Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 62
54 bílar Helgin 26.-28. október 2012  reynsluakstur Volkswagen up! 20% MINNI bensíneyðsla á 90 en á 110 km hraða. Arion banki býður nú kaupleigu og bílalán til að fjármagna bílakaup. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu njóta hagstæðra kjara og geta sparað sér töluverða fjármuni. ÁRSAÐILD AÐ FÍB FYLGIR ÖLLUM SAMNINGUM Á arionbanki.is finnur þú reiknivél sem sýnir með einföldum hætti muninn á þeim valkostum sem í boði eru. HAGKVÆM BÍLAFJÁRMÖGNUN Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð amerísk heilsársdekk - stærðir 31- 44 tommur - slitsterk - neglanleg - má míkróskera - frábært veggrip Gott verð! fyrir flestar stærðir jeppa og jepplinga Skjót og góð þjónusta! Dekkjaverkstæði á staðnum. Bjóðum alla almenna dekkjaþjónustu. 2012-10 Dekk 100x100mm.indd 1 23.10.2012 14:33:00 Kia cee‘d Sportswagon kynntur Askja, umboð Kia, kynnti fyrr í þessum mánuði nýjan Kia cee‘d Sportswagon. Kia cee‘d kemur í tveimur útfærslum, annars vegar sem fimm dyra hlaðbakur sem kom á markað í vor, og hins vegar sem Sportswagon sem tekur við af fyrri kynslóð langbaksins. Sportswagon er boðinn með tveimur dísilvélum 1,4 og 1,6 lítra sem skila 90 og 128 hestöflum. Farangursrýmið er 528 lítrar og hægt er að stækka það í alls 1642 lítra ef aftursætin eru felld niður. Bíllinn er með 7 ára verksmiðjuábyrgð, eins og allir nýir Kia bílar. Sportswagon er fram- leiddur í verskmiðju Kia í Zilina í Slóvakíu sem mun framleiða um 285.000 Kia bíla á þessu ári. Á síðu Öskju segir: „Nýju Kia cee‘d bílarnir hafa breyst mikið í útliti og aksturseiginleikum, auk þess sem þeir eru búnir nýjum aflmiklum en um leið eyðslugrönnum og umhverfismildum vélum. Báðar gerðirnar búa yfir kraftalegum línum og fáguðum formum. Falleg díóðuljós einkenna nú cee‘d að framan auk þess sem báðar gerðirnar eru lengri og breiðari en forverarnir en verða 1 sm. lægri. Innanrýmið þykir mjög fallegt og sportlegt, þar sem efnisnotkun er vönduð og tækjabúnaður ríkulegur.“ V olkswagen up! er nýjasta út-spil þýska bílaframleiðand-ans og hefur fengið fádæma góða dóma og var til að mynda kosinn bíll ársins hjá breska bíla- tímaritinu What Car?. Volkswagen up! er fjögurra manna og því aðeins fyrir litlar fjölskyldur eða sem aukabíll á heimili. Hann er fádæma sparneytinn, eyðir bensínvélin aðeins 4,1 lítra á hverja hundrað kílómetra í blönduðum akstri, sem er með því besta sem gerist í bílaheiminum. Hann drepur á sér á ljósum og sparar þannig óþarfa bensíneyðslu og mengar minna. Bíllinn sem ég reynsluók var beinskiptur. Til þess að stuðla að sem minnstri eldsneytiseyðslu gef- ur bíllinn ökumanni merki um hve- nær eigi að skipta um gír og komst ég að því að ég er sennilega alltaf að þenja vélina of mikið og keyri í of lágum gír. Undir venjulegum kring- umstæðum hefði ég alltaf keyrt í einum gír lægra en skilaboðin gáfu til kynna og er þar ef til vill komin skýringin á því hvers vegna mér tekst ekki að keyra minn eigin bíl, Volkswagen Sharan, á þeirri eyðslu sem hann er gefinn upp með. Ég mun tvímælalaust endurskoða gír- skiptingar mínar héðan í frá því ekki er bensínið gefins. Skottið er rúmgott af svona litlum bíl að vera. Það er djúpt og er hægt að stækka það enn meira með því að leggja aftursætin niður. Börnin sáu ágætlega vel út um afturgluggana en ekki er hægt að renna þeim niður. Þeir opnast út með smellu. Volkswagen up! kemur vel út í árekstraprófum, fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá Euro NCAP, sem er evrópsk stofnun sem gerir öryggispróf á bílum. Staðalút- búnaður inniheldur meðal annars ABS bremsukerfi, sem gerir bílinn öruggari og kemur í veg fyrir að hjólin læsist við snögga hemlun. Einnig eru loftpúðar bæði fyrir ökumann og farþega. Bíllinn sem ég prófaði er ódýr- asta útgáfan og kostar rétt innan við 2 milljónir sem þykir ekki mikið fyrir nýjan bíl. Unglingsdóttirin kvartaði hins vegar undan skorti á aukabúnaði og fannst ansi rýrt að hafa ekki einu sinni spegil innan á sólskyggninu, hvorki fyrir farþega né ökumann. Þessi bíll gerir svo sem það sem hann þarf að gera, en svo sem ekki mikið meira. Enda er verðið eftir því. Nýr Kia cee‘d Sportswagon var frumsýndur hjá Öskju fyrr í þessum mánuði. Ódýr, öruggur og sparneytinn smábíll Nýjasta útspil Volkswagen heitir Up! og er fjögurra manna sparneytinn smábíll á góðu verði sem gerir allt sem hann þarf að gera en ekki mikið meira en það. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.