Fréttatíminn - 26.10.2012, Qupperneq 78
Ra
fb
æk
ur
Rauða serían
Ljúfar ástarsögur í skammdeginu
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
S jómaðurinn og rithöfundurinn Ágúst Þór Ámundason þreytir frumraun sína á glæpasagnasvið-
inu með Afturgöngunni sem kemur út
á næstu dögum. Hann segist hafa lesið
mikið af íslenskum glæpasögum og
langaði að spreyta sig sjáfur á forminu.
„Mér fannst ég vel geta skrifað sumt
af því sem ég var að lesa sjálfur,“ segir
Ágúst sem lét ekki þar við sitja og sett-
ist við skriftir.
„Sagan hefst á því að líkamsleifar
manns finnast milli þils og veggja
eyðibýlis sem verið er að rífa. Þá
hefst rannsókn á gömlu máli
sem tvinnast óbeint saman
við glæpi í samtímanum,“
segir Ágúst sem
skrifaði bókina
að miklu leyti
á frívöktum
úti á sjó.
„Maður
var að pæla
í þessu alla
vaktina.
Þegar maður vinnur erfiðisvinnu er
hugurinn oft á fullu og það er ágætt að
beisla hana með svona pælingum. Þetta
eru fínar aðstæður til þess að tjasla
saman atburðarás og samtölum. Oftast
er maður bara með blað og penna í
brjóstvasanum og punktar niður það
sem manni dettur í hug. Ég fæ oft bestu
hugmyndirnar á meðan ég stend úti á
dekki og er að slægja þorsk.“
Ágúst bar síðan hugmyndir sínar
undir skipsfélagana sem sumir hverjir
voru fínir gagnrýnendur. „Ég hef lesið
eitthvað af þessu upp fyrir þá og jafnvel
borið hitt og þetta undir þá. Þarna eru
bókaormar um borð sem pæla mikið
í glæpasögum. Það er líka mikið lesið
um borð og menn skiptast á bókum og
skoðunum.“
Afturgangan er lögreglusaga þar
sem fjórir rannsóknarlögreglumenn á
ýmsum aldri og með ólíkan bakgrunn
reyna að brjóta málin til mergjar. „Ég
kem líka svolítið inn á líf þeirra en
þetta eru mjög ólíkar persónur og síðan
er líka skoðað hvað glæpamennirnir
sumir hverjir eru að hugsa og gera.“
Rannsóknarlögreglumaðurinn Jón
fer fyrir hópnum enda með hátt í þrjátíu
ára starfsreynslu. Bíladellukallinn
og laxveiðimaðurinn Loki er aðeins
yngri en Jón og nýtur þess að búa yfir
skyggnigáfu. Nýliðarnir í hópnum eru
svo djammarinn Helgi og lesbían Marta
María sem er hrein og bein og með allt
á hreinu.
Ágúst segist hafa lesið allar bækur
Arnaldar Indriðasonar, Ævars Arnar
Jósepssonar og Yrsu Sigurðardóttur.
Og megnið af bókum Árna Þórarins-
sonar. „Áður en ég byrjaði að skrifa
reyndi ég að ljúga því að mér að ég
hefði engar fyrirmyndir í þessu en auð-
vitað lærir maður af þeim sem maður
hefur lesið. Eins og Arnaldur hefur lært
mest af þessum skandinavísku höf-
undum.“
Ágúst segir Stefán Mána vera í
mestu uppáhaldi hjá sér en hann pass-
aði vel upp á að lesa ekki reyfara né
horfa á sakamálaþætti á meðan hann
skrifaði Afturgönguna. „Ég vildi ekki
eiga á hættu að fá innblástur frá öðrum
og vildi halda í minn stíl.“
Þórarinn Þórarinson
toti@frettatiminn.is
Þegar
maður
vinnur erf-
iðisvinnu
er hugurinn
oft á fullu
og það er
ágætt að
beisla hana
með svona
pælingum.
ÁgúSt Þór ÁmundaSon Siglir út Á glæpabrautina
Spann glæpasögu á
meðan hann slægði þorsk
Glæpasagan Afturgangan er fyrsta skáldsaga sjómannsins Ágústs Þórs Ámundasonar en bókina
skrifaði hann mikið til á frívöktum úti á sjó. Hann lauk við söguna árið 2008 og gekk með hana á milli
útgefanda og nú er hún loksins að koma út. Hann segir ágætt að flétta reyfara í huganum á meðan
hann vinnur erfiðisvinnu úti á hafi.
Þegar Ágúst Þór lauk við Afturgönguna árið 2008 tók við ganga á milli forlaga
þar sem hann fékk að heyra mörg „nei“ en fékk einnig vinsamlegar ábendingar
um hvað mætti betur fara. „Þeir spörkuðu í rassgatið á mér,“ segir Ágúst sem
tók ábendingum og var með söguna í stöðugri endurskoðun.
Saga Þórdísar ljósmóður
Eyrún Ingadóttir hefur sent frá sér
sögulega skáldsögu, Ljósmóðurina. Bókin
kom nýverið út hjá Bjarti.
Í Ljósmóðurinni segir af
Þórdísi Símonardóttur
sem var ljósmóðir á
Eyrarbakka á árunum fyrir
og eftir aldamótin 1900.
Tvívegis fann hún ástina
og tvívegis glataði hún
henni. Hún barðist gegn
yfirgangi og kúgun valdamanna sem beittu
öllum ráðum til að beygja hana í duftið.
Hún gafst aldrei upp, reis á fætur þegar
hún var snúin niður og glataði aldrei trúnni
á hugsjónir sínar.
Eyrún Ingadóttir er fædd árið 1967. Hún
er sagnfræðingur að mennt og hefur sent
frá sér nokkrar bækur, til að mynda sögu
Húsmæðraskóla Reykjavíkur, sögu Hús-
mæðraskóla Suðurlands, ævisögu Eyjólfs
R. Eyjólfssonar og bókina Sagnamaðurinn
Örn Clausen. Eyrún byggir Ljósmóðurina
á ýmiss konar heimildum um ævi og störf
Þórdísar.
70 menning Helgin 26.-28. október 2012