Fréttatíminn - 26.10.2012, Page 70
62 skák Helgin 26.-28. október 2012
Skákakademían
Jóhann Hjartarson er besti skákmaður Íslands
á rið 1970 tók FIDE, Alþjóða skáksam-bandið, upp kerfi til að meta styrkleika skákmanna. Þetta kerfi
var hannað af bandaríska skák-
meistaranum Arpad Elo og
við hann kennt. Snillingurinn
Gary Kasparov náði í kringum
aldamótin hæstu skákstigatölu
sem sést hefur, 2851, og héldu
víst margir að það met yrði
aldrei bætt. Nú er norski undra-
drengurinn Magnus Carlsen
hinsvegar í seilingarfjarlægð frá
meti Kasparovs, kominn með
tæp 2848 stig.
Hér er listi yfir 10 stigahæstu
skákmenn heims þessa stund-
ina, sem finna má á vefnum
www.2700chess.com <http://
www.2700chess.com/> en þar er
hægt að fylgjast með þeim skák-
mönnum sem náð hafa að klífa yfir 2700-stiga
múrinn. Fyrst er nafn, þá þjóðerni, síðan stigatala
og loks fæðingarár.
1. Magnus Carlsen Noregi 2847,6 (1990)
2. Levon Aronian Armeníu 2815,4 (1982)
3. Vladimir Kramnik Rússlandi 2795 (1975)
4. Teimour Radjabov Azerbæjan 2788,9 (1987)
5. Fabiano Caruana Ítalíu 2786,5 (1992)
6. Vishy Anand Indlandi 2775,4 (1969)
7. Sergei Karjakin Rússlandi 2775,4 (1990)
8. Veselin Topalov Búlgaríu 2766 (1975)
9. Gata Kamsky Bandaríkjunum 2764,7 (1974)
10. Vassily Ivanchuk Úkraínu 2764,4 (1969)
Jóhann Hjartarson besti skákmaður Íslands
Þótt ár og dagar séu síðan Jóhann Hjartarson
hætti atvinnumennsku í skák er hann ennþá
stigahæstur íslenskra skákmanna. Jóhann hefur
nú 2588 stig, en næstir koma Héðinn Stein-
grímsson (2560), Helgi Ólafsson (2547), Henrik
Danielsen (2524), Hjörvar Steinn
Grétarsson (2512) og Hannes
H. Stefánsson (2510) og Jón L.
Árnason (2502). Aðrir íslenskir
skákmenn eru öfugu megin við
2500 stigin. Þessi listi minnir
okkur á þá frómu ósk skákáhuga-
manna að Jóhann Hjartarson tefli
meira, enda sá Íslendingur sem
lengst hefur náð í baráttunni um
heimsmeistaratitilinn.
Caruana og Carlsen sigruðu á
sterkasta móti ársins
Á dögunum lauk í Bilbao sannköll-
uðu ofurmóti, þar sem sex jöfrar
leiddu saman hesta sína. Tefld
var tvöföld umferð og er skemmst
frá því að segja að Ítalinn Fabiano
Caruana, sigurvegari N1 Reykja-
víkurmótsins 2012, stal senunni. Caruana og
Carlsen urðu efstir og jafnir með 6,5 vinning af
10, en síðan komu Aronian, Karjakin, Anand og
Francisco Vallejo. Það bar til tíðinda að heims-
meistarinn Anand vann ekki skák á mótinu, og er
kominn niður í 6. sæti heimslistans.
Lífið er tafl
Benjamin Franklin (1706-1790) var fjölhæfur
snillingur: Vísindamaður, heimspekingur, upp-
finningamaður og einn af höfundum bandarísku
stjórnarskrárinnar. Nafn Franklins er skrifað
gylltu letri í sögu Bandaríkjanna og myndin af
honum prýðir sjálfan 100 dollara seðilinn. Árið
1779 skrifaði Franklin: „Skákin er ekki aðeins
tómstundaiðja. Marga mikilvæga eðlisþætti
mannshugans – nýtilega í lífshlaupi hvers manns
– má vekja og efla með taflmennsku, svo að þeir
séu undirbúnir hvenær sem á þarf að halda. Lífið
sjálft er einskonar tafl.“
skákþrautin
Svartur leikur
og vinnur
Aðeins hvíta drottningin
kemur í veg fyrir að svartur
máti með því drepa með bisk-
upinn á c3. Meistari Toulush
hafði svart og átti leik gegn
Bivshev, og hann stjakar ill-
yrmislega við drottningunni.
1.
Da7! 0-1 (Drepi hvítur drottn-
inguna blasir mátið við, færi
hún sig af skálínunni fellur
hrókurinn á g1.)
Norski undradrengurinn Magnus
Carlsen. Nálgast stigamet Kasp-
arovs. Jóhann Hjartarson hampar sigurlaunum á Alþjóða geðheilbrigðismótinu á dögunum. Hann
er stigahæstur Íslendinga.
S kyfall er 23. bíómyndin um James Bond og markar þau tímamót að 50 ár eru liðin frá
því Bond sást fyrst í bíó þegar hann
steig fullskapaður fram, holdgerður
í Sean Connery, í Dr. No árið 1962.
Á þessum árum hafa sex menn
leikið Bond sem hefur mátt laga
sig að síbreytilegum heimi en
þessi kappi sem hóf feril sinn sem
kaldastríðshetja, sem tókst á við
rússneska KGB-skúrka og alþjóð-
legu glæpasamtökin S.P.E.C.T.R.E.
(ígildi ESB í hugum margra), hefur
þurft að finna sér nýja óvini.
Leikstjórinn Martin Campell og
leikarinn Daniel Craig björguðu
Bond frá stöðnun með Casino Ro-
yale árið 2006 þar sem uppfærður
Bond pakkaði saman hetjum nýrrar
aldar á borð við Jack Bauer og Jason
Bourne.
Skyfall er þriðja Bond-mynd
Craigs sem situr svo notalega í hlut-
verkinu að hann sýnir nú sígilda
Bond-takta í anda forveranna. Hann
hefur meira að segja tíma til þess
að gefa sér sekúndubrot til þess að
laga ermahnappinn um leið og hann
ryðst til árásar með skotsár á öxl.
Sam Mendes (American Beauty,
Road to Perdition, Jarhead) er al-
vöru leikstjóri sem skilar Bond,
eins og við höfum aldrei séð hann
áður, í Bond-mynd sem er ólík öllu
sem við höfum hingað til séð. Eftir
frábæra byrjun hjá Craig í Casino
Royale rann næsta mynd, Quantum
of Solace, út í tóma dellu þannig að
aðdáendur Bonds áttu inni skaða-
bætur í Skyfall og þær eru sko
greiddar með vöxtum og vaxta-
vöxtum. Öllum lausum endum úr
síðustu tveimur myndum er kastað
til hliðar, tilgangslaus hasaratriði
víkja fyrir persónusköpun og vand-
lega undirbyggðri sögu um snar-
klikkaðan brjálæðing sem hefur að-
eins eitt takmark. Hann hefur ekki
áhuga á heimsyfirráðum eða neinu
slíku. Hann vill bara drepa M, yfir-
konu Bonds.
Bond hefur aldrei verið persónu-
legri en nú þegar hann og M þurfa
að snúa bökum saman, einangruð
og með lítinn stuðning frá græjun-
um hans Q. Þetta er svolítið eins og
munaðarlaus drengur og fósturmóð-
ir hans að berjast við ljóta skrímslið
undir rúminu. Algerlega einstakt
þegar Bond er annars vegar.
Judi Dench er aldrei þessu vant
ein aðalpersóna myndarinnar í hlut-
verki M og hún getur sko leikið kon-
an sú. Javier Bardem skilar illmenni
ólíku öllu því hyski sem Bond hefur
tekist á við. Bardem á nú þegar heið-
urinn af hinum sérlega ógeðfellda
Chigurh í No Country for Old Men
en hann er ekki leikari sem endur-
tekur sig og gerir frábæra hluti með
brjálæðinginn Raoul Silva. Gamli
úrvalsdeildarmaðurinn Albert Fin-
ney á síðan dásamlega innkomu sem
maður úr fortíð Bonds.
Mendes og hans fólk hakkar
Bond-formúluna um leið og þau
leika sér með fortíð Bonds sem pers-
ónu og í bókum og eldri bíómyndun
svo unun er að horfa á. Bond verð-
ur ekki samur eftir þessa mynd en
hann verður betri en nokkru sinni
fyrr enda bæði hristur og hrærður.
þórarinn þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bíódómur Skyfall
Aftur til fortíðar. Craig sækir Aston
Martin bifreiðina sem Connery notaði
í Goldfinger í bílskúrinn og áhorfendur
fá gæsahúð.
Frábær afmælisveisla
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011