Fréttatíminn - 26.10.2012, Síða 38
VILTU VINNA
LEIKINN EÐA
BÍÓMIÐA?
KOMIN
Í BÍÓ!
SENDU SMS EST BOND
Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
FULLT AF AUKAVINNINGUM:
DVD - TÖLVULEIKIR
GOS O.FL.
199 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA
ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
9. HVER
VINNUR!
FJÖLDI
AUKAVINNINGA
SPILAÐU Í GEGNUM
HELSTU ATRIÐI BOND
MYNDANNA Í
MÖGNUÐUM SKOTLEIK.
É g stakk bara pínu af,“ segir Brynhildur glettin. „Maður verður að sinna því og sýna lit þegar manni er boðin ársdvöl við Yale.“ Leikskáldið
Paula Vogel bauð Brynhildi að vera eitt námsár við
leikritunardeildina í Yale og hún gat vitaskuld ekki
annað en þekktst boðið. „En ég vann líka með leik-
listardeildinni og var í tímum með leikstjórunum.
Tók bara smá skref út úr því sem var að gerast hérna
heima, bara til að bæta við mig og koma hress og kát
til baka,“ segir Brynhildur og bætir við að dvölin ytra
hafi verið frábær.
Leikkonan hefur ekki setið auðum höndum síðan
hún kom heim og er nú á fullu í æfingum fyrir Gull-
regn, nýtt íslenskt leikrit eftir Ragnar Bragason sem
verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu á fimmtudaginn.
Ragnar er að sjálfsögðu þekktastur sem kvikmynda-
leikstjóri og státar af öndvegismyndunum Börn og For-
eldrar auk þess sem hann leikstýrði öllu heila Vakta-
klabbinu, að bíómyndinni Bjarnfreðarson meðtalinni.
„Ég vann með Ragga í Stelpunum. Svo var ég með
honum í Heimsendi og er líka með honum núna í
kvikmyndinni Málmhaus,“ segir leikkonan sem kann
ákaflega vel við að vinna með Ragnari. „Hann er mesta
ljúfmenni í öllum heiminum. Hann er yndislegur.
Hann er grófur að utan en mjúkur að innan.“
Ást í björgunarsveit
Í Gullregni tekst Ragnar á við hráan sam-
tímann í mannlegu, broslegu en um leið
harmrænu verki um Íslendinga samtím-
ans. Sagan hverfist um Indíönu Jóns-
dóttur sem lifir á bótum þótt ekkert
ami að henni enda klár „kerfisfræð-
ingur“. Hún býr í blokk í Fellahverfi
þar sem hún er umkringd fólki af
erlendum uppruna sem hún fyrir-
lítur.
Sigrún Edda Björnsdóttir leik-
ur Indíönu. Halldóra Geirharðs-
dóttir leikur vinkonu hennar
og nágranna sem er í raun
öryrki. Hallgrímur Ólafs-
son leikur son Indíönu
og Brynhildur er pólsk
kærasta hans.
„Ég leik hana Dani-
elu, sem kemur frá Pól-
landi, þannig að ég er
svona samfélagslega
mikilvægi karakterinn
þarna í Gullregninu.“
Daniela leggur sig alla
fram um að verða nýtur
þjóðfélagsþegn og vegna
þess að hún er svo vel af
guði gerð og vill láta gott
af sér leiða starfar hún með
björgunarsveit.
„Í hjálparsveitinni kynnist hún manni, honum
Unnari Jónssyni, og þau fella saman hugi. Það er svo-
lítill sláttur á honum innan sveitarinnar og hún sér
ekki betur en þetta sé alveg bara stórkostlega heil-
brigður og meiriháttar einstaklingur. Hún telur sig
líka ljónheppna vegna þess að þau eru bæði barnlaus.
Þannig að þarna er bara mikill fengur vegna þess að
það eru engin börn og þá engin fyrrverandi á kant-
inum. En síðan kemur náttúrlega í ljós hvers vegna svo
er í pottinn búið,“ segir Brynhildur og skellir upp úr.
„Þetta fólk gæti átt gott líf saman en lífið er bara eins
og það er.“
Eins og fjölskylduboð
Brynhildur hefur ekki áður unnið i Borgarleikhúsinu
og stígur nú í fyrsta skipti á svið með leikurum eins
og Sigrúnu Eddu, Halldóru, Hallgrími og Halldóri
Gylfasyni þótt hún þekki þau öll vel. „Ég er svo ham-
ingjusöm í vinnunni. Þetta er svo yndislegt fólk og það
er svo gott að koma þarna að þetta er eins og að vera í
fjölskylduboði. Þetta er algjörlega frábær hópur. Það
var gaman að fá þetta tækifæri og þetta hentaði líka
svo vel þegar ég kom að utan. Að halda bara flakkinu
og ævintýrinu áfram.“
Brynhildur segir að Ragnar hafi unnið verkið mik-
ið til í spuna með leikurunum rétt eins og hann
gerði með Vesturporti í Foreldrum og Börnum
og sjónvarpsþáttunum Heimsenda. „Þá kem-
ur hann með hryggjarstykkið að verkinu
og leggur nokkurn veginn línurnar með
hvaða grunnþætti persónurnar hafa og
svo leggjum við af stað í ferðalag og
spinnum senurnar. Þetta tók hann allt
saman upp á myndband í sumar og
svo fór hann og skrifaði leikritið upp
úr þessum spuna. Þannig að við sitj-
um dálítið vel í karakterunum og
þekkjum þá vel. Enginn er ókunn-
ugur sínum texta og mikið til
er þetta það sem gerðist á
æfingum í vor áður en Raggi
fór og skrifaði leikritið í
sumar,“ segir Brynhildur
sem líkar þessi aðferð vel.
„Það sem gerir þetta svo
ofboðslega spennandi
er að maður kemur svo
mikið að sköpuninni
og það er skemmtilegt
að hafa unnið þetta í
sameiningu þótt þetta
sé vissulega leikrit eftir
Ragnar Bragason þá
eigum við svo vel heima
innan verksins.“
Þórarinn Þórarinnsson
toti@frettatiminn.is
Beint frá Yale í blokk-
aríbúð í Fellunum
Leikkonan Brynhildur Guðjónsdóttir fór á kostum í kvikmyndinni Okkar eigin Osló í fyrra en síðan
hefur lítið borið á henni. Eðlilega, kannski, þar sem hún skellti sér í ársnám við Yale-háskólann
í Bandaríkjunum. Hún er nú mætt aftur til leiks, fersk og eldhress, og fer með eitt aðalhlut-
verkanna í Gullregni, nýju leikriti eftir Ragnar Bragason. Þar leikur hún pólska konu sem finnur
ástina á Íslandi. Eða ekki.
Hin ljúfa og góða Daniela huggar unnusta sinn sem er ekki allur þar sem hann er séður.
Þetta fólk gæti átt gott líf saman
en lífið er bara eins og það er.
38 viðtal Helgin 26.-28. október 2012