Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 79
GOTT AÐ GEFA, HIMNESKT AÐ ÞIGGJA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hlíðasmára 1 | 201 Kópavogur | Sími: 554-6969 | www.lur.is
Lífsins gæði og
þægindi frá Passion
Danski framleiðandinn Passion
býður kröfuhörðum svefnenglum
aðeins upp á það besta.
Rúm, dýnur
svefnsófar
hægindasófar
gjafavöru og
fleira
Kvennakór með
aðventutónleika
Kvennakór Reykjavíkur heldur sína
árlega aðventutónleika í Fella- og
Hólakirkju í vikunni. Fyrri tónleikarnir
eru á fimmtudagskvöld klukkan 20 og
þeir síðari á laugardaginn, 1. desember
klukkan 16. Tónleikarnir eru tileinkaðir
Ingibjörgu Þorbergs. Af því tilefni flytur
kórinn glænýjar, kröftugar og framandi
útsetningar Vilbergs Viggóssonar á
tónsmíðum Ingibjargar: Jólakötturinn,
Með bjartsýni og brosi og Þú varst þar.
Sigríður Thorlacius syngur einsöng með
kórnum. Miða má nálgast hjá kórkonum
og á kvennakorinn.is.
Kvennakór Reykjavíkur fær Sigríði
Thorlacius til liðs við sig á aðventu-
tónleikum.
Einar Örn og Curver troða upp með
Ghostigital á Faktoý á laugardagskvöld.
Ghostigital með
útgáfutónleika
Hljómsveitin Ghostigital fagnar útgáfu
þriðju hljóðversplötu sinnar með
stórtónleikum á Faktorý á laugardags-
kvöldið, 1. desember. Platan kallast
Division of Culture and Tourism og
hefur hún fengið góðar viðtökur hjá
gagnrýnendum og áhugafólki um
tónlist. Ghostigital, sem er hugarfóstur
þeirra Curvers Thoroddsen og Einars
Arnar Benediktssonar, hefur skrúfað
lítillega niður í hávaðanum á nýju plöt-
unni og er tónlistin aðgengilegri fyrir
vikið. Meðal gesta á plötunni eru David
Byrne, Alan Vega, Damon Albarn, King
Buzzo úr The Melvins og rappararnir
Sensational og Dälek. Tónleikarnir
hefjast klukkan 23 og standa til klukkan
03. Miðaverð er 1.500 krónur í forsölu á
Miða.is en 2.000 krónur við dyrnar. Auk
Ghostigital koma fram Oyama, Muck,
Captain Fufano og Oculus.