Fréttatíminn - 30.11.2012, Qupperneq 58
54 heilsa Helgin 30. nóvember-2. desember 2012
Íslandsmeistari Í kraftlyftingum kvenna
Matarsendingar
til útlanda
Láttu okkur sjá um
alla fyrirhöfnina –
útvega vottorð,
pakka og senda.
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
SáraSmyrSl
Fæst í heilsubúðum og apótekum
www.annarosa.is
Ég var með slæmt sár í 5 mánuði eftir
skurðaðgerð og búin að reyna allskonar
krem og smyrsl. Sárasmyrslið hennar
Önnu rósu gerði kraftaverk og sárið
greri á einni viku. Svo er það líka gott á
sprungur, útbrot og þurrkubletti.
Lena Lenharðsdóttir
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum
www.gengurvel.is
BELLAVISTA náttúrulegt
efni fyrir augun, ríkt af
lúteini og bláberjum
NÁTTBLINDA
s telpur hafa verið mjög hræddar við þetta sport og margar hafa hreinlega haldið að þær þyrftu að vera mjög stórar og feitar til þess að ná árangri og
það hefur fælingarmátt. Það er samt alltaf að aukast að-
sóknin á meðal stelpna og þar með minnka fordómarnir
í leiðinni,“ segir kraftlyftingakonan Jónína Sveinbjarnar-
dóttir. Hún setti Íslandsmet í kvennaflokki í réttstöðu-
lyftu og hébeygju eftir að hafa æft kraftlyftingar aðeins
í nokkra mánuði. „Ég fékk áhugann í mars í fyrra þegar
ég fylgdist með Íslandsmeistaramótinu. Ég hugsaði með
mér að ég gæti þetta alveg líka og ákvað að slá til.“
Kærasti Jónínu er einkaþjálfari og hefur verið að sér-
hæfa sig í lyftingaþjálfun um nokkurt skeið. Það voru
því hæg heimatökin fyrir Jónínu sem segir kær-
astann hafa tekið vel í nýja áhugamálið. „Ég
hafði fylgst með honum lyfta og aðeins ver-
ið að leika mér sjálf, en ekkert alvarlega.
Þegar ég fór að skoða þessar stelpur sem
voru að keppa vissi ég að ég gæti miklið
meira en þær voru að gera. Ég byrjaði því
að æfa og áður en ég vissi af var ég orðin
Íslandsmeistari. Það held ég að verði að
teljast góður árangur,“ segir Jónína og
hlær. Sigurinn gekk þó ekki áfallalaust
fyrir sig þar sem hún tábrotnaði skömmu
fyrir keppni og keppti því tábrotin.
„Markmiðið var auðvitað alltaf sett hátt en
ég ætlaði samt að gera meira. Út af brotinu og
aðgerð sem ég fór í skömmu áður missti
ég aðeins úr æfingum. Ég stefni því
að nýju meti á næsta ári. Þá ætla
ég að taka tvö hundruð kílóin í
réttstöðu. Það hefur ein kona
getað það áður og ég veit að ég
hef alla burði til þess.“ Jónína
segir að skjót velgengnin hafi
komið mörgum spánskt fyrir
sjónir. „Pabbi spurði mig hvort
að kvennametin væru svona
lág,“ segir hún og útskýrir,
„hann meinti það ekkert illa
honum fannst bara svo skrítið
að mér hefði tekist þetta svona
fljótt.“
Jónína segist gleðjast yfir
vaxandi áhuga stelpna á
sportinu og ráðleggur áhuga-
sömum að snúa sér til þjálf-
ara því hættulegt geti reynst
að byrja að lyfta sjálf. „Ég mæli
með þjálfara sem sérhæfir sig í
lyftingum. Þeir eru því miður ekki
margir, en samt til. Sjálf er ég að æfa
hjá ÍBV og keppi því innan ÍSÍ,“ segir
hún og hvetur stelpur til þess að láta
sjá sig á æfingum.
Mark-
miðið var
auðvitað
alltaf sett
hátt en
ég ætlaði
samt
að gera
meira.
Þarf ekkert að vera
feit til að geta lyft
Jónína Sveinbjarnardóttir er tuttugu og fimm ára lyftingakona. Hún kom sá og sigraði á síðasta
Íslandsmeistaramóti í kraftlyftingum þar sem hún sópaði að sér verðlaunum og setti Íslandsmet,
tábrotin. Athygli vekur einnig að Jónína byrjaði aðeins að æfa lyftingar nokkrum mánuðum áður
eftir að hafa fylgst með keppni og séð að hún ætti fullt erindi í greinina.
Jónína vann Íslandsmeist-
aratitil í kraftlyftingum
eftir að hafa æft aðeins í
nokkra mánuði. Hún vill sjá
fleiri stelpur í sportinu.
Jónína setti meðal annars Íslandsmet í hnébeygju. Það gerði hún tábrotin og segist því hafa átt meira inni.