Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 64
Helgin 30. nóvember-2. desember 201260 tíska
20% afsláttur
af öllum yrhöfnum
Fatabúðin
Skólavörðustígur 21 a
Sími 551 4050
Koddar og sængur
fyrir alla fjölskylduna
– Eitt mesta úrval landsins af
vönduðum sængur fatnaði
H endrikka Waage á fjölbreyttan feril að baki sem hönnuður skartgripa á
alþjóðamarkaði og barnabókahöf
undur svo eitthvað sé nefnt. Og nú
sendir hún frá sér ilmvatnið sem
hún kallar Fjola. Hendrikka segist
ekki tengja ilminn við skartgripa
línu sína og hugmyndina að ilm
inum sæki hún æsku sína.
„Ég fór svolítið út í ávaxta og
blómailm en ég á mjög ánægjulegar
bernskuminningar frá því þegar ég
tíndi villt blóm úti í náttúrunni með
móður minni,“ segir Hendrikka.
„Með þessar minningar í huga
hannaði ég þennan ilm sem sam
einar blæbrigði blóma og ávaxta
ilms með votti af vanillu ásamt ögn
af fjólu, rósum og appelsínublóma.“
Hendrikka segir níu mánaða
vinnu liggja að baki ilmvatninu og
þá vinnu vann hún ekki síst með
nefinu. „Ég byrjaði á því að finna
gott ilmvatnsfyrirtæki og endaði
hjá framleiðanda í SuðurFrakk
landi. Ég gerði þeim svo grein
fyrir því hvað ég væri með í huga
og fékk sendan helling af sýnis
hornum.“
Þá hófst vinnan með nefinu og
Hendrikka þefaði sig í gegnum
prufurnar að niðurstöðunni sem
hún hefur nú komið á flöskur.
„Purpura og fjólulitir hefur alltaf
verið í uppáhaldi hjá mér og Fjola
er mettuð rómantískum ilmi sem
tengist þessum litum og er fínleg
og dularfull.“
Hendrikka býr í London en selur
Fjolu í öllum helstu verslunum á
Íslandi sem höndla með ilmvötn.
„Ég er nú alltaf með annan fótinn á
Íslandi enda eru allir vinir mínir og
ættingjar hérna en ég ætla samt að
eyða jólunum úti þetta árið en verð
hér næstu jól.“
Hendrikka hefur getið sér gott
orð fyrir barnabækur sínar um
Rikku og töfrahringinn sem segja
frá ævintýrum stúlku sem ferðast
um heiminn og kynnir sér ólíka
menningarheima. „Rikka verður
ekki með í jólahasarnum á Íslandi
núna en kemur með vorinu í fjórðu
bókinni þar sem hún ferðast um
England ásamt Oliver vini sínum.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hendrikka Waage Sendir frá Sér ilmvatn
Blómailmur
æskuminninganna
Athafnakonan
og skart-
gripahön-
nuðurinn Hen-
drikka Waage er
nú einnig orðin
ilmvatnsfram-
leiðandi en ilm-
vatnið hennar,
Fjola, er nýjasta
viðbótin við ilm-
vatnsflóruna á
Íslandi. Henrikka
lætur framleiða
ilminn í Suður-
Frakklandi en
með sínu næma
nefi valdi hún
angan með keim
af ávöxtum- og
blómum sem
kallar fram hjá
henni ljúfar æs-
kuminningar.
Hendrikka umvafinn eftirlætis litum
sínum angandi af dularfullri blöndu
ávaxta og blóma.
Hendrikka Waage
hefur fengist við
ýmislegt í gegnum
tíðina og er nú
orðinn ilmvatns-
framleiðandi.
Handunnir skartgripir
Jólabomba
dagana 30.nov - 1. des
25%
afsláttur
af öllum
nýjum vörum
30 - 50%
afsláttur
af völdum
vörum
70%
afsláttur
af eldri
vörum
Feminin Fashion Bæjarlind 4 201 Kópavogi S. 544 2222 feminin@feminin.is
Opnunartími:
Mán - föst: 11 - 18
Laugard: 10 - 16
„Ég á
mjög
ánægju-
legar
bernsku-
minningar
frá því
þegar ég
tíndi villt
blóm úti
í nátt-
úrunni
með
móður
minni.“
Laugavegi 53 S. 553 1144
Myndir á Facebook
Jólanáttföt
mikið
úrval
Sett
8.900 kr