Fréttatíminn - 13.04.2012, Blaðsíða 13
– Lifið heil
Gildir til 30. apríl.
15%
afsláttur
af Nicorette þrennu
www.lyfja.is
Lægra
verð
í Lyfju
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.IS
/ L
YF
5
92
58
0
4/
12
Nicorette forðaplástrar
Verð frá 3.535 kr.
Nicorette innsogslyf
Verð frá 2.124 kr.
Nicorette fruitmint
lyfjatyggigúmmí
Verð frá 679 kr.
BIKINÍ-ÁSKORUN
Allar nánari upplýsingar um
námskeiðin, tímasetningu,
verð og skráningu finnur
þú á www.hreyfing.is
Innifalið í námskeiðinu:
• Þjálfun og mataræði tekið í gegn
• Sérhannað æfingakerfi sem miðar að því að komast úr stöðnun
og tryggja að þú komist í þitt allra besta form
• Auka æfingaáætlun til að tryggja þátttakendum hámarksárangur
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu – jarðsjávarpotti
og gufuböðum
• Dagleg hvatning, fróðleikur og aðgangur að uppskriftum frá
Ágústu Johnson á lokuðu heimasvæði inni á www.hreyfing.is
• Sérstakt mataræði sem er byggt upp á sama hátt og vinsælt
er hjá Hollywood-stjörnum sem þurfa að koma sér í toppform
fyrir rauða dregilinn –við tryggjum að það er heilsusamlegt
og skynsamlegt!
• Mælingar – vigtun og fitumælingar – fyrir og eftir
• Kvöldstund í Blue Lagoon spa
Taktu áskorun og vertu í þínu allra besta
formi í sumar. Vertu léttari á þér, léttari
í lund, sterkari og flottari!
Hver ræður?
Páll er heldur ekkert sérstaklega
ánægður með velferðaráðuneytið.
„Ég fer nú bara fram á að lögum
sé fylgt og spyr sjálfan mig hver
ræður eiginlega? Er það ráðherra
eða skúringarkonan?“ spyr Páll og
furðar sig á aðgerðarleysi ráðu-
neytisins. Það hafi þegar sent tvö
bréf til landlæknis og beðið um
að málið sé skoðað á nýjan leik en
ekkert meira. „Fyrir mér lítur þetta
út eins og ráðuneytið sé að þykjast
gera eitthvað.“
Ekki sama þingmaður og
venjulegur Páll
Og Páll segir að ekki gildi hið sama
fyrir alla í þessu þjóðfélagi. „Ég
veit ekki betur en að allt hafi farið
á annan endann þegar bankaupp-
lýsingum þingmanns var lekið.
Starfsmaðurinn var rekinn og lög-
reglurannsókn sett í gang. Þegar
hinn almenni borgari verður fyrir
því að viðkvæmum persónuupp-
lýsingum er flaggað í trássi við lög
þá er ekkert gert. Bara áminning
og síðan haldið áfram,“ segir Páll
og bætir við að hann sé að berjast
fyrir alla Íslendinga í þessum slag
sínum. „Ég er meira að segja að
berjast fyrir Magnús Kolbeinsson.
Það er algjört prinsippmál að hægt
sé að treysta því að þessi gögn séu
ekki opin almenningi.“
Ekki ástæða til að ganga lengra
Geir Gunnlaugsson landlæknir
segir í samtali við Fréttatímann
að í þessu tiltekna máli hafi ekki
verið talin ástæða til að ganga
lengra en raun ber vitni. „Ég finn
til samúðar með Páli í þessu máli
en hann lenti í skotlínunni í deilu
tveggja lækna. Við skoðuðum
þetta mál ítarlega og komumst að
þessari niðurstöðu,“ segir Geir.
Hann játar því að málinu sé ekki
lokið. „Málið er í ferli á milli vel-
ferðarráðuneytis og okkar og
ekki ljóst hvernig það fer,“ segir
Geir.
Aðspurður um að þá gagnrýni
Páls að lítið þýði að leggja fram
kvörtum við landlækni þar sem
ekkert sé gert segir Geir að emb-
ættið skoði allar kvartanir. „Það
er hins vegar ljóst að stundum
verða niðurstöður slíkrar at-
hugunar á þann hátt að þeir sem
kvarta verða ekki ánægðir. Við
lofum ekki fólki þeirri niðurstöðu
sem það sækist eftir. Við tökum
hins vegar þessi mál alvarlega
og skoðum þau vandlega,“ segir
Geir og bætir við að hann geti
ekki tekið undir þau orð Páls að
embættið sé með allt niður um sig
í þessu máli. „Það er hans skoðun
en ég er ekki sammála henni.“
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is