Fréttatíminn - 26.10.2012, Síða 6
www.odalsostar.is
Íslenskur Gouda-ostur hefur verið á boðstólum
á Íslandi frá árinu 1961. Í dag sér KEA Akureyri
um framleiðsluna. Fyrirmynd ostsins er hinn
frægi Gouda, frá samnefndum bæ í suðurhluta
Hollands. Gouda Sterkur er lageraður í sex
mánuði. Mjúkur, bragðmikill og þroskaður ostur
með skörpu bragði, sveppatónum, kryddkeimi
og langvarandi eftirbragði. Hentar við flest öll
tækifæri, hvort sem er á ostabakkann eða til að
setja punktinn yfir i-ið í matargerðinni.
GOUDA STERKUR
KRÖFTUGUR
A ð minnsta kosti tveir íslenskir læknar sem voru við friðargæslustörf í Bosníu hafa greinst með alvarlega tegund krabbameins. Mikið
magn af geislavirkum málmi, rýrðu úrani, var notað
í sprengjuodda sem NATO notaði í Bosníustríð-
inu. Samkvæmt upplýsingum úr Læknablaðinu
dreifist sprengjurykið í andrúmslofti, sest í
jarðveginn og er talið krabbameinsvaldandi.
Í byrjun árs 2001 var mikil umræða í fjöl-
miðlum í Evrópu og Bandaríkjunum um
óeðlilegan fjölda krabbameinstilfella hjá her-
mönnum sem höfðu verið við störf í Bosníu.
Sextán friðargæsluliðar frá sex mismunandi
löndum höfðu látist af hvítblæði og fjöldi til við-
bótar greindist með krabbamein sem síðar var
nefnt Balkan-heilkennið. Í kjölfarið fóru af stað
rannsóknir á tengslum milli notkunar úran-
vopna og heilsu hermanna í stríðinu á vegum
NATO og Umhverfisverndaráætlunar Sameinuðu
þjóðanna.
Breska ríkisstjórnin staðfesti í kjölfarið að
þúsundir hermanna í Bosníustríðinu hefðu verið í
hættu vegna banvænna áhrifa úranvopna og játaði
að hafa ekki upplýst um hugsanleg neikvæð heilsu-
farsleg áhrif þess.
Niðurstöður úr rannsóknum NATO og SÞ sögðu að
ekki mætti greina nein tengsl milli notkunar úrans og
krabbameins í hermönnum í Bosníustríðinu en sam-
tök fyrrverandi hermanna gagnrýndu rannsóknina
og sögðu hana gallaða.
Rannsókn sem gerð var í Þýskalandi árið 2003
sýndi fram á að úransameindir geti farið um allan
líkamann og valdið þar skaða, jafnvel í egg og sáð-
frumur og skaðað þannig erfðaefni þeirra. Fyrir
tveimur árum komu fram nýjar rannsóknir á fæð-
ingargöllum barna í Falluja í Írak en mikið magn
úrans var notað í vopnum sem beitt var í Íraks-
stríðinu sem hófst árið 1991. Fæðingargallar
reyndust 11 sinnum algengari en eðlilegt væri.
Ekki var hægt að slá því föstu að orsökin væri úran
en gríðarlegt magn þess var notað í tveimur árásum á
borgina í apríl og nóvember 2004.
Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu
hafa íslenskir friðargæsluliðar ekki gengið undir sér-
staka læknisrannsókn til að kanna hvort greina megi
úran í líkama þeirra líkt og hermönnum og friðargæslu-
liðum í mörgum öðrum Evrópulöndum bauðst í kjölfar
umræðunnar um Balkan-syndrómið. Engar tilkynn-
ingar hafa borist til ráðuneytisins vegna gruns um
krabbamein af völdum úrans.
Síðustu ár hafa nokkur lönd, þar á meðal Belgía, sam-
þykkt bann við notkun úrans í vopnum.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
skipulAgsmál Borgin kynnir nýtt skipulAg fyrir geirsgötu
25 ára leigusamningur við Guðmund í Brimi
V ið teljum að það geti verið skemmtilegt ef
Guðmundur í Brimi nýtir
húsið undir starfsemi,“
segir Hjálmar Sveinsson,
formaður stjórnar Faxa-
flóahafna, en það kom á
óvart að Faxaflóahafnir
framlengdu leigusamning
við Brim um húsið við
Geirsgötu 11 því lengi
hefur verið unnið að nýju
skipulagi á þessu fallega
hafnarsvæði.
„Það geta falist mögu-
leikar í þessu húsi og Guð-
mundur í Brimi er öflugur
útgerðarmaður og ætti að
vera í stakk búinn að hefja
framkvæmdir fljótlega.
Það fylgja þessu þau
skilyrði að Brim snyrti
og bæti útlit hússins,“
heldur Hjálmar áfram en
hann segir ómögulegt
að hafnarhverfið verið
einvörðungu með túrista-
sjoppum heldur megi
önnur atvinnustarfsemi
vel þrífast við höfnina.
Geirsgata í dag. Vel hefur tekist að lyfta upp hafnarsvæðinu austar,
þar sem Sægreifinn, Hamborgarabúllan og nýtt hótel hafa risið
síðustu misseri og mikið líf myndast.
friðArgæslA Bosníuheilkennið
Íslenskir Bosníulæknar
greinast með krabbamein
Tveir íslenskir læknar, hið minnsta, hafa greinst með alvarlega tegund krabbameins eftir að hafa verið við
friðargæslustörf í Bosníu þar sem notuð voru úranvopn sem grunur leikur á að geti valdið krabbameini.
Sextán friðargæsluliðar frá sex mismunandi löndum höfðu látist
af hvítblæði og fjöldi til viðbótar greindist með krabbamein sem
síðar var nefnt Balkan-heilkennið.
Geirsagtan eins og hún verður. Ekki sést í Brim-húsið en framkvæmdir við
það ættu að hefjast fljótlega. Hjálmar Sveinsson segir nýjan leigusamning
við Brim ekki setja áætlanirnar, sem birtast á þessari mynd, úr skorðum.
Minnst tveir
íslenskir
læknar sem
voru við
friðargæslu-
störf í Bosníu
hafa greinst
með alvar-
lega tegund
krabbameins.
6 fréttir Helgin 26.-28. október 2012