Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 42
2 ABC BARNAHJÁLP
Hjónin Hannes Lentz og Guðrún Margrét Pálsdóttir stofnuðu ABC barnahjálp ásamt góðu fólki árið 1988. Þau segja það
vera köllun sína að búa fátækum götubörn-
um um gjörvalla veröld gott heimili með
Guðs hjálp og góðra manna.
Hugsjónin kviknaði á ferðalagi
„Það er ofboðslega mikil ábyrgð að halda
utan um allt þetta starf og öll börnin,“
segir Guðrún Margrét sem hefur frá
stofnun samtakanna séð um framkvæmda-
stjórn og verið almennt við stjórnvölinn.
Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt
og skömmu eftir útskrift fór hún í hnatt-
ferð sem markaði djúp spor í líf hennar. „Í
þeirri ferð kviknaði hugsjónin. Að komast
svona í bein tengsl við fátæktina og sjá
hvað fátækt fólk hefur litla möguleika,
börn sem sofa úti á götu og eiga ekki mat.
Það verður enginn samur eftir svoleiðis
reynslu.“
Guðrún tók að kaupa bækur og dreifa
þeim á meðal fólks í fátækrahverfunum.
„Mér fannst svo átakanlegt að fólk gæti
ekki keypt sér bækur, það var eitthvað
sem skipti mig svo miklu máli.“ Hún segir
að raunverulega áfallið hafi komið þegar
hún áttaði sig á því að margir væru ólæsir.
„Þá tók ég ákvörðun, ég ætlaði að klára
hringinn, koma heim og safna fé og halda
síðar aftur út til þess að kenna fólki að
lesa.“ Fjölskyldan reyndi ítrekað að telja
henni hughvarf en hún segir að slíkt gangi
sjaldnast þegar hún hafi bitið eitthvað í
sig. Henni varð þó ekki úr fyrirætlunum
af annari ástæðu. Viku eftir heimkomuna
kynntist hún manni, Hannesi Lentz.
Örlögin tóku völdin
Hannes hóf nám í viðskiptafræði en lauk
því ekki þar sem hann hóf störf innan
tryggingageirans og gekk mjög vel í starfi.
„Ég hafði ekki sömu hugsjón í byrjun og
Guðrún en átti ekki annarra kosta völ en
að taka þátt í starfinu með henni þar sem
við vorum jú gift“ segir Hannes brosandi.
„Það kom sér vel að ég hafði fjárfest í hús-
næði sem við gátum síðar nýtt undir starf-
semi ABC. Með fríu húsnæði og eintómri
sjálfboðavinnu gátum við þannig haldið
öllum kostnaði í lágmarki fyrir ABC.“
Guðrún Margrét segir að það hafi ekki
verið auðveld ákvörðun sem hún stóð
frammi fyrir þegar hún kynntist Hann-
esi, „Allt í einu stóð ég frammi fyrir mjög
erfiðu vali, að elta drauma mína og það
hlutverk sem að ég hélt innilega að mér
hefði verið ætlað eða það að setjast að á Ís-
landi.“ Það myndi seint teljast hefðbundin
leið sem að Guðrún beitti við ákvörðunar-
tökuna. „Ég hafði fyrir löngu falið Guði líf
mitt, það er algjörlega í hans höndum og í
bæn óskaði ég eftir leiðsögn. Að því búnu
tók ég sex peninga. Ég sagði við Guð að ef
fiskarnir kæmu upp færi ég utan en annars
ekki. Það sem gerðist var greinilegt merki
um hvað ég ætti að gera, það kom ekki upp
ein einasta fiskahlið. Ég vildi þó vera alveg
viss svo ég tók upp Biblíuna mína. Með
lokuð augun opnaði ég hana og benti með
fingrinum ákveðið. Þegar ég opnaði augun
var þar komið annað og mjög skýrt teikn.
Undir fingrinum stóð, „farið ekki. Ákvörð-
unin hafði verið tekin fyrir mig” segir
Guðrún Margrét og heldur áfram: „Þarna
hafði ég í höndum mér framtíðina, annars
vegar það sem ég trúði einlæglega að væri
mitt hlutverk í lífinu, og svo manninn sem
ég hafði nýverið kynnst og elskaði. Það er
nefnilega svo að oft telur maður sig hafa
svörin, telur sig vita hvað manni sé ætlað
án þess að hafa einhvern tímann litið heild-
armyndina augum. Þessi tvö merki um að
ég ætti að vera hér heima voru svo skýr, ég
hefði aldrei getað horft fram hjá þeim.“
Í sjálfboðastarfi í tuttugu og tvö ár.
Hjónin giftu sig í maí tæpu ári eftir heim-
komu Guðrúnar Margrétar. Ári eftir það
var ABC stofnað og hjónin segja að það
hefi hreint ekki verið auðvelt, þrátt fyrir að
skrifstofuhúsnæðið hafi verið til reiðu sem
þau höfðu fjárfest í. „Guðrún Margrét vann
myrkranna á milli,“ segir Hannes. „Hún
vaknaði oft upp á næturnar og fór að sinna
einhverju á skrifstofunni, þetta var ótrú-
legt álag á fjölskylduna“ en saman eiga þau
hjónin fjögur börn. „Konan mín var í sjálf-
boðavinnu fyrir ABC í yfir tuttugu og tvö
ár og bar allan þungann af starfinu. Það
komu auðvitað og fóru aðrir sjálfboðaliðar
en við þurftum alltaf að standa við okkar
skyldur gagnvart skjólstæðingum okkar.
Þegar mest hefur verið, höfum borið
ábyrgð á framtíð 13 þúsund barna. Oft
hefur ABC gengið í gegnum þrengingar og
þá hefur reynt enn meira á.“
Hannesi er greinilega mikið niðri fyrir
og Guðrún tekur því við og útskýrir að
Hannes hafi alltaf staðið þétt við bakið
á starfinu fjárhagslega og verið traustur
bakhjarl frá upphafi meðal annars með fríu
húsnæði, rafmagni, hita og bíl auk þess
að vera eina fyrirvinna fjölskyldunnar á
meðan hún fékk að vera í sjálfboðavinnu.
Árið 2004 seldu þau hjónin skrifstofuhús-
næðið í Sóltúni og keyptu annað minna
í Síðumúla. Á sama tíma höfðu þau líka
ákveðið að stækka við heimilið sitt og
fluttu í annað hús þar sem það gamla var
löngu orðið of þröngt fyrir sex manna fjöl-
skylduna og ýmsa gesti utan úr heimi sem
gistu hjá þeim. Við gátum skipt nokkurn
veginn á sléttu. Fjölmiðill nokkur hefur
gert þetta að umfjöllunarefni sínu. „Okkur
finnst leiðinlegt að rýrð skuli hafa verið
varpað á starfið hjá barnahjálpinni,“ segir
Guðrún Margrét og Hannes bætir við að
kannski sé best að láta það kyrrt liggja,
„þessi grein var ekki svaraverð.“ „Vel-
gengni okkar í einkalífinu stafar án vafa af
því að við höfum lært að gefa“ segir Guð-
rún Margrét. „Ég ólst upp við það að faðir
minn gaf tíund af öllum tekjum sínum og
ég hef frá unglingsárum gert það sama.
Það einhvern veginn blessast allt þegar
maður gefur.“
„Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir
umfanginu á starfi ABC, þetta er ekki eins
og að borga fyrir áskrift að tímariti. Þetta
er raunverulegt líf einhvers, framtíð ein-
staklings í höndum þínum. Slíku höfum
við aldrei tekið létt, þetta er gríðarleg
ábyrgð.“ Hannes segir að það hafi komið
tímabil þar sem álagið hafi verið slíkt að
hefði hann haft eitthvert val hefði hann vilj-
að bakka út en það hafi aldrei verið í boði.
Með stækkandi starfi varð svo ekki komist
hjá því að ráða fasta starfsmenn. „Upphafið
var að móðir mín kom einn daginn með
10.000 kr. og sagði að þetta ætti að fara
í launasjóð ABC“ segir Guðrún Margrét
og bætir við að með tilkomu fastráðinna
starfsmanna séu hlutirnir nú auðveldari
en áður. Við stofnuðum síðar Vinafélag
ABC sem sér um rekstrarhlið ABC. Við
leggjum kapp á að hafa starfið gegnsætt
og skothelt. Fjárreiður og bókhald eru á
sitt hvorri hendinni, KPMG sér um árs-
reikningagerð og ársreikningum er skilað
til Ríkisendurskoðunar auk þess sem þeir
eru aðgengilegir á heimasíðu starfsins.
Aðspurður út í trúartenginguna í starf-
inu segir Hannes aldrei neitt annað hafa
komið til greina en að byggja starfið upp
á kristnum gildum. „Það lá beint við, Guð-
rún hefur verið kristin frá unglingsárum
og ég hef einnig falið líf mitt Guði.“
„Oft hefur reynt á trúna í starfsemi
ABC, núna síðast í þessum mánuði þegar
neyðarástand skapaðist hjá ABC í Pak-
istan. Þar var búið var að reisa veggi fyrir
heimavistarskóla en vantaði enn þakið og
vetur að skella á. Engir peningar voru í
hendi og senda þurfti tvær milljónir króna
strax til þess að byggja þakið. Börn og
starfsfólk höfðu beðið til Guðs um lausn í
Upphaf ABC og staðan í dag
Hrunið haft afar mikil áhrif á starfið
Guðrún Margrét og Hannes segja ekki koma til
greina að hætta fyrr en öllum börnum hefur verið
komið í skjól
Frá starfinu í Pakistan
Sjálfboðaliðar að störfum á skrifstofu ABC