Fréttatíminn - 26.10.2012, Blaðsíða 74
66 bíó Helgin 26.-28. október 2012
Hefur allt
sem prýðir
sannan
karlmann,
er úrræða-
góður,
sjarmer-
andi og
geislar af
hráum
kynþokka.
Frumsýndar bond í 50 ár sex menn – einn 007
F réttatíminn hafði upp á sex manns sem eiga sinn eftirlætis Bond og færa fyrir því sannfærandi rök.
Allur pakkinn
Ég er af þeirri kynslóð sem ólst upp við Roger
Moore og kynntist hinum raunverulega Bond
ekki fyrr en vídeótækið kom til
sögunnar. Og það er ekki nokkur
spurning að Connery er sá eini
sanni. Hann hefur upp á allt að
bjóða sem þarf að prýða James
Bond. Hann er með útlitið, græjurnar og er
kaldhæðinn án þess að vera of mikill grínisti.
Roger Moore er til dæmis fyrir mína parta of
mjúkur og Daniel Craig of gerilsneyddur.
Pétur Ívarsson, verslunarstjóri Boss í Kringlunni.
Besta myndin – Besti Bondinn
George Lazenby er minn maður vegna þess
að On Her Majesty´s Secret Service er lang-
besta James Bond myndin að
mínu mati. Ástæðan fyrir því að
ég held svona upp á myndina er
aðallega vegna þess hvað hún er
skrýtin. Og fyndin líka. Á svona
skemmtilega óviljandi hátt.
Enginn Bond hefur til dæmis farið í sleik
við jafnmargar stelpur og Lazenby gerir í
OHMSS. Sem er töff. Svo drepur hann bara
sex vonda kalla í myndinni. Sem segir mér að
Lazenby er „lover not á fighter.“
Lazenby á eiginlega meira sameiginlegt
með Mike Myers í Austin Powers en Daniel
Craig í Casino Royale.
Andri Ólafsson fréttamaður.
Hinn sanni herramaður
Roger Moore er eiginlega nákvæmlega eins
og ég sé Bond fyrir mér. Moore kom með
ákveðinn léttleika í myndirnar.
Hann var fágaðari en Connery og
er mesti séntilmaðurinn af þeim
öllum. Moore er piparsveinn en
samt alvöru herramaður á meðan
Connery var meiri karlremba.
Ég held að Moore hafi fallið miklu betur að
tíðaranda sinna mynda (1973-1985) en Con-
nery hefði gert. Connery sýndi ákveðna karl-
rembutakta sem átti kannski betur við fyrri
tíma. Pierce Brosnan hafði líka þennan létt-
leika en mér fannst hann of væminn. Moore
missti sig aldrei í væmni þótt hann væri léttur
á því og frábær í tilsvörum. Hann er hinn sanni
herramaður.
Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, verslunarstjóri í
Herragarðinum í Kringlunni.
Alvarlegur en ekki leiðinlegur
Timothy Dalton er minn James Bond og ef ég
heyri einu sinni enn að Sean Connery sé hinn
eini sanni James Bond þá gubba
ég upp í mig og kyngi því öllu.
Hinn eini sanni James Bond er
ekki til – bara uppáhalds.
Þegar Timothy Dalton tók við
hlutverki James Bond af Roger Moore var
hann svo ferskur að það brakaði í honum;
frumraunin frá árinu 1987, The Living Day-
lights, er uppáhalds Bond-myndin mín. Dalton
var glerharður og mun líkari þeim karakter
sem Ian Fleming skapaði upphaflega í bók-
unum og dró upp nýja mynd af njósnaranum.
Hans Bond er alvarlegur en ekki leiðinlegur,
eins og flest alvarlegt fólk er. Dalton dregur
upp mynd af njósnara sem líður ekki vel með
öll drápin sem hann hefur framið; hann er
öróttur að innan – fallegur að utan – og stút-
fullur af dimmum hugsunum – þreyttur, en
samt til í einn bardaga í viðbót. Ekki hægt að
biðja um meira.
Timothy Dalton er eins raunverulegur sem
James Bond og mögulegt er. Timothy Dalton
er minn James Bond.
Svanur Már Snorrason blaðamaður.
Lýtur stjórn konu
Ein af ástæðunum fyrir því að mér líkar best
við Pierce Brosnan er að í fyrstu myndinni
hans er yfirmaður Bonds, M,
kona en það minnkar kvenfyrir-
litninguna þarna strax þúsund-
falt. Síðan hafa nú flestar Bond-
stúlkurnar sem honum fylgja
eitthvað til brunns að bera annað en að vera
bara sætar, eru sjálfar njósnarar til dæmis, og
standa Bond jafnfætis.
Pierce Brosnan er líka sætastur og mér
finnst Daniel Craig til dæmis of ófríður fyrir
hlutverkið. Hann er eins og búálfur og þótt
hann sé vöðvastæltur þá hefur hann ekki þetta
fágaða yfirbragð sem Pierce Brosnan hefur.
Kaldhæðni húmorinn fer Brosnan líka mjög
vel og það fer honum best að læða kaldhæðn-
um línum Bonds út úr sér.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir bókmenntafræðingur.
Mesti töffarinn
Daniel Craig er án efa mesti töffarinn og
hörkutólið. Hann er svo töff að hann gæti auð-
veldlega farið í bólið með karl-
manni fyrir Queen and Country
(og pumpað hann um upplýsing-
ar) án þess að þjást af komplexum
yfir því.
Ég sé engan hinna Bondanna fyrir mér í senu
eins og í fyrstu mynd Craigs, Casino Royale,
þar sem óvinurinn lemur „krúnudjásnin“ á
honum með hnútasvipu og gæinn hlær bara
að kvalara sínum. Ein magnaðasta pyntingar-
sena í Bond-mynd frá upphafi. Þá virkar Craig
eitthvað svo veðraður, eins og hann feli innra
með sér mikinn sársauka. Hann er nánast bug-
aður af reynslu. Hann er líka raunverulegastur
af Bond leikurunum, maður trúir því að þessi
maður sé sá sem hann gefur sig út fyrir að
vera. Hefur allt sem prýðir sannan karlmann,
er úrræðagóður, sjarmerandi og geislar af
hráum kynþokka. Getur ekki verið betri mað-
ur í hlutverki Bond, að hinum ólöstuðum.
Heimir Már Pétursson upplýsingafulltrúi.
James Bond-myndin Skyfall er frumsýnd á Íslandi á föstudag. Þetta er tuttugasta og þriðja myndin um þennan
öflugasta njósnara í þjónustu hennar hátignar. Bond sást fyrst í bíó í Dr. No fyrir hálfri öld en á þessum tíma
hafa sex leikarar brugðið sér í smókinginn og túlkað kappann. Sean Connery hefur löngum þótt vera hinn eini
sanni Bond, enda fyrstur til að leika hann, en Daniel Craig hefur sótt fast að honum á síðustu árum.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hreinsun í bíó
Enginn alvöru Bond
- bara uppáhalds
Skáldsagan Hreinsun sem Sofi Oksanen
vann upp úr eigin leikriti hefur notið mikilla
vinsælda á Íslandi og víðar í Evrópu. Oksanen
segir í bók sinni harða og óvægna sögu þar
sem hún tvinnar saman örlög kvenna af
tveimur kynslóðum sem ganga í gegnum
hrylling kúgunar og kynferðisofbeldis. Þjóð-
leikhúsið setti Hreinsun upp í fyrra og nú geta
áhugasamir séð finnska mynd sem byggir á bókinni og er frumsýnd í Bíó Paradís
í dag, föstudag. Sagan gerist í Eistlandi og hefst árið 1992, ári eftir að þjóðin
lýsti yfir sjálfstæði. Aliide er tæplega sjötug kona sem skýtur skjólshúsi yfir
Zöru, unga stúlku sem hún finnur illa á sig komna við lítinn bóndabæ. Þrátt fyrir
aldursmuninn sem á konunum er og þá breyttu heimsmynd sem blasir við þjóð
þeirra kemur á daginn að margt er líkt með sögum þeirra. Saga Zöru kallast því
á við samtímaumræðuna um mansal en þegar hrikti í stoðum samfélagsins urðu
Eystrasaltslöndin að gróðrarstíu mannsals og hvítrar þrælasölu.
Aliide kemur Zöru til hjálpar.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS MIÐASALA: 412 7711
KOMDU Í KLÚBBINN!
bioparadis.is/klubburinn
Farðu núna á www.bioparadis.is/klubburinn!
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝJAR MYNDIR Í BÍÓ PARADÍS!
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
SOFI OKSANEN
PURGE
HREINSUN
HVERS VIRÐI
ER ÁSTIN?
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
Alexandra Flask íhugar að stökkva fram af svölum
litlu íbúðarinnar sem hún leigir í Barselónu. Þrátt
fyrir hitabylgju í borginni er þrálátt kul í hjartanu.
S T E K K E F T I R S I G U R B J Ö R G U Þ R A S T A R D Ó T T U R