Fréttatíminn - 30.11.2012, Qupperneq 27
Fullkomið
heitt súkkulaði
Hitið að suðu, setjið í bolla,
skreytið með þeyttum rjóma
og njótið.
3100 g Lindu suðusúkkulaði
1 l mjólk
1
2
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 123408
– ómótstæðilega gott
LjóturAuður &
Auður og Ljótur kynntust í Búðardal. Þau eru mjög
sérstakt par. Auður, ljós yfirlitum, mild og góð en Ljótur
er tja … ljótur. Hann er með mikinn karakter. Frekar þurr
á manninn en samt ljúfur. Þau eiga rosalega vel saman.
Ef til væri parakeppni osta væru þau sigurstrangleg.
Auður og Ljótur - ólíklega parið frá Búðardal.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
2-
10
86
Félagsráðgjafi
hjá HIV-Íslandi
Einstaklingsviðtöl
Sigurlaug Hauksdóttir hefur verið
félagsráðgjafi HIV-jákvæðra og al-
næmissmitaðra einstaklinga í 15 ár. Hún
er með viðtöl í húsnæði HIV-Íslands að
Hverfisgötu 69 á miðvikudögum kl. 14 –
16. Einnig veitir hún viðtöl á Landspítal-
anum á þriðju- og föstudögum. Hægt
er að panta viðtalstíma hjá Sigurlaugu í
síma 543 1000/9131 eða hjá HIV-Íslandi
í síma 552 8586. Jafnframt er hægt að
hafa samband við hana með netpósti
sem er sigurlh@landspitali.is
Hópavinna með HIV-jákvæðum
Yfir vetrartímann geta HIV-jákvæðir
hist í hópastarfi í húsnæði HIV-Íslands.
Markmið þess eru félags- og tilfinn-
ingalegs eðlis, að geta hitt aðra í sömu
stöðu, ræða málefni sem tengjast HIV
og læra af reynslu hvers annars. Áhersla
er lögð á einlægni og trúnað. Umsjón
með starfinu hefur Sigurlaug Hauks-
dóttir sem jafnframt getur veitt nánari
upplýsingar um starfið.
Hvað er til ráða þegar fólk
stendur í þeim sporum að
greinast með Hiv?
sagt sannleikann.“ Sigurður Guð-
mundsson læknir spurði mig hvort
ég gæti ekki rætt þetta við neinn,
því fyrstu vikuna á eftir kom ég
ekki niður matarbita og grenntist
alltof hratt. Jú, ég átti bróður og
mágkonu sem tveimur árum fyrr
höfðu misst 8 ára son sinn sem
drukknaði í Elliðaánum og ég gat
rætt við þau um sjúkdóminn og
sorgina.“
Varstu einhvern tíma reið eða
sár út í Grétar?
„Ég var sár út í hann í eitt skipti,
aðeins eitt, en það var vegna
peningaleysis vegna veikinda
hans. Ég þurfti sjálf auðvitað fara
í próf og þar kom í ljós að ég var
ekki smituð, svo átti ég að koma
eftir hálft ár og svo aftur eftir
hálft ár. Þá fékk ég að vita að ég
væri sloppin. Ég skil í rauninni
ekki ennþá hvernig ég gat gengið
í gegnum þetta, en ég gerði það nú
samt. Sem betur fer átti ég nú vini
sem vissu að þessi veira smitaðist
ekki með vatni, að vera í sama
húsi og veikur einstaklingur og
ein vinkona mín sem átti nokkurra
mánaða barn kom oft með barnið.
Grétar fór að fá sveppasýkingu í
munn og háls og einu sinni þegar
ég kom til hans sá ég ungan mann
með sama sjúkdóm í hjólastól
og mér varð hugsað: „Guð minn
góður, er þetta nú líka eftir.“ Það
varð raunin. Hann var orðinn mjög
veikur í febrúar 1989 og þá hélt ég
að hann myndi deyja, en svo átti
hann gott sumar. Honum byrjaði
framhald á næstu opnu