Fréttatíminn - 13.04.2012, Side 6
KAFFIVÉLAR
Mest seldu sjálfvirku
kaffivélarnar á Íslandi
um árabil.
• Sjálfvirk kaffivél
• Ketill úr ryðfríu stáli
• Kvörn úr keramík
• Panarello flóunarstútur
• Baunahólf: 170 gr
• Vatnstankur: 1 lítrar
• Korgskúffa: 8 bollar
• Þrýstingur: 15 bör
• Til heimilisnotkunar
• 1500 wött
Saeco HD8743
TILBOÐ 49.990
VERÐ ÁÐUR 69.990
Drápsjárn
fjarlægð af
Rjúpnahæð
Ríkisútvarpið lét fjarlægja hluta hættulegra járna sem voru í
undirstöðum útvarpsmastra en enn er mikið eftir. Allt verður
fjarlægt og gengið frá málum þannig að ekki stafi hætta af,
segir talsmaður Ríkisútvarpsins.
Járn og gaddavír er enn að finna þar sem útvarpsmöstrin voru á Rjúpnahæð. Allt á
að fjarlægja. Ljósmynd Selma Olsen
Þ eir hafa tekið niður járnin sem drápu Eldar og járn sem voru eins og þau á nokkrum
stöðum en enn er hins vegar er enn
mikið af járnum eftir og gaddavír
sem ekki hefur verið gert neitt við,“
segir Selma Olsen, eigandi hund-
ins Eldars, sem drapst eftir að hafa
lent á hvössum járnum sem stóðu
út úr fyrrum undirstöðum útvarps-
mastra sem voru á Rjúpnahæð, ofan
Seljahverfis í Reykjavík.
Fréttatíminn greindi frá málinu
í liðinni viku en iður hundsins lágu
úti og bein og tennur brotnuðu.
Dýralæknar gátu ekki bjargað lífi
hans. Starfsmenn Ríkisútvarpsins
brugðust skjótt við, eftir að Selma
greindi þeim frá slysinu, og fjar-
lægðu járnin sem urðu hundinum
að aldurtila. Eyjólfur Valdimars-
son, forstöðumaður þróunarsviðs
Ríkisútvarpsins, segir að brugðist
hafi verið við þegar slysið varð en
hafi málið ekki verið klárað þurfi
að fara betur yfir það. „Við ætlum
að ganga þannig frá málum að ekki
stafi hætta af, förum yfir þetta og
gerum þetta sómasamlega. Svo
verður girðing lögðuð en svæðið
var afgirt en girðingin hefur vænt-
anlega farið niður að hluta. Auðvit-
að geta krakkar farið inn fyrir og
þetta er slysagildra,“ segir Eyjólfur.
Hann segir að annað útvarps-
mastrið hafi fokið niður árið 1991
og hitt hafi verið sprengt niður í
framhaldi af því. Sú er skýring
þess að járnin standa út úr undir-
stöðunum. Annars staðar á landinu
hafi svipuð mannvirki verið tekin
niður og seld, til dæmis í Skjald-
arvík. Þá hafi mastur verið tekið
niður á Hornafirði og gengið frá
eftir það.
Eyjólfur vill þó taka fram að
varhugavert sé að fólk sé að viðra
hunda og jafnvel sleppa þeim á
svæðinu enda búi húsvörður eða
staðarhaldari í húsi á Rjúpnahæð-
inni með börn.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn
Rjúpnahæð hunduR dRapst á háskajáRnum
F ótboltasíðan vinsæla Fótbolti.net heldur upp á tíu ára afmæli sitt um helgina. Vefurinn er
stærsti fótboltavefur landsins og
hefur vaxið mikið á undanförnum
árum. Magnús Már Einarsson, ann-
ar ritstjóra vefsins, segir í samtali við
Fréttatímann að vefurinn hafi vaxið
jafnt og þétt og það sama megi segja
um fjölda lesenda. „Ef maður horfir
aftur í tíðina er ekki hægt að bera
saman fréttirnar í árdaga síðunnar
og fréttirnar okkar í dag, gæðin eru
allt önnur í dag. Ég held að 99 pró-
sent af viðbrögðum sem maður hef-
ur fengið um síðuna séu jákvæð og
það líður varla sá dagur að fólk komi
ekki og hrósi fyrir okkar starf,“ segir
Magnús Már en hann hefur starfað
við vefinn nánast frá byrjun – byrjaði
þegar hann var þrettán ára.
Auk Magnúsar Más eru tveir
starfsmenn í fullu starfi við vefinn;
Elvar Geir Magnússon, meðritstjóri
hans og Hafliði Breiðfjörð, stofn-
andi og framkvæmdastjóri. „Sjálf-
boðaliðar sem leggja okkur lið eru
margir, sérstaklega á sumrin þegar
við reynum að fjalla um allar deildir
í íslenska boltanum sem best við get-
um. Heilt yfir hafa örugglega vel yfir
100 manns komið að starfi síðunnar
á einn eða annan hátt í gegnum tíðina
og það góða fólk á mikið hrós skilið,“
segir Magnús Már og bætir því við að
Hafliði Breiðfjörð hafi stofnað vefinn
árið 2002 og upphaflega átti hann að
vera einungis í kringum HM í Suður-
Kóreu og Japan það árið. Áhuginn
hafi hins vegar verið svo mikill að
síðan hélt áfram.
Og afmælisbarnið er enn fullt
metnaðar. „Stefnan er að gera vefinn
betri á hverjum degi. Vonandi verður
hægt að horfa til baka eftir 10 ár í við-
bót og sjá jafnmiklar framfarir á vefn-
um og hafa verið á fyrstu 10 árunum,“
segir Magnús Már. -óhþ
aFmæli stæRsti FótboltaveFuR landsins
Fótbolti.net tíu ára um helgina
Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Hafliði Breiðfjörð, for-
sprakkar Fótbolta.net. Ljósmynd/Hari
6 fréttir Helgin 13.-15. apríl 2012