Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 21
viðhorf 21
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
1-
20
11
ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ
Sem viðskiptavinur í Stofni nýtur þú Vegaaðstoðar Sjóvá
án endurgjalds. Kynntu þér stækkað þjónustusvæði
Vegaaðstoðar á sjova.is.
VEGAAÐSTOÐ SJÓVÁ
Bensínlaus, straumlaus, sprungið, tjónaskýrsla?
ÞÚ HRINGIR Í 440 2222
OG VEGAAÐSTOÐ SJÓVÁ
BJARGAR MÁLUNUM
Fáðu símanúmer
Vegaaðstoðar sent
í símann þinn.
Uppbygging og endurskipulagning
Ég skal taka til
þá var það vegna styrjaldarástands
sem braust út í landinu eftir keppn-
ina. Freysteinn var eini Íslending-
urinn sem sótti alþjóðaþing FIDE
þegar einvígið var í undirbúningi
og nefndi þar Ísland sem einvígis-
stað. Það var í Amsterdam 9. ágúst
1971. Freysteinn samdi tilboð Ís-
lendinga og var sendur með það
til Amsterdam af þáverandi forseta
Skáksambands Íslands, Guðmundi
G. Þórarinssyni.
Þegar Æðsta ráð Sovétríkjanna
kom hingað í opinbera heimsókn
í byrjun ágúst 1960 var Freysteinn
túlkur ríkisstjórnar Íslands og var
þá fyrsti Íslendingurinn sem túlk-
aði beint úr rússnesku yfir á ís-
lensku. Augljóst er að það hefur
þurft rússneskumælandi mann til
að afla upplýsinga frá Rússlandi
þegar unnið var að upplýsingum
um HM-einvígi því það var stærsta
og virtasta skákland heims á þeim
tíma og er enn. Það er ekki hægt
að lesa um heimsókn Æðsta ráðs
Sovétríkjanna í blöðum Landsbóka-
safns því búið er að falsa blöð á safn-
inu og þurrka út mestallar greinar
eftir Freystein eða um hann. Ég hef
farið á Landsbókasafnið og leitað
að þessum greinum og mörgum
öðrum en ekki fundið þær. Hverjir
geta falsað blöð á Landsbókasafni?
Þeir njóta sjaldnast eldanna sem
fyrstir kveikja þá. Valdamiklir
menn boluðu Freysteini út úr ein-
vígismálunum og hafa eignað sér
heiðurinn af stórum hluta ævistarfs
hans síðan. Freysteinn átti frum-
kvæðið að HM-einvíginu í skák
1972 sem er enn að stækka. Minn-
ing hans lifi.
Freysteinn varð Íslandsmeistari í
skák 1960 og Norðurlandameistari
1965.
Í störfum mínum undanfarin ár
hefur tekist að bjarga hundruðum
starfa Nýverið fékk ég gagnrýni
á mig í fjölmiðlum fyrir að hafa
stýrt fyrirtækjum í gegnum fjár-
hagslega endurskipulagningu og
tekið til eftir hrun. Með öðrum
orðum gagnrýni fyrir að hafa
tekið til eftir partý sem ég hvorki
bauð í né var boðið í.
Ég kann að taka til, byggja upp
og endurskipuleggja. Ég hef tek-
ið að mér ýmiss vanþakklát störf
eftir hrun en alltaf reynt að standa
mig vel í þeim verkefnum sem ég
hef verið ráðinn til að leysa. Störf
mín hafa ekki alltaf notið vin-
sælda og það eru aldrei allir sáttir
þegar kröfur eru afskrifaðar. Það
hef ég hinsvegar aldrei gert með
persónulegan ásetning eða ávinn-
ing að leiðarljósi.
Í mínum huga er fólkið í land-
inu með mjög skýrar kröfur. Leið-
ið okkur út úr þessari kreppu.
Eyðið óvissu og skapið eitthvað
sem börnin okkar og barnabörn
geta notið góðs af til framtíðar. Á
sama tíma vil ég tryggja foreldr-
um okkar, ömmum og öfum þessa
lands, ánægjulegt ævikvöld.
Ég er kvæntur, fjögurra barna
faðir á Álftanesi með verðtryggt
íbúðarlán. Ég er fulltrúi fjöl-
skyldna í landinu. Í alþingiskosn-
ingum eigum við að geta valið
okkur starfsmenn sem við treyst-
um til að taka á hlutunum, fram-
kvæma og skapa. Með reynsluna
í farteskinu býð ég mig fram í 5.
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
Ég skal taka til, endurskipu-
leggja og byggja upp.
A far mínir tveir Magnús og Björgvin fæddust báðir í Reykjavík á fyrri hluta 20.
aldar en áttu um margt ólíka ævi.
Björgvin, sonur skipstjóra í Vestur-
bænum var á sínum tíma farsæll
knattspyrnumaður, og áberandi í
félagslífi borgarbúa á árunum eft-
ir stríð. Hann starfaði lengi sem
stórkaupmaður og var alltaf mikill
stuðningsmaður frjálsra viðskipta, utanríkis-
verslunar og afnáms hafta. Hann taldi mikilvægt
að gera hverjum manni kleift að njóta afraksturs
vinnu sinnar og dugnaðar.
Magnús var einn fjögurra sona einstæðrar
móður úr Þingholtunum. Á því
heimili þurfti að elta kolatrukkinn
til að grípa það sem af honum féll
og heimilistekjurnar voru drýgðar
með blaðasölu. Ef launin urðu einn
eyrir, gat móðir hans keypt efnisbút
og saumað svuntu sem hægt var að
selja á tíu aura. Með útsjónarsemi af
þessum toga tókst þeim að ná endum
saman. Afi taldi mikilvægt að allir
ættu að hafa jöfn tækifæri í lífinu og
að við Íslendingar ættum að gæta
vel að þeim efnaminni. Þannig fylgdi
lambakjötinu á sunnudögum oft lítið
erindi um misjafnar aðstæður fólks
til að sækja sér menntun.
Lífsbaráttan var um margt harðari á sínum
tíma, en hrunið fyrir fjórum árum skerpti hins
vegar mjög á umræðu um grundvallarþætti í
samfélagi okkar. Skyndilega áttuðum við Íslend-
ingar okkur á því að velferðin var ekki jafn sjálf-
sögð og áður. Jafnræði til menntunar, velferðin,
afnám hafta og mikilvægi utanríkisviðskipta
urðu heitustu málin í stjórnmálunum, rétt eins
og um miðja 20 öld.
Atvinnulíf og velferð
Undanfarin ár hef ég oft hugsað til þeirra Björg-
vins og Magnúsar. Ég hef viljað vinna að fram-
gangi stjórnmálaflokks sem lítur til sjónarmiða
beggja við mótun stefnu sinnar. Velferð og jafn
réttur allra til þjónustu verður ekki til án verð-
mætasköpunar, samkeppnishæfni atvinnulífs-
ins og frelsis til athafna. Á sama hátt byggir
sterkt atvinnulíf á öflugu velferðarkerfi og góðri
menntun. Þetta er kjarni jafnaðarstefnunnar –
og verður ekki í sundur slitið. Samfylking jafnað-
armanna verður að tryggja að hún sé valkostur
þeirra sem staðsetja sig á miðju íslenskra stjórn-
mála og leggja þessi sjónarmið að jöfnu.
Magnús Orri Schram
alþingismaður
Tveir afar
Þá og nú
Helgin 26.-28. október 2012