Fréttatíminn - 13.04.2012, Blaðsíða 10
B jartmar Sigurðsson situr uppi með ónothæfa, þriggja hæða íbúð í 87 ára gömlu parhúsi
við Hverfisgötu í Hafnarfirði eftir að
hinn helmingur hússins var rifinn
vegna veggjatítlna í ársbyrjun 2009.
Íbúðin lekur þar sem milliveggur
íbúðanna er orðinn að útvegg, lagn-
irnar sem lágu um hluta nágrannans
standa óvarðar og heita vatnið segir
hann kalt á vetrarkvöldum. Aðeins nú
nýlega var neglt fyrir glugga og göt á
strípaða helmingnum.
Bjartmar segir bæjaryfirvöld hafi
fengið lögregluna til að brjóta sér
leið inn í íbúðina, sem var í útleigu,
til þess að taka rafmagn og vatn af
henni fyrir niðurrifið. Bæjaryfirvöld
hafi ekki gefið sér tíma til að ná tali af
honum þar sem nýta hafi átt timbrið á
þrettándabrennu þá um kvöldið. Bær-
inn vísar hins vegar til almannahags-
muna í dómi Héraðsdóms Reykjaness
frá júnílokum í fyrra. Húseigendur í
kring hefðu líklegast óttast um eignir
sínar fréttu þeir af veggjatítlunum.
„Í samtali við Erling Ólafsson,
skordýrafræðing, sagði hann við
mig að engin ummerki um veggja-
títlur væru í mínum helmingi húss-
ins en hann vildi þó ekki útiloka það.
Hann hefur einnig sagt mér að ekki
hafi legið svona á að rífa hinn helm-
ing hússins enda hafi þær verið þar í
tugi ára,“ segir Bjartmar. Í vitnisburði
Erlings fyrir dómi segir að hann telji
besta tímann til að eyða sýktu timbri
vera frá miðjum september til loka
apríl.
„Mér finnst því líklegra að sú saga
sem ég heyrði að þáverandi bæjar-
stjórnendur hafi fengið þá frábæru
hugmynd að slá tvær flugur í einu
höggi, rífa húsið og útvega eldsmat
á brennu hjá Haukum um kvöldið,“
segir Bjartmar og vitnar í frétt RÚV
frá miðjum janúar 2009, sem sagði
frá brennunni sem veggjatítlutimbrið
prýddi. Þar frétti Bjartmar fyrst af
niðurrifinu og krossbrá.
Bjartmar berst í bökkum
Samkvæmt dómnum voru fram-
kvæmdirnar á ábyrgð eigandans en
á kostnað framkvæmdasviðs bæjar-
ins. Fyrirtækið Fura sá um það, en
Haraldur Þór Ólason, framkvæmda-
stjóri Furu ehf, sat þá í bæjarstjórn.
Í fundargerðum bæjarins má lesa að
starfsmenn hafi ekki gert sér grein
fyrir því að íbúð Bjartmars stæði
óeinangruð eftir niðurrifið.
Bjartmar, sem er að ljúka námi í
óperusöng í Skotlandi, missti leigj-
endurna fljótlega eftir niðurrifið.
Hann hefur ekki getað leigt húsið
út að nýju vegna þessara galla og því
ekki getað greitt af lánum sínum.
Leigutekjurnar voru 140 þúsund
á mánuði. Hann stefndi bænum og
eiganda hins helmingsins til greiðslu
bóta og dæmdi héraðsdómur meðeig-
andann bótaskyldan en sá stóð ekki
undir greiðslunni. Fallni helmingur-
inn er nú í eigu Lífeyrissjóðs ríkis-
starfsmanna.
Staða Bjartmars er ekki björt. „Ég
berst í bökkum,“ segir hann. „Mér
finnst sem ég hafi lent í náttúruham-
förum.“ Hann hefur rætt við sölu-
mann sem freistar þess að selja fyrir
lífeyrissjóðinn. „Hann sagði að þetta
hús verði alltaf veggjatítluhús í huga
fólks. Sama þótt það verði lagað.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
10 fréttir Helgin 13.-15. apríl 2012
Situr uppi með tjón vegna
veggjatítlna nágrannans
Upphaf veggjatítlumálsins í Hafnarfirði
var sú að eigandi veggjatítluíbúðarinnar,
sem bjó í húsinu ásamt börnum sínum,
steig niður úr baðherbergisgólfi hússins
að Hverfisgötu 41A síðla árs 2008.
Sérfræðingur var þá kallaður til sem
staðfesti veru títlnanna og að þær hefðu
verið þar lengi.
Fyrir dómi var Erling Ólafsson, skor-
dýrafræðingur, spurður hvort eigandi
íbúðarinnar hefði átt að geta gert sér
grein fyrir ástandi hússins kvað sagði
hann ástandið hafa verið það slæmt að
það gæti ekki dulist neinum. Í kjallara
hússins hefðu til dæmis verið göt á
viðnum eins og eftir haglabyssuárás.
Erling sagði að allt tréverk hússins
hafi verið ónýtt og ástand þess það versta sem hann hefði séð. „Það fór ekki milli mála
að allur viður var sýktur og gataður eftir veggjatítlur,“ sagði hann. „Suma viðina mátti
hreinlega dufta milli fingurgóma svo illa voru þeir farnir.“ - gag
Hér má sjá ástand hússins eftir að önnur íbúðin var rifin í janúar 2006. Eftir stóð
íbúð Bjartmars ónothæf vegna kulda og leka. Nú nýlega var neglt fyrir glugga og dyr.
Bjartmar Sigurðsson.
70 prósent stráka
og 65 prósent
stúlkna í sjöunda
bekk í fyrra finnst
þau hæfilega
þung. Þrettán
prósent stúlkna
en tíu prósent
stráka telja sig
of mjóa, en 18
prósent stráka
og 25 prósent
stúlkna að þau
séu of feit.
Ákvörðun Ara Trausta á
sumardaginn fyrsta
Ari Trausti Guðmundsson
tekur endanlega ákvörðun
um framboð til embættis
forseta Íslands og kynnir
hana á blaðamannafundi
á sumardaginn fyrsta, það
er að segja næstkomandi
fimmtudag, 19. mars. Þetta
kom fram í tilkynningu hans
en í viðtali við Fréttatímann
9. mars síðastliðinn kom fram að hann íhugaði for-
setaframboð af alvöru. „Það á ekki að hafa áhrif á
ákvörðunina hverjir eru meðframbjóðendur,“ sagði
Ari Trausti þá. „Þá er ekki verið að hugsa um það
sem skiptir máli, hvort menn telji sig hafa eitthvað
fram að færa.“ - jh/Ljósmynd Valdimar Leifsson
Heimild: Rannsóknir og greining.
70%
65%
Einn Sindrastóll fyrir hvert ár
Um þessar mundir er unnið að
endurgerð Sindrastólsins svokallaða
sem naut mikill vinsælda á Íslandi á
sjöunda áratug síðustu aldar. Stólinn
er kenndur við framleiðandann, Sindra
hf í Reykjavík. Það er fyrirtækið GÁ
húsgögn í Reykjavík sem stendur
að endurgerðinni. Sindrastóllinn er
íslensk hönnun og kom fyrst á markað
árið 1961. Meðal þeirra sem koma að
framleiðslu stólsins nú er fyrirtækið
Ikan ehf, bátasmiðja og frumkvöðla-
setur í Brákarey í Borgarnesi, að því er
Skessuhorn greinir frá. Sólóhúsgögn
í Reykjavík sjá um smíði stálgrindar undir stólinn, Sjávarleður á Sauðárkróki fram-
leiðir gæruna sem klæðir skelina og GÁ húsgögn annast bólstrun. Ásgeir Einarsson
hannaði stólinn en hann hefur verið ófáanlegur síðan 1970. Fimmtíu stólar verða
búnir til í sérstakri hálfrar aldar endurgerð – einn stóll fyrir hvert ár. - jh
Bjartmar Sigurðsson situr uppi með hripleka, óeinangraða íbúð í parhúsi eftir að bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði ákváðu í flýti í upphafi ársins 2009 að rífa hina íbúðina vegna veggjatítlna. Ástæðan:
„Það þurfti að bjarga brennu kvöldsins.“ Bjartmar hefur ekki getað leigt húsið út en fyrri leigjendur
hrökkluðust úr húsinu eftir að þau komu að því rafmagns- og vatnslausu úr jólaleyfi í útlöndum.
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s
Njóttu þess að heyra betur
með ósýnilegu heyrnartæki!
Intigai eru fyrstu ósýnilegu heyrnartækin frá Oticon. Intigai eru sérsmíðuð og liggja svo djúpt
í eyrnagöngunum að enginn mun sjá þau eða átta sig á því að þú sért með heyrnartæki.
Intigai eru fullkomlega sjálfvirk og aðlaga sig að því hljóðumhverfi sem þú ert í hverju sinni.
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
og fáðu heyrnartæki til prufu í vikutímaStærð á Intigai í samanburði
við kaffibaunir
Steig í gegnum baðherbergisgólfið