Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.10.2012, Page 47

Fréttatíminn - 26.10.2012, Page 47
Haustið 2006 hóf ABC barnahjálp hjálparstarf í Nairóbí. Þórunn Helgadóttir og eiginmaður hennar, Kenýamaðurinn Samuel Lusiru Gona, veita starfinu forstöðu. Í miðju Mathare fátækrahverfinu, sem er eitt stærsta fátækrahverfi borgarinnar, reka þau heimavist fyrir 180 börn. Stór hluti barnanna á heimavistinni eru fyrrverandi götubörn sem sváfu á götunni, betluðu, stálu og sniffuðu lím. Þessi börn stunda nú námið af kappi og umbreytingin á þeim er algjört kraftaverk. Auk reksturs heimavistarinnar eru um 500 fátæk börn í hverfinu studd til að ganga í skóla. Í skólanum fá þau læknisþjónustu, heitan mat og skólabúning, auk þess sem þau fá hjálp við heimanám og ýmsa afþrey- ingu eftir skóla í skólaathvarfi sem rekið er af ABC. Í byrjun desember 2011 var farið ásamt 7 sjálfboðaliðum frá Íslandi til Loitoki- tok og höfu þau sér til aðstoðar Masaia konu sem er menntuð sem kennari en er komin á eftirlaun. Hún hefur verið að hýsa ungar stúlkur á heimili sínu sem flúið hafa að heiman til að forðast giftingu og/eða umskurn. Aðstoðaði hún við túlkun í við- ræðum við þorpshöfðingja með það fyrir augum að stofna ABC skóla og fá Masai- amennina til að senda stúlkurnar frekar í skóla en að gifta þær. Fundurinn tókst með ágætum og samþykkti þorpsráðið þetta og útvegaði land fyrir skólann. Í janúar 2012 var síðan hafist handa við byggingu skól- ans. Þörfin er afar mikil og ganga nú bæði drengir og stúlkur í skólann og er fjöldinn í dag þegar orðinn 107 nemendur og sjá inn- fæddir kennarar um alla kennslu. ABC styður nú alls um 800 börn í Kenýa. Naíróbí, Kenýa Naíróbí er ein hættulegasta höfuðborg heims. Af þremur milljónum íbúa, lifir hið minnsta helmingur í fátækrahverfum og atvinnuleysi er yfir 70%. Millistéttin virðist engin heldur búa langflestir við ömurleg kjör. Í fátækrahverfunum er atvinnuleysi yfir 90% og eykst tíðni HIV smita stöðugt. Á aðeins einum ferkílómetra búa um 3000 manns, skólplækir liggja milli kofaskrifla og rusl hrúgast upp um allt. Hér gildir frumskógarlögmálið. Hver bjargar sjálfum sér og lifað er fyrir einn dag í einu. Allt er til sölu og meðfram moldarvegum liggja sölubásar með þýfi, skemmdu grænmeti, brotnum diskum og fleiru sem enginn hefur efni á að kaupa. Vændi er líka mjög algengt og réttlætt. Afkoman gefur mat handa fjölskyldunni það kvöldið, HIV er vandamál morgundagsins. Spillingin hefur tröllriðið þjóðfélaginu. Ríkið lofar ókeypis grunnskólamenntun en skólabúningar eru í staðinn dýrir og leiga á skólaborði kostar 2500 krónur á ári. Sólarhringur á ríkisspítalanum kostar um 40.000 krónur og er um tveggja sólarhringa bið . Fyrir fólk sem þénar undir 70 krónum á dag að jafnaði er staðan afar slæm. Víta- hringur vonleysis hefur skapast í samfé- laginu, hringur sem erfitt er að rjúfa. Afleiðingar hrunsins Mikil neyð hefur skapast undanfarið vegna hrunsins á Íslandi í starfi okkar í Kenýa Til að áfram sé hægt að veita börnunum sem nú eru í skólum og heimavist á okkar vegum í Naírobí viðunandi þjónustu er brýn þörf á styrktaraðilum. Bæði styrktar- foreldrum og velunnurum, svo hægt sé að sinna þessu starfi sómasamlega. Starfið hefur verið skorið niður á allan mögulegan hátt og má segja í dag að börnin lifi við mikinn skort í skólanum, sem er ekki það sem ABC hafði í huga þegar skólinn var stofnaður. Allt hefur hækkað og viðhald á bílum, byggingum og lóð hefur ekki verið hægt að sinna að neinu leyti og ástandið er allt orðið afar vont. Hugsjón okkar var og er að öll okkar börn séu örugg um að við mætum lág- marks þörfum þeirra að öllu leyti. Neyðarkall til þjóðarinnar Við sendum út neyðarákall til okkar þjóðar núna. Við stöndum frammi fyrir því að börnum okkar verði vísað úr skóla og þau fái ekki áframhaldandi læknisþjónustu komi ekki fjármagn inn í starfið afar fljótt og þörf er á að lágmarki 3,5 milljónum króna hið allra fyrsta. Mánaðarleg þörf til að halda starfs- ins Kenýa í gangi er þrjár milljónir, sjö hundruð og fimmtíu þúsund. Framlög frá styrktarforeldrum eru í dag 2,3 milljónir króna og er því mismunur uppá rétt um 1,5 milljónir króna á mánuði, en þessi mikli mismunur er mikið tilkomin vegna gengis- falls íslensku krónunnar í hruninu. Það segir sig því sjálft að ástandið er afar erfitt. Við viljum bjóða þér kæri samborgari okkar að gerast velunnari Kenýa með mánaðarlegu framlagi að eigin vali til að brúa bilið. Reikningsnúmer Kenýa reiknings okkar er: 344-13-44005 kennitala 690688-1589  naíRóbí Kenýa BARNAHJÁLP ABC 7 Brýn þörf á að brúa bilið neyðarákall Auk reksturs heimavistarinnar eru um 500 fátæk börn í hverfinu studd til að ganga í skóla. Í skólanum fá þau læknisþjónustu, heitan mat og skólabúning, auk þess sem þau fá hjálp við heimanám og ýmsa afþrey- ingu eftir skóla í skólaathvarfi sem rekið er af ABC.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.