Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 10
Fjármál EF vErðtryggð lán yrðu dæmd ólöglEg myndi það sEtja FjármálakErFið í uppnám
Mjög slæmt ef verðtryggð lán yrðu dæmd ólögleg
Fyrsta málið gegn verðtryggingunni var þingfest
í Héraðsdómi Reykjavíkur 18. október en það eru
hjónin Theódór Magnússon og Margrét Guðmunds-
dóttir sem hafa stefnt Íbúðalánasjóði og lögfræð-
ingur þeirra, Heimir Sveinsson, segir málið einfalt.
Það snýst um það hvort lántakendur fái fullnægjandi
upplýsingar.
Ef verðtryggingin yrði dæmd ólögleg segir Jón
Steinsson hagfræðingur að áhrifin gætu orðið víðtæk
fyrir fjármálakerfið og skuldara: „Áhrifin myndu fara
mjög eftir því hvað dómstólar myndu ákveða að lán-
takendur þyrftu að greiða í stað verðtryggingarinnar.
Jafnvel tiltölulega lítil frávik frá þeim greiðslum sem
verðtryggingin kveður á um myndi þýða stærstu
eignatilfærslu í sögu lýðveldisins og gæti mjög auð-
veldlega sett allt fjármálakerfið og jafnvel greiðslu-
getu ríkissjóðs í uppnám,“ segir Jón en bendir á
að það séu skammtímaáhrif. Til lengri tíma væru
áhrifin að búið væri að setja því mjög miklar skorður
hvers konar samninga einstaklingar gætu gert sín á
milli og það gæti dregið þrótt úr hagkerfinu.
„Verðtryggð lán eru mikilvægur valkostur fyrir
fólk sem vill kaupa húsnæði,“ segir Jón og bætir
við að hann geti vel skilið fólk sem tekur óverð-
tryggð lán við núverandi aðstæður: „En slík lán hafa
verulega ókosti, sérstaklega þegar verðbólga er há
því þá getur endurgreiðsluferillinn orðið svo ójafn
að raungildi. Það væri því mjög slæmt fyrir komandi
kynslóðir á Íslandi ef þær ættu ekki val á því að taka
verðtryggð lán.“ Jón Steinsson hagfræðingur.
ættlEiðing EllEFu mánaða baráttu Fyrir kólumbískum dómstólum lokið
Þau buguðust aldrei
„Við munum
alltaf, alltaf
vera fjöl-
skylda,“ sögðu
Bjarnhildur
og Friðrik við
dætur sínar
þegar þau
fengu þær í
fangið þann
20. desember
á síðasta ári.
Þau hafa verið
föst með þær í
Kólumbíu síðan
en eru loks á
leið heim. Rétt-
lætið sigraði að
lokum.
H jónin hafa sýnt mikinn styrk í þessu erfiða og flókna ferli og þau buguðust aldrei,“ segir
Kristinn Ingvarsson, framkvæmda-
stjóri íslenskrar ættleiðingar, um
hjónin Bjarnhildi Hrönn Níelsdóttur
og Friðrik Kristinsson, sem hafa verið
föst í Kólumbíu með dætur sínar tvær
frá því 20. desember í fyrra, en eru
loks á leið heim til Íslands. Þau hafa
háð einstaka baráttu við kólumbískt
réttarkerfi og höfðu loks sigur og
þurfa því ekki að brjóta loforðið sem
þau gáfu dætrum sínum daginn sem
þau hittu þær fyrst: „Við munum
alltaf, alltaf, vera fjölskylda.“
Bjarnhildur og Friðrik sóttu um
að fá að ættleiða barn fyrir rúmum
sex árum. Fyrir rúmu ári fengu þau
þær upplýsingar að þau gætu fengið
að ættleiða tvær stúlkur í Kólumbíu,
fæddar 2007 og 2009. Þau fóru út í
desember til að sækja dætur sínar
fyrir milligöngu Íslenskrar ættleiðing-
ar. Hefðbundið ættleiðingarferli í Kól-
umbíu er þannig að eftir að foreldrar
taka við börnunum sínum í landinu fer
ættleiðingarmálið fyrir dómstóla þar
sem nýir foreldrar fá börnin dæmd sín.
Í framhaldinu fá börnin útgefin vega-
bréf og loks vegabréfsáritun til Íslands
og tekur ferlið venjulega um 4-6 vikur,
samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri
ættleiðingu.
„Þungu fargi er af okkur létt. Mál
Bjarnhildar og Friðriks og dætra
þeirra er einsdæmi í sögu kólumbísks
réttar,“ segir Kristinn. „Við höfum eftir
fremsta megni reynt að styðja við bakið
á þeim í þessu ferli og hefur lögfræð-
ingur okkar í Kólumbíu, Olga María
Velásques De Bernal, reynst þeim ein-
staklega vel. Hún hefur lagt gríðarlega
mikið á sig og hafði óbilandi trú á því
að það væri þessi eini tiltekni dómari
sem var ástæðan fyrir töfunum. Það
var ekkert óeðlilegt í málinu, umsókn-
inni né ferlinu og það hefur komið í ljós
núna enda hefur
þessi dómari
verið
tekinn úr ættleiðingarmálum og mun
ekki dæma í þeim héðan í frá,“ segir
Kristinn. Ættleiðingarstofnunin í Kól-
umbíu undirbýr nú formlega kvörtun á
hendur dómaranum og hefur yfirréttur
í héraði ávítt hann fyrir framgang hans
í þessu máli.
Stúlkurnar tvær eru orðnar altal-
andi á íslensku og eru hættar að tala
spænsku því þær hafa eingöngu verið í
umsjá foreldra sinna síðastliðna ellefu
mánuði. Að sögn Kristins hefur farið
vel um þau og aðbúnaður þeirra hefur
verið góður þótt þau hafi að sjálfsögðu
þurft að þola fjölda áfalla á undanförn-
um mánuðum. „Ef við reynum að horfa
á björtu hliðarnar þá hefur fjölskyldan
fengið ómetanlegan tíma til að tengj-
ast og kemur fullsköpuð til landsins,“
segir Kristinn.
Stúlkurnar fengu, að sögn Kristins,
vegabréf sín afhent á miðvikudag. Þau
voru skönnuð inn og send til Útlend-
ingastofnunar á Íslandi sem veitir
þeim Schengen-áritun sem verður
send í pósti og berst þeim vonandi
upp úr helgi. „Þá eru þau á leiðinni
heim,“ segir Kristinn.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Tvenn hjón í Kólumbíu
Formlegt ættleiðingarsamband komst á milli Kólumbíu og Íslands árið 2003.
Síðan hafa í heildina 13 börn verið ættleidd af íslenskum foreldrum, tíu eru komin
til landsins en auk Bjarnhildar og Friðriks eru önnur íslensk hjón í Kólumbíu núna
að sækja barnið sitt. 16 börn eru á biðlista eftir ættleiðingu frá Kólumbíu.
Eldri dóttirin er fimm ára og heitir Helga Karólína
Friðriksdóttir. Helga í höfuðið á föðurömmu sinni
og Karólína er kólumbíska nafnið hennar. Yngri
dóttir þeirra er þriggja ára og heitir Birna Salóme
Friðriksdóttir. Birna í höfuðið á móðurömmu sinni
og Salóme er kólumbíska nafnið hennar.
Arnaldur Indriðason
hefur selt 7,5
milljónir eintaka
og þar af 400
þúsund á
Íslandi
25
Viðtal
Skrifar um
það versta
Steinunn Sigurðar-
dóttir fordæmir
barnaníðinga
16.-18. nóvember 2012
46. tölublað 3. árgangur
úttekt 44
H
á
r
,
Sn
y
r
t
iV
ö
r
u
r
o
g
t
íS
k
a
Í
F
r
ét
tA
tÍ
m
A
n
u
m
Í
d
A
g
—
L
It
Ir
n
Ir
Í
v
et
u
r
—
v
Ín
r
A
u
tt
o
g
F
jó
Lu
b
Lá
tt
—
S
k
v
ÍS
u
b
ó
k
In
Í
á
r
—
S
te
In
eF
n
A
FA
r
ð
I
H e l g a r b l a ð
úttekt búið er að þingfesta fyrsta dómsmálið gegn verðtryggingunni
62 úttekt
síða 10
ný stjarna
í Þjóð leik
húsinu
Vill búa á
götunni
86
dægurmál
Alma Rut
setur sig
í spor
heimilis
lausra
30 Viðtal 32Viðtal
„nýju vinirnir
horfa framhjá sjúk-
dómnum,“ segir
Hilmir jökull sem
er eina barnið á
Íslandi með mS
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
14 ára með mS
sjúkdóminn
Jóla
bjórarnir
þrettán
Bestu
jóla
bjórarnir
Í stríð gegn
verðtryggingu
Hjónin theódór
magnússon og Helga
margrét guðmunds
dóttir hafa höfðað
mál út af verð
tryggðum húsnæðis
lánum. Helgi Hjörvar,
formaður efnahags
og viðskiptanefndar,
segir íbúðalánasjóð vísvitandi
veita rangar upplýsingar. For
stjóri sjóðsins segir fólk gleyma
að reikna með því að launin hækki
á við vísitölu neysluverðs. Stríðið
um verðtrygginguna er hafið.
Vinsælli
en laxness
Þórunn Arna leikur í
fjórum verkum í vetur
SIGURVEGARI
BESTUR FYRIR FJÖLDANN
Austurveri
Austurveri - Háaleitisbraut 68 www.lyfogheilsa.isVið opnum kl: Og lokum kl: Opnunartímar
08:00-24:00 virka daga
10:00-24:00 helgar
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
Forsíða Fréttatímans
16. nóvember 2012
10 fréttir Helgin 30. nóvember-2. desember 2012