Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 6
María Lilja
Þrastardóttir
marialilja@
frettatiminn.is
GóðGerðarmál kirkja kærleikans seGist hjálpa öllum
Gefa útigangsfólki súpu alla mánudaga
h ópurinn United Reykjavík stendur fyrir súpugjöf fyrir útigangsfólk á Austurvelli alla mánudaga. Þau
segja tilganginn að boða kærleika og von
en mörg þeirra eru fyrrverandi fíklar,
aðrir hafa verið félagslega einangraðir um
eitthvert skeið. Þau hafa tekið málefni úti-
gangsfólks upp á sína arma og hjálpa þeim
að komast í meðferðir og önnur úrræði.
Hópurinn sem er að sögn mjög samheldinn,
tilheyrir söfnuði sem heitir Ctf.
„Við erum svona jésúhopparar,“ segir
einn úr hópnum og þau hlæja dátt. Það var
ekki margt um manninn á Austurvelli í
kuldanum þegar blaðamann bar að. Hópur-
inn útskýrir að það sé ekki óeðlilegt. Úti-
gangsfólkið reyni allt að komast inn í hús í
kuldanum. Það noti til að mynda við gáma
úti á Granda sem þeim er úthlutað af borg-
inni sem hópurinn er sammála um að sé
ekki ákjósanlegt. „Það er ólíðandi að fólki
skuli vera staflað í gáma. Ómanneskjulegt
alveg. Ég held að það sé ekki ósanngjörn
krafa að fólkið fái mat og húsaskjól,“ segir
ein úr hópnum og hin eru henni alveg sam-
mála.
Þau útskýra að komi enginn eða fáir í
súpuna, fari þau í smölun á svæðinu í kring.
Þau taki síðan afgangana og færi þeim sem
inni í gámunum sitja.
Inga Lind Karlsdóttir í heimsókn á heimili fyrir munaðarlaus börn í Tógó í Afríku þar sem hún segir vel hlúð að þeim. „Hins vegar
herptist hjarta mitt saman seinni hluta dags. Þá fara flest börn í heiminum heim til sín eftir skóla eða daggæslu, en enginn
sækir þessi börn.“
hjálparstarf inGa lind heimsótti munaðarleysinGjaheimili í tóGó
Börnin eru elskuð –
og það munar öllu
Inga Lind Karlsdóttir heimsótti heimili fyrir munaðarlaus börn í Tógó í Afríku sem íslensk hjálpar-
samtök, Sól í Tógó, hjálpa til við að reka. Henni þótti stórkostlegt að sjá hverju samtökin hafa
komið til leiðar.
i nga Lind Karlsdóttir sjónvarpskona er nýkomin heim úr heimsókn á heimili fyrir munaðarlaus börn í Tógó sem ís-
lensku hjálparsamtökin Sól í Tógó hjálpa
til við að reka. Markmið ferðarinnar var að
kanna aðstæður barnanna á heimilinu og
fylgja til Íslands tveimur starfsstúlkum á
barnaheimilinu sem verða í starfsnámi á
hjallaleikskólanum Laufásborg næsta hálfa
árið en leikskólinn er í samstarfi við barna-
heimilið.
„Ég sit í stjórn Hjallastefnunnar og hef
sjálf styrkt fimm börn í Aneho í gegnum
Sól í Tógó um nokkurra ára skeið,“ segir
Inga Lind. „Mér þótti stórkostlegt að sjá
í hvað styrkirnir hafa farið og magnað að
vita hverju þeir hafa komið til leiðar. Það
er langt því frá að maður sé að moka í ein-
hverja hyldjúpa hít. Þegar aurunum er
komið fyrir á réttum stað, gera þeir heim-
inn greinilega ofurlítið betri. Á því leikur
enginn vafi. Samtökin Sól í Tógó hafa líka
vandað sig og ekki anað áfram heldur
leyft málunum að þróast án þess að vera
með stórmennskubrjálæði. Útkoman er
heimili og skjól fyrir áttatíu börn sem áður
áttu engan að. Enn fremur býr nú í brjósti
barnanna von um mannsæmandi líf. Þau
eru elskuð – og það munar öllu,“ segir hún.
Barnaheimilið er rekið af nunnu, Vito að
nafni. Börnin hjá nunnunni Vito eiga ýmist
enga eða fáa að og þau eru allan daginn
innan veggja heimilisins þar til þau komast
á skólaaldur. „Það var gott að sjá hversu vel
Enn
fremur býr
nú í brjósti
barnanna
von um
mann-
sæmandi
líf.
er hlúð að þeim, hversu blíð handtökin eru
og hlýjan ekki spöruð. Hins vegar herptist
hjarta mitt saman seinni hluta dags. Þá fara
flest börn í heiminum heim til sín eftir skóla
eða daggæslu, en enginn sækir þessi börn.
Þau bíða eftir kvöldmatnum sínum og fara
svo í háttinn með öllum hinum,“ segir Inga
Lind.
Henni finnst hún loksins hafa séð heiminn
eftir heimsókn sína til Tógó. „Ég hef aldrei
komið til Afríku áður svo það var óendan-
lega margt sem ég upplifði í fyrsta sinn. Allt
er öðruvísi í Afríku, himininn, jörðin, híbýl-
in, litirnir, dýrin, fólkið og mannlífið. Jafnvel
lyktin er ný fyrir vitin. Og meira að segja
tíminn líður öðruvísi, samt hvorki hægar
né hraðar. Þrátt fyrir að hafa séð eitt og
annað frá Afríku og lesið um þessa risastóru
heimsálfu þá er ekkert eins og upplifunin
sjálf. Ég heillaðist,“ segir hún.
„Mér finnst líka merkilegt að hafa verið
gestur í landi á tímum svo mikilla umbrota
eins og eru í Tógó núna. Eftir 20 ár verður
allt öðruvísi þar um að lítast. En á meðan
svona miklar breytingar eiga sér stað, verð-
ur til sár þörf á stuðningi við þá sem minna
mega sín og það eru ekki eingöngu lítil
börn heldur líka þau sem eldri eru og enga
eiga að. Þau kvíða því sem koma skal þegar
æskan hlífir þeim ekki lengur og alvara lífs-
ins tekur við,“ segir Inga Lind.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Hópurinn United
Reykjavík gefur
útigangsfólki súpu
á Austurvelli alla
mánudaga.
Mörg þeirra sem að
súpugjöfinni standa
eru fyrrum fíklar.
„Ég var einu sinni
hér með þeim,“
segir karlmaður á
miðjum aldri sem
hefur verið í söfnuð-
inum um nokkurt
skeið. Ljósmynd/Hari
6 fréttir Helgin 30. nóvember-2. desember 2012