Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 74
68 heilsa Helgin 7.-9. desember 2012
Ný bók Frábær eFtir Fertugt
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 483 0300 og á www.hnlfi.is
Kyrrðardagar verða haldnir 15.-22. desember á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Á dagskrá er meðal annars: Samverustund - Hugleiðing - Bæn og íhugun í þögn
- Yoga - Qigong - Hlustunarhópar - Messa - Leikfimi - Slökunartímar - Útivist og
fræðslufundir. Innifalið er ljúffengur og hollur matur, aðgangur að sundlaugum,
baðhúsi og líkamsrækt.
Haraldur Erlendsson yfirlæknir og Pétur Pétursson guðfræði-
prófessor auk sérhæfðra leiðbeinenda og ráðgjafa á hinum
ýmsu sviðum sjá um Kyrrðardaga. Verð frá 9.900 kr. pr. dag.
Kyrrðardagar eru fyrir þá sem vilja sinna andlegri og líkam-
legri heilsu og fá skjól til að rækta sinn innri mann.
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Kyrrðardagar í Hveragerði
b reytingaskeiðið er miklu viðameira en ég hafði gert mér grein fyrir,“ seg-ir Jóna Ósk Pétursdóttir sem hefur
sent frá sér handbók fyrir konur á besta
aldri, Frábær eftir fertugt.
Í henni fjallar Jóna Ósk um líkamlega og
andlega heilsu kvenna á breytingaskeiðinu
en þegar hún komst sjálf á það skeið lífs síns
komst hún að því að það var ekki til hand-
bók sem gat svarað spurningum hennar um
það sem í vændum var.
„Ég er handbókasjúk kona og á handbæk-
ur fyrir öll skeið lífsins,“ segir Jóna Ósk og
hlær, „kynþroskaskeiðið, meðgöngu og upp-
eldi barnanna en þegar ég var komin á breyt-
ingaskeiðið fann ég enga bók og varð að búa
hana sjálf til. Mér fannst því tilvalið að aðrar
konur fengju að njóta þess,“ segir hún. Bókin
fjallar reyndar ekki eingöngu um breytinga-
skeiðið heldur almennt um það hvernig það
er fyrir konur að eldast.
Jóna Ósk segir það hafa komið sér mest
á óvart við vinnslu bókarinnar hve breyt-
ingaskeiðið feli margt í sér. „Flestir vita
um hitakófin og óreglulegu blæðingarnar.
Breytingaskeiðið er miklu meira en það og
hafði ég alls ekki gert mér grein fyrir því,“
segir hún.
Allar konur ganga í gegnum breytinga-
skeiðið en samt sem áður virðist sem konum
á þessum aldri þyki óþægilegt að ræða um
það, að sögn Jónu Óskar. „Ég var tvö ár að
vinna bókin og ræddi við fjölmargar konur
um þetta mál á þeim tíma. Mér virðist sem
breytingaskeiðið sé enn dálítið tabú enda
eru mjög fáar konur tilbúnar til að ræða það
opinskátt,“ segir Jóna Ósk. Aðspurð segir
hún skýringuna ef til vill þá að breytinga-
skeiðið sé óþægileg áminning um að lífið sé
farið að styttast í annan endann, að konur
séu farnar að eldast. „Svo hefur orðið breyt-
ingaskeið ákveðinn neikvæðan stimpil, sagt
er að konur á breytingaskeiðinu séu hálf-
gerðar Grýlur, óalandi og óferjandi, sem er
alls ekki satt,“ segir Jóna Ósk.
„Þegar upp er staðið er breytingaskeiðið
heldur ekki eins slæmt og margar halda og
er það miklu frekar neikvæð umræða um
konur á breytingaskeiði sem lætur þetta líta
verr út en það er. Breytingaskeið er tímabil
sem markar tímamót í lífi okkar og því
fylgja bæði kostir og gallar eins og öllu öðru
í lífinu,“ segir hún.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Þegar upp
er staðið
er breyt-
ingaskeið-
ið heldur
ekki eins
slæmt og
margar
halda.
Breytingaskeiðið ennþá tabú
Jóna Ósk Pétursdóttir hefur sent frá sér handbók fyrir konur á besta aldri, Frábær eftir fertugt,
þar sem hún fjallar um líkamlega og andlega heilsu kvenna á breytingaskeiðinu. Hún segir konur
illfáanlegar til að tala opinskátt um breytingaskeiðið sem enn sé dálítið tabú.
Jóna Ósk Pétursdóttir: „Breytingaskeið er tímabil sem markar tímamót í lífi okkar og því fylgja bæði kostir og gallar eins og öllu
öðru í lífinu.“ Ljósmynd/Hari
Hollt snakk – aspas í ofni
Flestir kannast við að freistast til að teygja sig í snakkpokann á kvöldin
eða jafnvel á milli mála. Slíkar freistingar eru ekki ákjósanlegar þeim
sem eru að hugsa um línurnar. Þó skal ekki örvænta því að hægt er að
draga úr skaðanum þar sem snakk þarf
ekki endilega að vera óhollt.
Til dæmis má setja ferskan
aspas á bök-
unarplötu,
pensla með
ólívuolíu og
strá grófu
salti og
pipar yfir.
Setja inn
í heitan
ofn í um
það bil 10
mínútur.
Grænn fyri
r
börnin
Stíflað nef?
Nefrennsli?
hraðvirkt
auðveldar öndun
án rotvarnarefna
ódýrt
Naso-ratiopharm losar stífluna
Fæst án lyfseðils í apótekum
xylometazolin hýdróklóríð
Naso-ratiopharm nefúði inniheldur xylometazolin sem minnkar þrota í slímhúðum í ne og hálsi, dregur úr aukinni slímmyndun og
auðveldar einstaklingum með kvef að anda í gegnum neð. Lyð er ætlað til skammtíma meðferðar við stíu í ne, t.d. vegna kvefs.
Skammtar eru 1 úðun í hvora nös, eftir þörfum, mest þrisvar á dag. Lyð má nota í mest 7 daga í senn. Naso-ratiopharm 0,5 mg/ml: Lyð
er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Tíminn á milli skammta skal ekki vera styttri en 8 klst. Naso-ratiopharm 1 mg/ml: Lyð er ekki ætlað
börnum yngri en 10 ára. Tíminn á milli skammta skal ekki vera styttri en 6 klst. Algengustu aukaverkanir eru sviði og ofþornun í slímhúð í
ne. Einstaklingar sem m.a. nota MAO-hemla, eru með þrönghornsgláku eða hafa ofnæmi fyrir xylometazolini eða einhverju
hjálparefnanna skulu ekki nota lyð, sjá nánar í fylgiseðli. Lesið vandlega fylgiseðlinn sem fylgir lynu. Nóvember 2012.