Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 32
Jólaævintýramatseðill 2012
með piparrótarfrauði og rauðrófumauki
Léttsteiktur hörpudiskur
með sætumkartöflum, mangómauki og
rauðvínssoði
Kastaníuhnetufyllt kalkúnabringa
Val á milli 3 aðalrétta:
kremuð með reyktum humri
Vatnakarsa- og blaðlauks súpa
4 rétta:
með beikon kartöflum,
seljurótarmauki og jarðsveppaolíu
Lambafilet Wellington
með fíkjum, eplum og rauðkáli
Andabringur
er eftirréttur með ís og ítölskum
marengs með Grand-Marnier
sæteggjaköku, flamberaður með
koníaki eða rommi
Bakaður Alaska
Verð 8.990.- kr.
restaurant
Aðalstræti 16 | 101 Reykjavík | Sími 514 6060 | fjalakotturinn@fjalakotturinn.is | www.fjalakotturinn.is
grét. Ég var búinn að horfa upp á svo marga
deyja og hverfa og gerði mér ljóst hvaða hörm-
ungar voru að dynja yfir. Fyrst tvö snjóflóð
eru fallin, hvar fellur flóð næst? hugsaði ég.
Mér fannst náttúruöflin vera að rústa til-
veruna á örfáum mínútum. Sálartetrið var í
molum. Það var eins og búið væri að kippa
mér úr sambandi.“
Hvar eru konan þín og börnin, Sig-
urður?
Sigurður Björnsson var í mikilli geðshrær-
ingu. Hann var kominn inn að Mánahverfi þar
sem heimili hans hafði orðið fyrir snjóflóðinu
og hreinlega horfið. Hann sá aðeins efri hæð-
ina, risið. Menn vildu fá að vita hvort Sigurður
vissi eitthvað um konu sína og drengina.
„Ég var spurður: „Veistu eitthvað um
Stínu?“
„Ég hef grun um að hún hafi verið farin út
í bæ,“ svaraði ég.
„Getur þú ímyndað þér hvar hún er?“
„Hún ætlaði til Sólveigar og hún ætlaði líka
að fara með strákana að versla ...“
„Er ekki best að þú kannir það?“
Ég sneri strax af stað út í bæ og tók stefn-
una heim til Sollu. „Er Stína hérna?“ spurði
ég. „Nei, hún er ekki komin,“ sagði Solla. Nú
fór ég strax af stað til Ernu Þorsteinsdóttur og
bankaði upp á þar. „Nei, Þórstína hefur ekki
komið,“ svaraði hún. Nú byrjaði óttinn fyrir
alvöru að naga mig. Af hverju er Þórstína ekki
...? Ég hraðaði mér út í Kaupfélag. Vonandi
hafði hún farið þangað fyrst eða í verslanirnar
í kring.“ Sólveig, vinkona Þórstínu, var miður
sín yfir því sem var að gerast:
„Maðurinn minn, Sævar Guðmundsson,
hringdi og spurði hvort Stína væri komin.
Nei, svaraði ég, og leið ekki vel með þetta.
Þeir Siggi voru að leita að Stínu. Ég vonaði
svo heitt að hún myndi koma fram, og það
sem fyrst. Við bárum okkur saman, ég var
búin að hringja hingað og þangað en hvergi
hafði vinkona mín komið með drengina sína.“
Kaupfélagið – Ásta óttast um foreldra
sína
Ásta Gylfadóttir var úti í Kaupfélagi. Nú frétti
hún af afdrifum hússins þar sem hún hafði
skilið við móður sína:
„Einhver kom inn og sagði að annað flóð
væri fallið, þetta flóð væri utar í bænum en
Frystihúsið og Bræðslan. Sagt var að flóð
hefði fallið á svæðið þar sem Mánahúsið
okkar var, Bifreiðaþjónustan og Steypusal-
an hans pabba. Mér féllust hendur og ég fór
að hágráta. Öll mín tilvera hafði orðið fyrir
flóðinu. Ég taldi að mamma hefði lent í því og
pabbi örugglega líka því að mér fannst alveg
eins líklegt að hann hefði verið kominn inn á
skrifstofu til mömmu. Gísli, bróðir minn, var
sem betur fór ekki heima. Ég vissi að hann
var inni í sveit.
Mér datt strax í hug að fara í tíkallasímann
og hringja heim, athuga hvort það yrði svarað,
hvort mamma væri kannski komin heim á
Strandgötuna af skrifstofunni. Ó, Guð gæfi að
svo væri. Ég vonaði þetta svo innilega því að
mér var einhvern veginn ljóst að Mánahúsið,
þar sem mamma hafði verið að ganga frá laun-
unum, væri farið í snjóflóðinu. Ég setti tíkall í
raufina, sneri skífunni hálftitrandi ...“
Síldarbræðslan var rústir
einar eftir snjóflóðin og
þar fórst fólk – um 80
prósent atvinnustarfsemi
þessa stærsta byggðarlags
Austurlands eyðilagðist.
Ljósmynd/Gunnar Steinn Pálsson
165
Forsíða Þjóðviljans á aðfangadag.
207
Pétur Kjartansson á
gangi eftir Strandgötunni
í Neskaupstað á nánast
sama stað og rútubifreið
Karls Waldorffs og Sveins
Davíðssonar var þegar hún
varð fyrir Mánaflóðinu. Þá
var Pétur staddur á móts
við bílana. Í baksýn sést
Frystihúsið. Börnin og þeir
sem þurftu að fara yfir
bæði snjóflóðin áleiðis inn
í sveit gengu í gagnstæða
átt við Pétur. Fyrst yfir
Mánaflóðið og síðan yfir
flóðið við Frystihúsið og
Síldarbræðsluna
sem stóð fjær.
q Óttar Sveinsson
Rósa Margrét Sigursteinsdóttir og Alfreð Alfreðsson á góðri stund árið
2010. Með þeim á myndinni er Hann Sjöfn Frederiksen, eiginkona
Alfreðs, lengst til vinstri, Sigrún Eva Rúnarsdóttir, dóttir Rósu, og eitt
fimm barna hennar, Úlfur Mikael.
Nýlegir endurfundir. Rósa
Margrét (með gleraugu)
og Sigrún Eva (til hægri),
sem var eins árs þegar þær
mæðgur björguðust, með Al-
freð Alfreðssyni. Hann barst
með flóðinu um 30 metra út á
sjó og fór á um 10 metra dýpi.
Þar fékk hann hjartaáfall. Er
hann komst upp á krapa-
blandað yfirborðið var hann
innan um brak úr Mánahús-
inu sem þær mæðgur voru
í. Með þeim er Hanna Sjöfn
Frederiksen, tv. eiginkona
Alfreðs og Úlfur Mikael, eitt
fimm barna Sigrúnar Evu.
32 bókarkafli Helgin 30. nóvember-2. desember 2012