Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 16
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Þ Það læknar enginn verðbólgu með meiri verð-bólgu. Þá sögu þekkja Íslendingar allt of vel, að minnsta kosti þeir sem bjuggu við þá óða-verðbólgu sem hér geisaði á árum áður. Vil-hjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, sá sig þó knúinn til að minna á
þetta í viðtali við Morgunblaðið í liðinni viku.
Þar var haft eftir Gylfa Arnbjörnssyni, forseta
Alþýðusambands Íslands, að einsýnt væri að
forsendur kjarasamninga væru
brostnar. Laun þyrftu því að
hækka meira en um var samið.
Ein forsenda samninganna
hefði verið að verðbólgu yrði
náð niður fyrir 2,5 prósent
þannig að almennar hækkanir
ykju kaupmátt. Hún er nú um
tvöfalt hærri.
Aðilar vinnumarkaðarins
geta endurskoðað kjarasamn-
ingana í janúar en laun eiga að
hækka 1. febrúar um 3,25%,
komi ekki til uppsagnar. Kaupmáttur hefur
aukist um 0,9% undanfarna 12 mánuði. Aukin
verðbólga hefur haft sitt að segja varðandi
minni aukningu kaupmáttar en vænst var – og
veikara gengi krónunnar.
Þrátt fyrir orð Gylfa á Vilhjálmur ekki von
á því að samningar verði opnaðir í janúar þótt
margar forsendur þeirra hafi brugðist. „Kaup-
máttarforsendan í samningunum byggist á
þróun launavísitölu og þróun launa. Það stefnir
allt í að sú forsenda standist. Það hefur verið
launaskrið umfram samninga. Ég tel að það
sé ekki skynsamlegt að hækka laun umfram
það sem búið er að ákveða,“ segir Vilhjálmur í
fyrrgreindu viðtali og hnykkir á því að enginn
lækni verðbólgu með meiri verðbólgu. „Ef
samningarnir opnast,“ bætir hann við, „mun
atvinnulífið fara fram á minni launahækkanir.“
Við þær aðstæður sem nú eru er skyn-
samlegast að hreyfa ekki við þeim kjara-
samningum sem eru í gildi. Í allra þágu er að
málsaðilar leggist á árarnar til að ná verðbólg-
unni niður fyrir 2,5% markmiðið. Þar bera
fleiri ábyrgð en aðilar vinnumarkaðarins,
þ.e. stjórn völd og Seðlabankinn. Bankinn
var gagnrýndur fyrir nýlega vaxtahækkun
af verkalýðshreyfingunni, atvinnulífinu og
raunar forsætisráðherra. Gylfi Arnbjörnsson
segir að vaxtahækkanir Seðlabankans kunni
að veikja gengi krónunnar.
Þótt aðstæður séu um margt aðrar en var
árið 1977 er engu að síður rétt að rifja upp
sólstöðusamningana svokölluðu sem gerðir
voru það ár, samninga aðila á vinnumarkaði
sem augljóslega voru mikil mistök. Þeir voru
sem olía á bál verðbólgunnar, það mátti jafn-
vel þeim sem undir þá skrifuðu vera ljóst þá
þegar. Vítin eru til að varast þau. Styrmir
Gunnarsson rifjar þá samninga upp í nýút-
kominni bók um átök og uppgjör í Sjálfstæðis-
flokknum á þessum árum. Verðbólgutölur frá
áttunda og níunda áratug liðinnar aldar sjást
vonandi aldrei aftur en Styrmir nefnir að ríkis-
stjórn Geirs Hallgrímssonar, sem tók við af
ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar, hafi tekist
að lækka verðbólguna niður í 26%. Engan sér-
fræðing hafi hins vegar þurft til að sjá að kjara-
samningarnir sem gerðir voru sumarið 1977
ógnuðu þeim árangri. Opinberir starfsmenn
settu fram svipaðar kröfur og um var samið á
almennum vinnumarkaði og ríkisstjórnin var
ekki í stöðu til þess að neita þeim um áþekkar
kjarabætur.
Að nefna kjarabætur í kjölfar þessara
alræmdu samninga eru öfugmæli enda var
samningunum ýmist lýst sem vitleysu, fárán-
legum eða hreinni katastrófu. Verðbólga fór
endanlega úr böndunum í kjölfar þeirra og óx
stjórnlaust næstu misseri og ár og var komin
yfir 100% þegar ríkisstjórn Gunnars Thorodd-
sen hrökklaðist frá 1983. Stjórnleysi þessa
tímabils minnast þeir sem þá voru komnir til
vits og ára með hryllingi.
Þótt aðstæður séu aðrar nú er rétt að hafa
þessar sögulegu staðreyndir í huga þegar
tæpt er á því að taka upp gildandi kjarasamn-
inga á sama tíma og ekki tekst að hemja
verðbólgu innan settra markmiða – og það á
kosningavetri þegar hætt er við innistæðu-
lausum loforðum. „Kjarabætur“ sem leiða til
aukinnar verðbólgu koma sem bjúgverpill í
höfuð launþega.
Verðbólga læknast ekki með meiri verðbólgu
Vítin eru til að varast þau
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Þá vitum við það
Ég er ekki ómissandi ef ein-
hver heldur það.
Björn Valur Gíslason tók
áhættu og gaf kost á sér
í forvali VG í Reykjavík
og náði ekki öruggu þing-
sæti. Hann tók áfallinu af
æðruleysi og karlmennsku.
Viltu í nefið?
Mér finnst voða gott að fá mér kók í
nefið, ég er alveg sjúkur í þetta.
Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur
sem Sveddi tönn, ræddi fíkn sína og
fleira í viðtali við DV en hann fékk 22
ára dóm í Brasilíu fyrir tilraun til að
smygla dópi til landsins.
Hátt að klífa, lágt að falla
Menn eru fljótir að fara milli himins og
heljar hjá henni.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins, vissi ekkert
hvaðan á hann stóð veðrið þegar Jónína
Benediktsdóttir sló á puttana á honum
og skammaði í Morgunblaðsgrein.
Innansveitarkrónika
Þar fóru umræður Gunnars Inga
Birgissonar um mig og mína persónu
algjörlega fram úr öllum velsæmis-
mörkum. Ég furða mig á því að
forseti bæjarstjórnar skyldi
ekki hafa vítt bæjarfulltrúann
fyrir orðbragð í minn garð
og þá sérstaklega þar sem
ég var fjarstödd og gat ekki
borið hönd fyrir höfuð mér.
Þau hafa löngum eldað grátt
silfur Guðríður Arnardóttir, oddviti
Samfylkingar í Kópavogi, og Gunnar
I. Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, og nú sauð upp úr eina ferðina
enn.
Gott að vera í Kópavogi
Það eina sem ég sagði var að þessi
framkoma væri geggjun. Guðrún er
sjálf búin að nota þvílíkt orðbragð
gagnvart mér og fleiri einstaklingum í
bæjarstjórninni að vart er hafandi eftir,
bæði á fundum og í riti.
Gunnar i. Birgisson er jafn óhress með
framkomu Guðríðar Arnardóttur og hún
með hann.
Sannur jólaandi
Maður leggur ekki upp með að gera
einhverjum illt og vitaskuld ekki
á stefnuskrá nokkurs að lenda í
fangelsi.
Andrea Kristín Unnarsdóttir, þekkt-
ari sem Andrea „slæma stelpa“, situr
í fangelsi fyrir grófa líkamsárás. Hún
ræddi jólin bak við rimlana og fleira í
viðtali við Jólablað Fréttablaðsins.
Stranglega bannað börnum
Að við séum tengd klámi á einhvern
hátt, það er af og frá.
Femínistar gagnrýndu Kvikmynda-
skólann harðlega fyrir nokkuð blautlega
auglýsingu frá leiklistardeild skólans.
Hilmar Oddsson skólastjóri baðst afsök-
unar á auglýsingunni sem að hans sögn
er ekki í „samræmi við okkar kynninga-
og auglýsingareglur.“
Vikan sem Var
„Ég hef aldrei verið þekkt fyrir að segja lítið.
En ég veit ekki hvað ég á að segja núna“ segir
Borghildur Guðmundsdóttir og hlær. Hún er
maður vikunnar í Fréttatímanum að þessu
sinni.
Borghildur gaf dögunum gaf út bókina „Ég
gefst aldrei upp“ þar sem hún lýsir ferlinu
sem hún fór í gegnum er hún barðist fyrir
forræði barna sinna á móti bandarískum
barnsföður sínum. Hún segir einnig ítarlega
frá samskiptum við lögfræðinginn sinn Svein
Andra Sveinsson sem hún segir hafa sýnt af
sér alvarleg afglöp við meðferð málsins. „Nú
eru liðin fimm ár frá fyrstu skrifum og ég er
ótrúlega sátt og stolt að hafa gefið hana út og
ég held að allir hafi gott af því að lesa hana.
Hún er upplýsandi fyrir marga, en ég man hve
mig vantaði svona bók á sínum tíma.“
MaðuR vikunnaR
Borghildur Guðmundsdóttir
Glerverksmiðjan Samverk ehf
Eyjasandi 2, 850 Hella
Víkurhvar 6, 203 Kópavogi
sími: 488 - 9000
www.samverk.is
samverk@samverk.is
Söluskrifstofa og fagleg ráðgjöf
Víkurhvar 6, 230 Kópavogi
Dagný og Sabrína Grimm eru afkomendur hinna
frægu Grimmsbræðra. Margverðlaunaðar sögur þar
sem kunnugleg ævintýri birtast í nýju ljósi.
Ævintýri eins og
þau gerast best
fyrir
ára
7-12
Met-
sölubók
New York
Times
„Frábær
bók til að
lesa með
börnunum„
Vorið 2012
hlaut Bókabeitan
Vorvinda IBBY fyrir framlag
sitt til barnamenningar
Sérlegir
sérfræðingar í barn
a-
og unglingabókum
16 viðhorf Helgin 30. nóvember-2. desember 2012