Fréttatíminn - 13.04.2012, Blaðsíða 54
Gabby Maiden Keppir fyrir niKita á aKextreMe
Vinirnir Sveppi og Auddi lögðu land undir fót fyrir nokkrum misserum
og þvældust í gegnum ýmsar hressilegar þrautir um Bandaríkin þver
og endilöng ásamt félögum sínum Gillzenegger og Villa nagl-
bít. Ferðalaginu voru gerð skil í sjónvarpsþáttunum Ameríski
draumurinn á Stöð 2 árið 2010 við talsverðar vinsældir auk
þess sem þátturinn var tilnefndur til Eddunnar það árið
sem skemmtiþáttur ársins. Nú stendur til að endurtaka
leikinn og þvælast um Evrópu, meðal annars með viðkomu
í Mónakó. Ekki er ólíklegt að Auðunn Blöndal hafi pantað
þann áfangastað vegna þess að þar er nóg af spilavítum en
drengurinn sá er mikið fyrir póker og spilavíti. Gillz og Villi
verða ekki með í för að þessu sinni en ferðafélagar Audda
og Sveppa eru þó ekki af verri endanum þar sem fregnir
herma að Steindi Jr. og Pétur Jóhann Sigfússon fylli
skarð þeirra sem fóru til Ameríku sem viðhengi.
Nýtt tvíeyki með Sveppa og Audda
„Ég er frá Los Angeles og aðal skíðasvæðið í Suður-Kaliforníu er aðeins um tvo klukkutíma frá borginni við Big Bear Lake.
Þetta er einn af fáum stöðum þarna sem hægt er að renna sér á brettum og þetta er alveg frábær staður,“ segir Gabby sem
var tólf ára þegar hún byrjaði að æfa sig við Big Bear Lake. Mynd/Hari
Brettatöffari
og tískufyrirsæta
É g held ég hafi komið til Íslands í fyrsta skipti fyrir um þremur árum,“ segir Gabby Maiden, snjóbrettatöff-
ari og fyrirsæta. Hún er löngu kolfallin
fyrir Reykjavík en landslagið í dreifbýlinu
og fólkið þar heillaði hana áður en hún leit
höfuðborgina augum. „Við vorum bara úti á
landi að mynda útivistarfatnað Nikita og ég
heillaðist strax af því sem ég sá þar.“
Gabby segist hafa komið hingað reglulega
til þess að leika sér og sitja fyrir hjá Nikita
en hún hefur aldrei dvalið hér jafn lengi í
einu og núna. „Myndatökurnar hafa alltaf
verið hérna á sama tíma og Airwaves og ég
hef aldrei verið lengur en í svona tvær vikur í
senn. Ég kynntist samt ótrúlega mörgu fólki
í þessum heimsóknum og nú síðast ákvað
ég að vera lengur og það er að verða komið
hálft ár. Mér finnst ég eiga mér mitt annað
líf hérna,“ segir Gabby sem leiðist ekki eitt
augnablik á Íslandi.
„Þetta hefur verið meiriháttar. Ég er búin
að renna mér dálítið á brettinu, ekki bara
á fjöllum heldur líka um göturnar,“ segir
Gabby sem er dugleg að kvikmynda ævintýri
sín í miðborginni.
„Ég hef lika spilað tónlist hérna en ég leik
á ukulele og syng.“ Gabby hefur einnig tekið
nokkra snúninga sem plötusnúður og tekið
að sér fyrirsætuverkefni. „Ég hef verið að
gera helling hérna enda eru tækifærin hérna
svo mörg. Ísland er svo frábært.“
Snjóbretta- og tónlistarhátíðin AKExtreme
verður haldin í sjötta sinn á Akureyri um
helgina. Hátíðin nýtur sívaxandi vinsælda og
í fyrra fylgdust um 7000 manns með besta
snjóbrettafólki landsins keppa fyrir norðan.
Gabby ætlar ekki að láta sig vanta og keppir
undir merkjum Nikita í Burn Jib keppni í
göngugötunni á morgun. Heiða, sem kennd
er við Nikita og fleira fólk verður með henni í
för en ferðina norður ætla þau að nota til þess
að ljós- og kvikmynda Gabby í hasar í Nikita-
fatnaði í Hlíðafjalli.
Gabby er frá Los Angeles og var tólf ára
þegar hún byrjaði að renna sér á snjóbretti
við Big Bear Lake. Átján ára var hún komin
í atvinnumennsku og þá strax sýndi Nikita
henni áhuga. „Þeim líkaði stíllinn minn og
byrjuðu að senda mér vörur. Síðan vatt þetta
upp á sig. Nikita er minn helsti bakhjarl og
útvegar mér keppnisfatnað og líka bretti en
þau byrjuðu að framleiða bretti nýlega og
ég verð með allar þessar græjur með mér
á Akureyri um helgina.“ Gabby segist hafa
verið mjög spennt þegar henni var boðið
fyrir nokkrum árum að ganga til liðs við
Nikita-fjölskylduna. „Þegar ég var nítján ára
bauð Heiða mér að koma í myndatöku í San
Francisco fyrir götufatnaðinn og að hitta sig
og Nikita-liðið. Þau buðu mér svo að keppa
undir merkjum Nikita. Brettakeppnin var
fyrst aðal málið en síðan fór ég að sitja meira
fyrir hjá þeim líka en ég hef unnið fyrir mér
bæði í atvinnumennsku á snjóbrettunum og
sem fyrirsæta.“
M eiriháttar tækifæri, mikill ferskleiki og mannbætandi,“ segir Guðjón Már Guðjóns-
son, oftast kenndur við OZ, spurður
um ávinning þess að hafa verið valinn
framúrskarandi Íslendingur af alþjóð-
legu hreyfingunni JCI árið 2009 og
í kjölfarið einn þeirra tíu þeirra sem
helst teljast framúrskarandi einstak-
lingar á heimsvísu það ár.
Guðjón situr í ár í dómnefnd sam-
takanna og leitar til landsmanna eftir
tilnefningum sem lagðar verða fyrir
nefndina. Hún velur þann sem keppir
fyrir Íslands hönd og kemst á heims-
þing samtakanna í Taívan nái hann á
topp tíu.
Guðjón segir að þótt samtökin fari
ekki hátt hér á landi séu þau þekkt
bæði í Asíu og Bandaríkjunum. Þaðan
hefur hann hitt ótrúlega hæfileikaríkt
fólk og einstaklinga sem hafi náð langt
á sínu sviði á heimsþinginu.
Með Guðjóni í dómnefnd er forseti
samtakanna, Viktor Ómarsson, ásamt
ólympíuleikafaranum Kristínu Rós Há-
konardóttur, en Kristín Rós var meðal
tíu hlutskörpustu í heiminum árið
2003. Viktor segir merkilegt hversu
margt ungt fólk í heiminum hafi
hreppt hnossið áður en það náði heims-
frægð og séu nú jafnvel goðsagnir.
„Já, hver er þess verðugur að feta í
fótspor stórstjörnunnar Elvis Presley
eða alþýðuforsetans John F. Kennedy,“
spyr hann en þeir voru valdir á sínum
tíma. Guðjón bendir þeim sem vilja til-
nefna verðuga Íslendinga á aldrinum
átján til fjörutíu ára að senda þær á net-
fangið jci@jci.is.
En hvað þarf til? „Að vera tilbúinn
að halda áfram þótt vindar blási á móti
og einnig að vera drifinn áfram af
hugrekki til að gera góða hluti,“ segir
Guðjón.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
alþjóðahreyfinG leita fraMúrsKarandi ÍslendinGs
Í fótspor Presley, Kennedy eða Kristínar Rósar
Svarteyg baun á Íslandi
Printz Board, tónlistar-
stjóri og hljómsborðsleik-
ari ofursveitarinnar Black
Eyed Peas, er staddur hér á
landi í skemmtiferð. Eftir
því sem heimildir Frétta-
tímans herma hefur hann
ferðast vítt og breitt um
landið og kíkt á næturlífið.
Board hefur getið sér gott
orð í tónlistarbransanum
undanfarin ár, samið mörg
af vinslæstu lögum Black
Eyed Peas og unnið fyrir
listamenn á borð við Macy
Gray, Kate Perry, Shak-
iru og Busta Rhymes.
Þótt Will.I.am og Fergie
sé líklegast þekktust af
meðlimum Black Eyed Peas
er mál þeirra sem til þekkja
að Board hafi átt einna
mestan þátt í velgengni
sveitarinnar.
Gabby Maiden kynntist Íslandi í tengslum við vinnu sína fyrir Nikita-fatalínuna. Hún er ískaldur
snjóbrettatöffari sem byrjaði að renna sér tólf ára gömul í hlíðum fjallanna við Big Bear Lake
í Kaliforníu. Hún hefur unnið fyrir sér sem atvinnumaður á snjóbretti um árabil, keppir undir
merkjum Nikita og er einnig fyrirsæta hjá fataframleiðandanum.
Mér finnst
ég eiga mér
mitt annað
líf hérna.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@
frettatiminn.is
Guðjón Már Guðjónsson, frumkvöðull og athafnamaður, verður í dómnefnd JCI, sem
leitar í fyrsta sinn út fyrir samtökin eftir dómurum. Mynd/Hari
Skúli Branson
Lággjaldaflugfélagið WOW Air hóf að
fljúga til þrettán áfangastaða í Evrópu
þann 1. júní. Félagið hefur verið áber-
andi frá stofnun þótt starfsemi þess sé
enn ekki komin á fullt. Auglýsingar frá
félaginu hafa vakið athygli og ljóst að
Matthías Imsland og stjórnarformaður-
inn Skúli Mogensen ætla sér að taka
flugið með stæl. Sagan segir að Skúli
íhugi að skella sér í fjólubláan flug-
þjónabúning WOW og þjóna farþegum
í jómfrúarferð flugfélagsins. Sjálfur
Virgin-flugmógúllinn Richard Branson
hefur áður tekið upp á slíku og gengt
starfi flugþjóns þannig að ekki er leiðum
að líkjast ef Skúli lætur verða að þessu.
Branson er flestum mönnum flinkari
við að vekja
athygli á
sjálfum sér
og fyrirtækj-
um sínum en
hann þjónaði
um borð í
einni véla
Air-Asia á
sínum tíma
eftir að hafa
tapað veð-
máli við Tony
Fernandes,
forstjóra
félagsins.
N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R
50%
afsláttur
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
54 dægurmál Helgin 13.-15. apríl 2012