Fréttatíminn - 30.11.2012, Qupperneq 14
bækurNAr fyrir þAu yNgstu
Við aðstoðum við valið
og pökkum inn
þér að kostnaðarlausu.
Tilboð kr. 2.499,-
Stóra orðabókin mín
Fyrstu skrefin
Verð kr. 3.399,-
Tilboð kr. 2.299,-
Fyrstu 100 orðin
Klár kríli
Verð kr. 2.999,-
26%
afsláttur
Ti
lb
oð
g
ild
a
til
o
g
m
eð
0
6.
12
.1
2
til
m
eð
lim
a
í V
ild
ar
kl
úb
b
Ey
m
un
ds
so
n.
Tilboð kr. 2.299,-
Fyrstu 100 tölurnar
Klár kríli
Verð kr. 2.999,-
23%
afsláttur
23%
afsláttur
Y firgnæfandi líkur eru sagðar á því að Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra muni bjóða
sig fram gegn Árna Páli Árnasyni til
formanns Samfylkingarinnar. Hann er
sagður hafa fengið fjölda áskorana.
Fari svo að Guðbjartur bjóði sig
fram gegn Árna Páli, er ólíklegt að aðr-
ir muni gera slíkt hið sama því flestir
eru á því að það sé ekki jákvætt að of
margir frambjóðendur
berjist um formannssæt-
ið, meðal annars vegna
þess að hættan er á að
atkvæðin dreifist um of
og sigurvegarinn stæði
uppi með ef til vill ein-
ungis þriðjung
atkvæða.
Kosn-
inga-
stjórn
Sam-
fylk-
ingar-
innar
veltir hins vegar nú fyrir sér þeim
möguleika að setja reglur um kosn-
inguna þannig að tryggja megi að
sá sem fer með sigur af hólmi hljóti
meirihluta greiddra atkvæða. Til
greina kemur að kjósendur raði fram-
bjóðendum í sæti og að atkvæði þeirra
flytjist á milli svo þau nýtist öll, líkt
og gert var í stjórnlagaþingskosning-
unum.
Mikill þrýstingur er á þrjá aðra þing-
menn flokksins að bjóða fram krafta
sína í formannssætið, þau Sigríði Ingi-
björgu Ingadóttur, Oddnýju Harðar-
dóttur og Magnús Orra Schram.
Sigríður Ingibjörg nýtur mikils
stuðnings kvenna í grasrót flokksins.
Hún hafi sýnt í nýafstöðnu prófkjöri að
hún njóti mikils fylgis og með því að
tryggja sér forystusæti í öðru Reykja-
víkurkjördæminu hafi hún opnað
fyrir möguleika á formannsframboði.
Sigríður Ingibjörg er hins vegar sögð
hikandi og vilja bíða ákvörðunar Guð-
bjarts. Fari hann ekki fram muni hún
íhuga það fyrir alvöru að bjóða sig
fram sem annan valkost við Árna Pál.
Oddný þótti standa sig í fjármála-
ráðuneytinu og með því hafi hún
sannað sig sem einn af framtíðar-
forystumönnum flokksins. Það hafi
einnig vakið athygli að þegar Katrín
Júlíusdóttir fór í fæðingarorlof og
Össur neitað að taka við iðnaðarráðu-
neytinu tímabundið hafi Oddný ekki
skorast undan þrátt fyrir að vera
með minnstu ráðherra- og þing-
reynsluna af öllum ráðherrum
Samfylkingarinnar. Vitað var að
iðnaðarráðuneytið yrði erfitt þeim
sem tæki við því þar sem í því fólst
að ljúka við rammaáætlun um nýt-
ingu vatnsafls og jarðvarma sem
hafði verið á bið í fjölda ára.
Henni hafi hins vegar tekist
að koma málinu inn í þing á
tveimur mánuðum. Því er
haldið fram að Oddný sé
hins vegar mikil raunsæis-
manneskja og hún geri sér
grein fyrir því að hún sé
lítt þekkt og með ein-
ungis tæplega fjögurra
ára þingmennsku að
baki. Ólíklegt þykir
að hún bjóði sig
fram nema Guð-
bjartur geri
það ekki.
Magnús Orri Schram hefur náð að
stimpla sig inn sem einn af þunga-
vigtarmönnum þingflokksins og er
talinn efni í framtíðarleiðtoga. Hann er
óhræddur við að taka að sér erfið verk-
efni, er duglegur, með skýra sýn og
á auðvelt með að vinna með fólki. Af
þeim sökum hefur hópur áhrifafólks
innan flokksins skorað á hann að stíga
skrefið nú og bjóða sig fram til for-
manns. Hann glímir hins vegar
við sama vanda og Sigríður og
Oddný, stutta reynslu af þing-
mennsku.
Þau þrjú vita vel að ef Árni
Páll fer með sigur af hólmi
er hann líklegur til að vera
formaður flokksins
næstu þrjú kjör-
tímabil eða svo.
Bjóði Guðbjart-
ur sig fram og
sigri sé allt
eins víst að
staðan losni
aftur eftir
fjögur ár.
Þá sé þeirra
tími kominn.
Sigríður Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
stjórnmál Guðbjartur hannesson líkleGur GeGn árna páli árnasYni
Formannsslagur í Samfylkingunni
Árni Páll
Árnason má
búast við mót-
framboði gegn
sér til for-
manns Sam-
fylkingarinnar.
Líklegur er
Guðbjartur
Hannesson.
Árni Páll Árnason
gæti orðið formaður.
Magnús
Orri,
Sigríður og
Oddný.
Guðbjartur Hannesson
íhugar að bjóða sig fram.
14 fréttaskýring Helgin 30. nóvember-2. desember 2012