Fréttatíminn - 26.10.2012, Qupperneq 40
Pósthús á spottprís
E
„Eigum við að kaupa það?“ sagði kon-
an um leið og sjónvarpsþulurinn lauk
lestri fréttar um liðna helgi þar sem
fram kom að fyrrum afgreiðsluhús-
næði Pósts og síma á Raufarhöfn væri
til sölu, þriggja hæða steinsteypt hús,
370 fermetrar – á þrjár og hálfa milljón
króna!
Húsið var byggt á uppgangstíma
Raufarhafnar, árið 1960, þegar síldar-
gróðinn flæddi um holóttar göturnar
og peningalyktin fyllti vitin. Kjallari
pósthússins er 106 fermetrar með
geymslum, snyrtingum og tæknirými.
Á neðri hæðinni er afgreiðslusalur og
með fylgja þjónustuborð og innrétt-
ingar frá þeim tíma er ríkisfyrirtækið
Póstur og sími rak þar sína þjónustu.
Salurinn er 133 fermetrar. Á efri hæð
hússins er 131 fermetra íbúð. Það fylgdi
sögunni að húsið væri prýðisgott, vel
íbúðarhæft en
þarfnaðist
viðhalds.
Af myndum að dæma er um reisu-
legt hús að ræða og að innan má sjá
afgreiðslu hins gamla þjónustufyrir-
tækis. Jafnvel stólarnir eru enn á sínum
stað. Veggir eru blámálaðir og ofnar
gulir, í þeim sterku litum sem voru í
tísku er við hjónakornin hófum búskap
á áttunda áratug liðinnar aldar. Eldhús-
innréttingin er í sama stíl, tómatsósu-
rauð, og hvít eldavél á sínum stað.
„Það væri svo sem nógu geggjað að
kaupa það,“ svaraði ég og leit á frúna
um leið og ég spurði hana hvað í ósköp-
unum við ættum að gera við pósthúsið
á Raufarhöfn, sem er nokkurn veg-
inn eins langt frá Kópavogi og komist
verður landleiðina. „Við gætum búið
á efri hæðinni og notað þá neðri sem
gistirými,“ sagði konan, eins og ekkert
væri sjálfsagðara en að við gerðum út
á túrista á Raufarhöfn.
Ég leyfði mér að taka vel í tillög-
una enda vissi ég að málið næði ekki
lengra. Það var bara söluverð þessa
stóra húss sem varð kveikjan að
skyndihugdettunni. Fram kom í frétt-
inni það mat fasteignasala að sambæri-
legt hús á höfuðborgarsvæðinu gæti
kostað 80 milljónir króna. Jafnframt
sagði núverandi eigandi hússins að
gott væri að búa í þorpinu. Fræg eru
þau ummæli fyrrum bæjarstjóra í
okkar sveitarfélagi að gott sé að
búa í Kópavogi og ekki efa ég að
gott sé að búa á Raufarhöfn.
Pósthúsið er ekki eina hús-
ið sem fæst á góðu verði – eða
jafnvel ókeypis – á Raufar-
höfn. Í ársbyrjun var auglýst að
gamla kaupfélagshúsið á staðn-
um fengist án endurgjalds. Það
skilyrði var eitt sett nýjum eig-
endum að þeir gerðu húsið upp
að utan innan þriggja ára, í samráði við
byggingarfulltrúa staðarins. Gróðinn
fólst í því að bæta bæjarbraginn.
Fasteignaverð á Raufarhöfn segir til
um stöðu þessarar fornfrægu verstöðv-
ar. Fólki hefur stöðugt fækkað. Ákall
íbúanna eftir aðstoð hins opinbera
hefur ekki farið fram hjá öðrum lands-
mönnum. Óljóst er hins vegar hvað
er til ráða. Raufarhöfn á sér merka
og mikla sögu. Þar hefur verið lög-
giltur verslunarstaður frá árinu 1883
en frægust er Raufarhöfn sem síldar-
staður enda hófu Norðmenn síldveiðar
þaðan í reknet árið 1900. Á næstu ára-
tugum stækkaði þorpið ört. Afkoma
manna byggðist á söltun, bræðslu og
tilheyrandi þjónustu við síldarútgerð-
ina. Síldarverksmiðjur ríkisins keyptu
síldarbræðslustöð Norðmanna árið
1934. Verksmiðjan malaði gull fyrir
þorpið og ekki síður þjóðarbúið allt
næstu áratugi en árið 1944 var Rauf-
arhöfn orðin næst stærsta útgerðar-
stöð landsins, aðeins Siglufjörður
stóð framar. Íbúar voru flestir á sjötta
hundrað og aðkomufólkið margt, vel
yfir tvö þúsund og á fjórða þúsund í
landlegum þegar sjómenn á rúmlega
400 bátum bættust í hópinn. Þá var
stuð á böllum í samkomuhúsinu. Æv-
intýrinu lauk með hvarfi síldarinnar
árið 1967. Síðan hefur leiðin legið nið-
ur á við.
Pistilskrifarinn kom til Raufarhafnar
ári síðar til þeirrar sumarvinnu að mála
Raufarhafnarvita sem trónir á Höfð-
anum, náttúruprýði staðarins. Þá var
dauflegt um að litast, verksmiðuglamr-
ið þagnað sem og köll og hróp fólksins
á síldarplönunum. Örlög Raufarhafnar
eru um sumt svipuð og síldarbæjarins
mikla, Siglufjarðar. Þar tókst þó, eftir
langa mæðu og mikla mannfækkun,
að snúa vörn í sókn. Það er ekki síst
fyrir einkaframtak að Siglufjörður,
einkum hafnarbyggðin, er orðin ein-
hver sú fallegasta á landinu og laðar að
sér ferðamenn. Hvort svipað er hægt
að gera á Raufarhöfn skal ósagt látið
en alls ekki vonlaust. Vonandi sjá bjart-
sýnir menn sér hag í að kaupa póst-
húsið þar á spottprís og gera eitthvað
skemmtilegt í framhaldinu. Sennilegt
er enn fremur að einhver hafi nælt sér
í gamla kaupfélagið. Vonandi nær það
fyrri virðingarsessi. Þótt nauðsynlegt
geti verið að leita tímabundinnar að-
stoðar hins opinbera er affarasælla til
lengdar að einstaklingar og fyrirtæki
standi að framkvæmdum og uppbygg-
ingu atvinnulífs.
Ekki má gleyma því að margir sjá
fyrir sér uppbyggingu norðaustur-
horns landsins þegar siglingaleiðin í ís-
hafinu, norðan Rússlands til Asíu, opn-
ast. Svo eru það bjartsýnismennirnir
sem huga að olíuvinnslu á Drekasvæð-
inu, tiltölulega skammt undan. Rætist
þeir draumar þarf að sækja þjónustu
stystu leið í land. Þar kemur Raufar-
höfn inn í dæmið, ekki síður en önnur
pláss, með sína góðu hafnaraðstöðu.
Það væri kannski ekki svo vitlaust að
taka konuna á orðinu og splæsa í póst-
húsið. Fasteignaverð gæti átt eftir að
hækka hressilega á svæðinu.
Ógleymdur er svo Núbó hinn kín-
verski, verðandi bóndi á Grímsstöðum
á Fjöllum. Eitthvað verður ríka fólkið
sem hann ætlar að flytja inn að gera
sér til dundurs, annað en að spila golf
á aðventunni. Er ekki trúlegt, miðað
við önnur plön hans, að hann leggi
hraðlestarteina út að sjó – til dæmis til
Raufarhafnar?
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Atvinnutækifæri í Evrópu
Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu
í Ráðhúsi Reykjavíkur 26. og 27. október.
Föstudagur 26. október kl. 16:00 - 19:00.
Laugardagur 27. október kl. 12:00 - 17:00.
Einkum er eftirspurn eftir fólki úr eftirtöldum starfsstéttum:
Mikil eftirspurn er eftir flestum starfsstéttum í byggingariðnaði svo sem arkitektum, húsasmiðum, rafvirkjum, málurum, járnamönnum,
pípulagningarmönnum ofl. Einnig eru í boði störf fyrir bílstjóra, kranamenn, bifvélavirkja, vélvirkja, í iðnaði og vörustjórnun.
Áfram er eftirspurn eftir verkfræðingum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og fólki með menntun í hugbúnaðargeiranum.
Eftirtalin fyrirtæki kynna laus störf og taka á móti umsóknum:
Frá Noregi koma fulltrúar Dips ASA, Stongfjord Vekst AS, Network Scenario Automation AS, Helse Personal AS, Xtra personell Care,
Solund Verft AS, Rett Bemanning AS og CBA Fagformidling.
EURES ráðgjafar frá Noregi, Svíþjóð, Hollandi og Litháen kynna atvinnutækifæri í sínum löndum.
Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða
beint við atvinnurekendur. Sjá má hluta þeirra starfa sem í boði eru á síðunni www.eures.is með því að smella á „Laus störf“.
40 viðhorf Helgin 26.-28. október 2012