Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 58
50 heilsa Helgin 26.-28. október 2012
– Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
12
46
0
9/
12
www.lyfja.is
Lægra
verð
í LyfjuStrepsils jarðarberja
Áður: 1.299 kr. Nú: 1.099 kr.
15%
afsláttur
Gildir í október 2012.
matargerðin
byrjar á
gottimatinn.is
Á nýjum vef Gott í matinn nnurðu einfaldar,
óknar, spari- og hversdagsuppskriftir fyrir öll
tilefni. Sjáðu spennandi hráefnisnotkun og
girnilegar hugmyndir frá matarbloggurum.
Brettu svo upp ermar, hnýttu á þig svuntu og
gerðu eitthvað girnilegt.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
kolbrún grasalæknir breytingaskeiðið er blómaskeið
Breytingaskeið karla
feimnismál
Kolbrún grasalæknir segir að mikil feimni einkenni umræðuna um breytingaskeiðið. Það sé
órjúfanlegur raunveruleiki, ekki ólíkt unglingsárunum. Hún vill benda á að tímabilið einkennist
ekki síður af tilfinningunum og taugakerfinu en almennri líkamsstarfsemi og fyrir karlmönnum sé
það oft meira feimnismál. Þeim sé ekki kennt það að hlusta á og spila út tilfinningum sínum.
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir segir að breytingaskeiðið sé karlmönnum oft
meira feimnismál en konum. Ljósmynd/Hari
b reytingaskeið kvenna og karla er í grunninn ekki svo ólíkt, það þarf að veita
hvoru tveggja athygli og útskýra
fyrir fólki að breytingaskeiðið, eða
blómaskeiðið, líkt og ég kýs að
kalla það snýst ekki eingöngu um
hormón, heldur líka taugakerfið
og tilfinningarnar.“
Þetta segir Kolbrún Björnsdóttir
grasalæknir en hún vill vekja
athygli á því að breytingaskeiðið
þurfi ekki að vera neitt sem að fólk
þurfi að hræðast, heldur skemmti-
legt og gefandi tímabil ef réttar
ráðstafanir séu gerðar. Hún segir
breytingaskeið karla falið sjónum
almennings og þyki feimnismál.
Körlum sé oftar en ekki kennt að
tilfinningasemi sé kvenleg og þar
af leiðandi óæskileg þeim.
„Munurinn á milli kynjanna felst
einna helst í því að breytingarnar
eru hægari hjá körlunum en kon-
unum, það er hormónarnir minnka
hægar. „Hjá konum gerist þetta
svona allt í einu eftir fertugt og
er því mun dramatískara. Karlar
byrja fyrr, eða um 35 ára og te-
stósterónið hjá þeim dregst hægar
saman.“
Kolbrún segir það mikilvægt
að útskýra fyrir fólki hvað felst í
þessu tímabili og hvað það geti
gert til þess að gera það sem þægi-
legast og auðveldast, „Það er heil-
margt sem að hægt er að gera fyrir
taugakerfið. Drekka til dæmis
minna kaffi, fara snemma að sofa,
hreyfa sig og stunda slökun. Við
vitum þetta allt. Fæstir gera sér þó
grein fyrir mikilvægi þess í sam-
bandi við breytingaskeiðið. Einnig
eru til margvíslegar jurtir sem
nota má. Ef þú hugsar um að gera
þig sterkari verða breytingarnar
um leið auðveldari. Ef ekki er
bókað mál að þetta verður erfitt.“
Hún segir að mörg hjónabönd
þoli illa álagið sem að fylgir breyt-
ingaskeiðinu, mörg hjón verði
pirruð og þreytt og vita ekkert
endilega út af hverju. Eins finna
einstaklingar á breytingaskeiði
oft fyrir depurð og tengja það ekki
endilega því. Það getur valdið
miklum misskilningi og togstreitu
í samböndum. „Það er mikilvægt
að hlusta á líkamann og finna út
hvað það er sem að þú þarft, ef
við leyfum okkur bara að fara í
gegnum þetta tímabil þá getur
það verið yndisleg reynsla. Til er
það fólk sem að ekki leyfir sér að
fara í gegnum þetta tímabil og ber
þess líkamleg merki, upp safnast
fita á skrítnum stöðum, til dæmis
aðeins um miðbik magans, eða
fyrir neðan naflann. Brjóstkassinn
verður þaninn og stór. Þetta eru
stíflur. Ef orkunni er leyft að flæða
gerist eitthvað undursamlegt.”
Kolbrún segir að breytinga-
skeiðið ætti að vera eitthvað til
þess að hlakka til. „Lífið verður
öðruvísi, öll næmni eykst og þú
ferð að skynja heiminn öðruvísi.
Það er mjög algengt að fólk sem að
kemur í gegnum breytingaskeiðið
fái oft andann yfir sig í listum, fólk
sem að hefur kannski aldrei fundið
fyrir því áður að langa að skrifa
eða mála tekur upp á því í kringum
þetta tímabil, viskan er orðin svo
mikil.“
Hún segir tímabært að láta
feimnina sem einkennir tímabilið
ekki ráða för lengur. „Breytinga-
skeiðið er eins og að verða ung-
lingur aftur og líkt og unglings-
árin er það órjúfanlegur þáttur
tilverunnar okkar. Það getur tekið
allt að tíu ár og þess vegna er ekki
hægt að horfa fram hjá því.“
Kolbrún bendir á að mikilvægt
sé að vera meðvitaður, upplýstur
og ófeiminn að takast á við tilfinn-
ingar sínar. „Þá opnast eitthvað
nýtt.”
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is