Fréttatíminn - 26.10.2012, Síða 15
Helgin 26.-28. október 2012 viðhorf 15
Hanna Birna Kristjánsdóttir nýtur yfirburðastuðnings
kjósenda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, samkvæmt
nýrri könnun, en hún er að bjóða sig fram í fyrsta sinn til
Alþingis eftir áralanga þátttöku í borgarmálum.
„Prófkjörsbaráttan leggst vel í mig,“ segir Hanna Birna.
„Ég hlakka til að fara yfir málin með öllu því góða sjálf-
stæðisfólki sem ég mun hitta á næstu vikum en mest af
öllu hlakka ég til að takast á við það sem skiptir meira
máli: framtíð landsins okkar,“ segir hún.
Aðspurð segist hún þakklát fyrir þann stuðning sem
hún hefur samkvæmt könnuninni. „Ég hef í langan tíma
fengið mikla hvatningu en átti ekki von á að þessi vís-
bending væri jafn kröftug og þarna kemur fram. Ég lít
hins vegar ekki á að það snúist um mig sem einstakling
heldur það sem ég stend fyrir í pólitík. Mig langar að sjá
breytingar á stjórnmálum og er ánægð með að fleiri eru
sammála um það,“ segir Hanna Birna.
„Stjórnmálin eiga að snúast um það eitt hvernig við
getum bætt hag fólksins í landinu og fjölgað tækifærum
þess,“ segir hún.
Hanna Birna segist vilja draga úr þeirri átakahefð sem
ríkt hefur í íslenskum stjórnmálum. „Ég trúi á meiri sam-
vinnu og sátt og að við vinnum hlutina af meiri virðingu
fyrir skoðunum hvers annars. Við eigum að hætta að
mála andstæðingana jafn sterkum litum og gert hefur
verið og tala um það sem við höfum sjálf fram að færa
í stað þess að benda einungis á það sem aðrir gera ekki
nægilega vel,“ segir hún.
„Margir gætu sagt þetta barnalega nálgun í stjórnmálum
en ég er 46 ára og búin að vera í stjórnmálum í tuttugu
ár. Því þroskaðri sem ég verð því ákveðnari verð ég í
þessari skoðun minni,“ segir hún. -sda
Maður vikunnar
Trúir á samvinnu og sátt í stjórnmálum
„Heimilistækin mín eru frá Smith & Norland.
Það kemur ekkert annað til greina.“
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
„Siemens-tækin eru margreynd á Íslandi. Þau eru fallega
hönnuð, endingargóð og þægileg í notkun. Smith & Norland
er eins og Siemens: traust fyrirtæki með mikla reynslu þar
sem viðskiptavinurinn er í fyrirrúmi. Þannig vil ég hafa það.“
Örn Arnarson, íþrótta- og ökukennari,
hefur keypt öll heimilistækin sín hjá Smith & Norland.
(Hari reddar mynd)
Traust á störf
stjórnlagaráðs
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni um
tillögur stjórnlagaráðs að nýrri
stjórnarskrá reyndust 66,9 prósent
kjósenda fylgjandi því að leggja
þær til grundvallar frumvarpi að
nýrri stjórnarskrá. Salvör Nordal
var formaður stjórnlagaráðs. Hún
segir mikilvægt að ná breiðri sátt
um breytingarnar en niðurstaðan
sýni traust á störfum
stjórnlagaráðs og
vilja til þess að
tillögur þess verði
grundvöllur nýrrar
stjórnarskrár.
Iceland Express gengið
inn í WOW
Sögu Iceland Express í núverandi
mynd er lokið. Hitt íslenska lágfar-
gjaldaflugfélagið WOW air hefur
yfirtekið leiðakerfi, vörumerki og við-
skiptavild Iceland Express. Í yfirlýsingu
Pálma Haraldssonar, eiganda Iceland
Express, kom fram að óhjákvæmilegt
væri að segja upp hluta starfsfólks.
Mikill taprekstur hefur
verið á Iceland Express,
einkum í fyrra, og varð
Pálmi að leggja því til
mikið fé.
Góð vika
fyrir
Salvöru Nordal,
fyrrum formann stjórnlagaráðs
slæM vika
fyrir
Pálma Haraldsson,
eiganda Iceland Express
Allir vildu Bond kveðið hafa
Við erum frændur, ég og James
Bond.
Ingi Hans Jónsson, forstöðumaður
Sögumiðstöðvarinnar á Grundafirði,
getur rakið ættir sínar í báða liði
til Williams Stephenson sem hann
telur fyrirmyndina að James Bond.
Stuttbuxnadeildin
Hann vill að allir búi í 101 og 107
Reykjavík og labbi eða hjóli milli
kaffihúsa í kvartbuxum á milli þess
sem skotist er á fundi hjá nefndum
og ráðum á vegum hins opinbera...
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður
rýnir ofan í hugarfylgsn borgar-
fulltrúans Gísla Marteins Baldurs-
sonar sem er óljúft að taka þátt í
niðurgreiðslu kyndingarkostnaðar á
landsbyggðinni.
Til í allt án Bjarna
Sjálfstæðisflokkurinn er og verður
helsta ógn íslensks samfélags. Með
honum frýs allt fast. Án hans er allt
hægt.
Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason
fór mikinn í grein í DV og greindi
helstu mein samfélagsins.
Sterkari gjaldmiðill
en krónan
Hann reyndi að borga mér með því
að láta mig, og annan mann sem
hann skuldaði laun, hafa mat sem
hann fékk í Fjölskylduhjálpinni.
Margrét Friðriksdóttir vandaði Guð-
mundi Franklín Jónssyni, formanni
Hægri grænna, ekki kveðjurnar á
Smugunni þar sem hún vændi hann um
að hafa reynt að greiða sér verklaun
með mat frá Fjölskylduhjálp Íslands.