Fréttatíminn - 13.04.2012, Blaðsíða 4
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
YFIR 30 GERÐIR
GASGRILLA
FULLT VERÐ
54.900
44.900
Michelsen_255x50_A_0511.indd 1 05.05.11 14:24
B rynjólfur Bjarnason, framkvæmda-stjóri Framtakssjóðs Íslands, situr ekki óumdeildur í stöðu sinni.
Ítrekuð samkeppnislagabrot hjá Símanum
og Skiptum á meðan hann stýrði félög-
unum og háar afskriftir og niðurfærslur
lífeyrissjóðanna á skuldabréfum áður-
nefndra félaga, rúmlega 900 milljónir, hafa
gert það að verkum að kurr ríkir á meðal
nokkurra hluthafa sjóðsins. Þorkell Sigur-
laugsson, stjórnarformaður sjóðsins, sagði
í Fréttatímanum í síðustu viku að Brynj-
ólfur, sem var ráðinn fyrir rúmum mánuði,
nyti fyllsta trausts innan félagsins.
Ekki er þó allir sammála því. Guð-
mundur Gunnarsson, stjórnarformaður
Stafa lífeyrissjóðs, bloggaði í kjölfar orða
Þorkels í Fréttatímanum og sagði það ekki
rétt að Brynjólfur nyti fyllsta trausts allra.
Stafir eru sjöundi stærsti hluthafi Fram-
takssjóðsins með rúmlega fimm prósenta
hlut og segir Guðmundur í samtali við
Fréttatímann að hann og aðrir stjórnar-
menn Stafa hefðu verið agndofa þegar þeir
lásu orð Þorkels. „Það er margoft búið
mótmæla þessu enda vorum við ósáttir
við þessa ráðningu. Það var út í hött að
ráða þennan mann og við munum koma
okkar skoðun enn skýrar á framfæri við
stjórnina. Það er ótrúlegt að ekki sé hægt
að finna mann sem ekki er með þessa for-
tíð. Menn ætluðu að reyna að vinna lönd
í trausti en vinna í staðinn svona. Þessi
ráðning hefur ekki okkar stuðning,“ segir
Guðmundur.
Þráinn Valur Hreggviðsson, stjórnar-
formaður Lífeyrissjóðs verkfræðinga, sem
þurfti samkvæmt skýrslu úttektarnefndar
Landssamtaka lífeyrissjóða, að afskrifa
eða færa niður skuldabréf Símans og
Skipta um rúman hálfan milljarð, segir í
samtali við Fréttatímann að það sé rétt-
mætt að velta upp spurningunni um hæfni
Brynjólfs til að stýra Framtakssjóðnum.
„Stjórnin hjá okkur hefur ekki fjallað um
þessa ráðningu enda er hún ný tilkomin.
Það er fundur á þriðjudag og þá verður
þetta rætt,“ segir Þráinn Valur en sjóður-
inn á 1,1 prósent hlut í Framtakssjóðnum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Íbúðamarkaður
líflegur í mars
Samtals var 445 kaupsamningum um
íbúðarhúsnæði þinglýst á höfuð-
borgarsvæðinu í mars og nam veltan
rétt rúmum 14,5 milljörðum króna,
samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands.
Meðalupphæð á hvern kaupsamning var
32,6 milljónir króna. Þetta er umtals-
verð aukning frá fyrri mánuði eða um
fjórðung í fjölda samninga talið og
um 38 prósent í veltu. Þá er einnig um
að ræða aukningu frá sama mánuði
fyrra árs en í mars í fyrra voru gerðir
409 kaupsamningar á höfuðborgar-
svæðinu og hefur samningunum því
fjölgað um 9 prósent á milli ára, að því
er fram kemur hjá Greiningu Íslands-
banka. Á fyrsta ársfjórðungi var 1.171
kaupsamningi þinglýst á höfuðborgar-
svæðinu samanborið við 908 samninga
á sama tíma fyrir ári, sem er fjölgun
um 30 prósent milli ára. Veltan nam
36 milljörðum miðað við 25 milljarða á
sama tímabili fyrra árs. Fjöldi samninga
á fyrsta ársfjórðungi er svipaður og
hann var á sama tímabili árið 2008. - jh
Leiðrétt
Lagahöfundur íslenska Eurovision-lagsins
heitir að sjálfsögðu Greta Salóme Stefáns-
dóttir og ekkert annað. Fréttatíminn biðst
velvirðingar á því að hafa oftar en einu sinni
farið rangt með nafn hennar í síðasta blaði.
Eign lífeyrissjóða hækk-
aði um nær 50 milljarða
Hrein eign lífeyrissjóðanna hækkaði um
49,5 milljarða króna í febrúar eða um
2,3 prósent. Þetta er mesta aukning
sem orðið hefur á milli mánaða í þrjú ár,
en undanfarna 12 mánuði hafa eignir
sjóðanna hækkað um að meðaltali um 19,3
milljarða króna í mánuði hverjum. Þessi
aukning kemur í kjölfar mikillar aukningar
í janúar þegar eignir sjóðanna jukust um
36,5 milljarða króna og fer því árið mjög
vel af stað hjá lífeyrissjóðunum, að því er
fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka
en vitnað er til talna Seðlabankans. Hrein
eign lífeyrissjóðanna nam í lok febrúar
2.182 milljörðum króna eða sem 134
prósent af vergri landsframleiðslu síðasta
árs. Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst um
201 milljarð undanfarna 12 mánuði sem
samsvarar aukningu um 12,2 prósent. Að
teknu tilliti til verðbólgu var raunaukning
eigna sjóðanna 5,5 prósent. Raunávöxtun
hefur þó verið lakari enda nema iðgjalda-
greiðslur sjóðfélaga mun hærri fjárhæð
en greiðslur til lífeyrisþega og úttektir
séreignasparnaðar. - jh
Framtakssjóður BrynjólFur Bjarnason
Það er ótrúlegt
að ekki sé hægt
að finna mann
sem ekki er með
þessa fortíð.
„Út í hött að ráða
þennan mann“
Stjórnarformaður Stafa lífeyrissjóðs, sjöunda stærsta hluthafans í Framtakssjóði Íslands, blæs
á þær fullyrðingar formanns sjóðsins að framkvæmdastjórinn Brynjólfur Bjarnason njóti fyllsta
trausts allra sem koma að sjóðnum. Samkeppnislagabrot og afskriftir á skuldabréfum veikja
stöðu framkvæmdastjórans.
Brynjólfur Bjarnason nýtur ekki
trausts sjöunda stærsta hluthafa
Framtakssjóðsins. Ljósmynd/365
Guðmundur
Gunnarsson,
stjórnarformaður
Stafa lífeyrissjóðs.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Fremur SvaLt oG LéttSkýjað, en Smá éL
eða SLydduéL verða norðauStan- oG
auStanLandS.
HöFuðBorGarSvæðið: HæGuR VinduR Létt-
SkýjAð oG Hiti ALLt Að 5 StiGuM.
ÚrkomuSvæði við veSturStröndina, en
annarS Bjartviðri oG SÓLríkt. áFram
Fremur SvaLt.
HöFuðBorGarSvæðið: SLyddA AnnAð
VEiFið oG Hiti 1 tiL 3 StiG.
Svipað veður en Hitinn toSaSt
Lítið eitt upp.
HöFuðBorGarSvæðið: SkýjAð MEð köFLuM
En Að MEStu úRkoMLAuSt.
Góðviðri og frekar milt
syðra
Fremur svalt verður um helgina og mun
veðrið einkennast af sól á daginn og nætur-
frosti. norðaustan- og austanlands verður
éljagangur í dag, föstudag, en síðan léttir
til. Vestanlands er að sjá sem
úrkomusvæði ætli að verða
viðloðandi á laugadag, en
óvissa er um umfang þess og
hvort það sýni sig. Snjóað
gæti á fjallvegum. Hiti
hækkar lítið eitt á
sunnudag og strax eftir
helgi hlýnar.
4
1 1
0
4 3
0 2 0
5
5
4 4
5
5
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 13.-15. apríl 2012