútvegurinn er ein mikilvægasta
atvinnugreinin.
„við erum ekki ræða pólitík á þessari ráðstefnu
og við öll sem stöndum að henni höfum áhuga á
að auka vægi sjávarútvegs í umræðunni á íslandi,“
segir finnbogi og lofar fræðilegri nálgun þar sem
veiðarnar, vinnslan og markaðssetningin verður
rædd á skapandi hátt. „Sjávarútvegurinn snertir
okkur öll.“
Fyrsta ballið á Hrafnistu
Í gærkvöldi var fyrsta ballið haldið á nýja kaffihúsinu, Skála-
felli, á hrafnistu í reykjavík síðan byrjað var að selja áfengi.
dagskráin hófst með fordrykk klukkan 18 en veislustjóri
kvöldins var albert eiríksson. Söngnemar bergþórs pálssonar
sáu svo um söngskemmtun. loks var slegið upp í ball og var
það guðmundur haukur jónsson sem hélt uppi fjörinu.
halla jónsdóttir með
svifölduna, verðlaun fyrir
bestu framúrstefnuhug-
mynd Sjávarútvegsráð-
stefnunnar 2011. Þ riðjungur landsmanna telur útlend-inga líklegri til að fremja afbrot hér á landi en Íslendinga, samkvæmt
niðurstöðum úr rannsókn sem Helgi Gunn-
laugsson afbrotafræðingur og prófessor í
félagsfræði við Háskóla Íslands hefur gert.
Eitt prósent telur Íslendinga líklegri og 70%
telja Íslendinga og útlendinga jafn líklega
til að fremja afbrot hér á landi.
Í annarri nýrri rannsókn, sem hann gerði
ásamt Snorra Erni Árnasyni félagsfræðingi
og Norræna sakfræðiráðið stóð að, kom
fram að eilítið fleiri Íslendingar teldu að
útlendingar ættu að fá dóm fyrir tiltekið
afbrot en ef Íslendingur fremdi brotið, þótt
munurinn væri ekki jafnmikill og í afstöð-
unni til hvor hópurinn væri líklegri til að
fremja afbrot, Íslendingar eða útlendingar.
„Send voru tilbúin dæmi um þrenns
konar afbrot, kynferðisbrot, ofbeldi gegn
maka og smygl á fíkniefnum,“ segir Helgi.
„Sett voru upp dæmi um sambærileg mál
með ólíka gerendur, annars vegar voru ger-
endur Íslendingar og hins vegar útlending-
ar en að öðru leyti voru málin nákvæmlega
eins. Einnig voru sett upp mál með fólki af
báðum kynjum,“ segir hann.
„Fram kom að heldur fleiri vildu senda
útlendinginn í fangelsi en Íslendinginn.
80% vildu að útlendingurinn en 75% vildu
að Íslendingurinn færi í fangelsi. Lengdin á
refsitímanum var hins vegar mjög áþekk,“
segir Helgi.
Munurinn á viðhorfum var hins vegar
meiri eftir því hvort gerandi var karl eða
kona þegar um er að ræða fíkniefnasmygl.
„Þar vildu fleiri dæma karlinn til fangelsis-
vistar en konuna en meginmunurinn var að
refsitími karlanna var lengri,“ segir hann.
45% aðspurðra vildi dæma karlinn í þriggja
ára fangelsisvistun eða lengri en 30% töldu
það hæfilega refsingu fyrir konuna.
Þátttakendur í rannsókninni fengu senda
stuttar lýsingar á afbrotamálum og síðan
spurðir hvaða refsingu þeir myndu vilja
dæma viðkomandi í. „Rannsóknin skoðar
afstöðu Íslendinga til mála út frá kyni og
þjóðerni. Niðurstöðurnar benda til að það
séu ekki miklir fordómar hérlendis í garð
gerenda, alvarleiki brotsins skipti meira
máli en þjóðerni geranda. Hins vegar
virðist vera meiri samúð með konum en
körlum og því spurning hvort fólk telji kon-
ur frekar fórnarlömb aðstæðna en karlar,“
segir Helgi.
Engar rannsóknir hafa verið gerðar á því
hérlendis hvort Íslendingar og útlendingar
fái jafn þunga dóma í sambærilegum mál-
um. Fréttatíminn óskaði eftir upplýsingum
um meðferð kynferðisbrotamála eftir þjóð-
erni hjá ríkissaksóknara og ríkislögreglu-
stjóra sem ekki gátu orðið við beiðninni þar
sem gögnin voru ekki tiltæk.
„Margar rannsóknir erlendis styðja það
að minnihlutahópar fá lengri dóma en hvít-
ir, þeir eru handteknir frekar og fá lengri
refsingar,“ segir Helgi. „Við vitum líka
að þjóðerni skiptir máli bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum og útlendingar eru frekar
handteknir og fá þyngri dóma. Það er full
þörf á að skoða hvernig þessu er háttað hér
á Íslandi,“ segir Helgi.
Sigríður dögg auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
rannsókn viðhorF Íslendinga til aFbrota eFtir Þjóðerni og kyni
Íslendingar telja útlend-
inga líklegri til afbrota
þriðjungur telur að útlendingar séu líklegri til að fremja afbrot hér á landi en íslendingar.
lítill munur er á því eftir þjóðerni hvort fólk vilji dæma brotamenn í fangelsisvist þó svo að
eilítið fleiri vilji dæma útlendinginn en Íslendinginn. Engar rannsóknir eru til um málsmeðferð
og dóma eftir þjóðerni gerenda.
„Heldur fleiri
vildu senda
útlendinginn í
fangelsi en Ís-
lendinginn.“
í könnun um við-
horf íslendinga til
afbrota kemur fram
að eilítið fleiri vildu
senda útlending í
fangelsi fyrir afbrot
en íslending. meðal
annars var horft
til ofbeldis gegn
maka.
leiðrétting
í síðasta blaði var hulda
björk garðarsdóttir, óperu-
söngkona sem syngur hlut-
verk leonöru í il trovatore,
rangfeðruð. beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
4 fréttir helgin 26.-28. október 2012