Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 26
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4 VERÐ FRÁ 10.950.000 KR. MYNDARLEGUR Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins 8,3 l / 100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu. Ef þig langar að prófa Discovery skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 525 8000 eða koma við og skreppa í reynsluakstur. Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is www.landrover.is Tryggðu þér nýjan DISCOVERY 4 fyrir breytingar á vörugjöldum þann 1. jan. nk ATHUGIÐ! E N N E M M / S ÍA / N M 5 5 3 5 1 *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri. kom hann ekki fram fyrr en fimm árum fyrr í Bandaríkjunum og ekkert vitað svo sem. Við fluttum svo heim aftur árið 1987 og ári síðar horfðum við á viðtal við mann í sjónvarpi, sem var HIV smitaður. Þegar hann var að lýsa veikindum sínum sagði ég: „Grétar, þetta er bara alveg eins og þú,“ og hann játti því en sagði ekkert meira og mér datt ekki í hug í eina sekúndu að maðurinn minn væri HIV smitaður.“ En sú var raunin og tilviljun ein réði því að hann fékk „rétta“ rann- sókn sem skýrði veikindin: „Í febrúar 1989 fór Grétar suður til Reykjavíkur og í miklu fann- fergi fór hann að hjálpa til og ýtti mörgum bílum upp úr sköflum. Upp úr því fékk hann lungna- bólgu og Rósa Katrín dóttir okkar hringdi í mig og spurði hvort ég gæti ekki komið suður því pabbi sinn væri svo mikið veikur á sjúkrahúsi. Það var þá sem ég fékk að vita hvað væri að honum. Þegar Sigurður Guðmundsson, síðar landlæknir, sagði mér hvað væri að, þá svaraði ég að ég myndi standa við bakið á honum alla leið – en fór auðvitað að gráta. Mér fannst þetta vera dauða- dómur, því þá voru ekki komin á markað jafn góð lyf og nú og Grétar var orðinn svo mikið veik- ur. Auðvitað var þetta áfall. Við höfðum verið saman í 25 ár þegar þarna var komið sögu. Ég held ég hafi fengið hálfgert taugaáfall, því ég sagði fátt næstu daga, sat yfir honum frá tíu á morgnana til tíu á kvöldin og sagði engum sannleik- ann. Þegar ég kom inn til Grétars frá Sigurði, breiddi hann yfir höf- uð. Ég sagði við hann: „Grétar, ég stend við bakið á þér á hverju sem gengur.“ Hinsvegar var ég ekki tilbúin að segja neinum hvað væri í rauninni að, ekki einu sinni börn- unum okkar, sem þó voru næstum uppkomið fólk. Örlagaríkt djamm í Kaup- mannahöfn Það var Sigurður sem sagði mér hvernig Grétar hefði smitast, því Grétar treysti sér ekki til þess á sjúkrahúsinu. Í Kaupmanna- höfn hafði hann farið á djammið með nokkrum vinum og keypt sér vændiskonu – og ekki notað smokk. Við ræddum þetta aðeins einu sinni og Grétar sagði að þetta hefði auðvitað verið algjört bull að fara á djammið og sofa hjá konu sem hann hafði aldrei séð, en ég fyrirgaf honum strax. Þetta getur hent alla.“ Ingibjörg segir að síðar í lífinu hafi hún farið að hugsa um hversu erfitt þetta tímabil hafi í raun verið: „Ein fyrsta hugsunin var að ég vildi ekki vera áfram á Akureyri. Ég gat ekki hugsað mér að búa í svona litlum bæ og vildi ekki segja fólki ósatt. Ég fór norður og pakk- aði öllu okkar niður og flutti inn á mömmu hér í Reykjavík. Sigurður læknir spurði mig hvað ég ætlaði að segja ef einhver spyrði mig hvað amaði að Grétari, því ekki gæti ég þagað endalaust, en ég sagði að annað hvort myndi ég þegja eða fara niður á Lækjartorg og kalla hástöfum sannleikann. Svo spurði ég hann hvort ég gæti líkt einkennunum við einhvern annan sjúkdóm ef ég kæmist í þrot, og hann sagði já, hermanna- veiki. Þannig að ég notaði það sjúkdómsheiti í marga mánuði ef ég var spurð hvað væri að Grétari. Ég sagði syni okkar ekki frá hvað væri raunverulega að fyrr en í nóvember sama ár eða í næst- um níu mánuðum eftir að Grétar greindist með HIV. Gunnlaugur var þá að kveikja upp í arninum heima og ég óttaðist mest að eldurinn næði að læsa sér í hann, því hann sat stjarfur. Hann gekk um eins og í leiðslu allt kvöldið. Það vildi mér til happs að Elísabet, fyrri kona Gunnlaugs sonar míns, var að læra snyrtifræði og vann eftir hádegi, svo hún sá um Grétar á morgnana, gaf honum lyfin og annaðist allt sem þurfti. Hún var rosalega dugleg, ekki orðin tvítug. Hún var alltaf hrædd um að hann væri dáinn þegar hún kom á morgnana og spurði mig einu sinni hvort ég væri ekkert hrædd um að hann myndi vera dáinn í rúminu við hliðina á mér þegar ég vaknaði. Það var ég aldrei.“ Ekkja 42 ára Nú er það því miður staðreynd að margir vinir hverfa þegar alvarleg veikindi steðja að. Gerðist það í ykkar tilfelli? „Já, þetta var mjög lærdómsrík reynsla, kannski ekki síst hvað varðaði vinahópinn. Þeir voru ansi margir að hverfa vinirnir þegar þeir vissu hvað var að. Rósa Katrín var í námi í Danmörku þegar þetta kom upp. Systkini Grétars voru mér eitt og allt og svo auðvitað nokkrir vinir sem stóðu eins og klettar mér við hlið. Þetta var mjög erfiður tími þegar ég lít til baka. Einna erfiðast var að geta ekki sagt frá og ég man eftir einni konu sem kom til mín og sagði mér að maðurinn sinn væri með krabbamein. Ég hugsaði með mér: „Mikið áttu gott að geta Ingibjörg Gunnlaugsdóttir „Ég þurfti sjálf auðvitað fara í próf og þar kom í ljós að ég var ekki smituð, svo átti ég að koma eftir hálft ár og svo aftur eftir hálft ár. Þá fékk ég að vita að ég væri sloppin. Ég skil í rauninni ekki ennþá hvernig ég gat gengið í gegnum þetta, en ég gerði það nú samt.“ 26 viðtal Helgin 30. nóvember-2. desember 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.