Fréttatíminn - 26.10.2012, Side 64
Helgin 19.-21. október 201256 tíska
Stígur upp úr hverSdagSleikanum í SparidreSSið með Sömu flíkinni
Stíllinn er
einfaldur en töff
Hversdagsdressið Sparidressið
„Það sem heillaði mig við kjólinn var hvað hann er flottur í sniðinu. Hann er opinn í bakið og „loose“ og svo elska ég
allt sem er hvítt,“ segir Ingunn Sigurðardóttir, 19 ára nemandi í Menntaskólanum við Sund, sem heldur mikið upp
á hvíta kjólinn sinn sem hún keypti í Boston í sumar á 60% afslætti í versluninni LF Stores. „Ég notaði kjólinn mikið í
sumar, enda sumarlegur og fínn. Það er auðvelt að breyta kjólnum eftir því við hvað ég para hann, og peysa yfir og
strigaskór við gera hann hversdagslegan. Ef ég klæðist honum við hælaskó, þá verður hann mjög fínn og flottur til
að fara á ball, en svo er einnig möguleiki að fara í „crop top“ og pels við og er hann þá tilvalinn í bæinn á veturna.
Stíllinn minn er frekar einfaldur en töff. Ég er meiri gallabuxnatýpa hversdagslega en þegar fer ég eitthvað fínt
þá elska ég að vera í pilsi eða kjól við töff jakka og mikið af skarti. Fötin mín kaupi ég helst í Topshop, All Saint og
Urban Outfitters, en eftir að ég kynntist dr.deninm þá kaupi ég aðeins gallabuxurnar mínar þar.“
All Saints
LF Stores
River Island
Urban Outfitters
Útimarkaður á Spáni
Jeffrey Campbell
LF stores
Topshop
Friis And Company
Nostalgía
Guðmundur
Jörundsson
frumsýnir
nýju fata-
línuna Jör
á morgun,
laugardag.
Ný framsækin fatalína frá
Guðmundi Jörundssyni
Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson hefur
hannað fatnað fyrir Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar um tíma en á morgun, laugardag, mun hann
frumsýna nýja vor- og sumarlínu undir merkinu Jör by
Guðmundur Jörundsson á efstu hæðinni í Höfða-
torgi. „Þetta er nýtt merki undir nýju nafni og mun
eingöngu vera vandaður herrafatnaður,“ segir Guð-
mundur. „Línan er ágætlega stór, eitthvað í kringum
tuttugu „átfitt“ og verður hún seld í Herrafataverslun
Kormáks og Skjaldar þegar líða fer á vorið.“
Guðmundur mun þó ekki hætta að hanna
undir merki Kormáks og Skjaldar en
Jör-fatalínan verður mun framsæknari, að
hans sögn. „Kormáks og Skjaldar línan er
miklu klassískari og er ekki árstíðabundin
tískuvara eins og Jör er. Við ætlum að reyna
að koma nýju línunni á framfæri erlendis og
reiknum með að sýna hana á tískuvikunni í
Kaupmannahöfn í febrúar.“
Myndabók með
verkum tíu ís-
lenska hönnuða
Icelandic Fashion Design
er ný og vönduð ljós-
myndabók eftir breska
ljósmyndarann og stílist-
ann Charlie Strand, sem
inniheldur myndaþætti
og umfjöllun tíu íslenska
hönnuða. Þessir
tíu hönnuðir eru
Steinunn, Bóas,
Eygló, Royal
Extreme, ELM,
Dead, Mundi,
Vera Þórðar-
dóttir, E-Label
og Arna Sigrún,
sem öll búa
yfir sérstökum
höfundareinkennum.
Bókin gefur sterka mynd
af íslenskri tísku eins og
hún er í dag og er þessi
bók mikilvæg heimild
um þennan iðnað sem
fatahönnun er á Íslandi.
Bókin kom í verslanir fyrr
í þessari viku og kostar
6.990 krónur.
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flottar
yfirhafnir
fyrir flottar
konur
Stærðir 40-58
Verslunin Belladonna á Facebook
Ný sending frá
Olsen og Sandwich
Fyrsta vetrardagstilboð. Allar
buxur og peysur á 20% afslætti,
föstudag og laugardag.