Fréttatíminn - 13.04.2012, Qupperneq 14
Krabbamein, astmi, ofnæmi, exem,
treg blóðrás, blöðruhálskirtilsbólga,
parkinsonveiki, umgangspestir .......
Lúpínuseyðið
gæti hjálpað
www.lupinuseydi.is s. 517 0110
Lúpínuseyðið sem Ævar Jóhannesson gaf fólki
í rúma tvo áratugi gerði mörgum gott eins og
lesa má í æviminningum hans og á vefsíðunni
www.lupinuseydi.is. Hér verður ekkert fullyrt,
en það skaðar ekki að lesa sögurnar og meta
það sjálf hvort seyðið gæti gert ykkur gott.
Fæst í heilsubúðum
V erð á bensíni og dísilolíu er hærra en nokkru sinni. Rekstur bíla setur því verulegt strik í heimilisreikn-
inginn. Hið háa verð á olíu kemur ekki
aðeins niður á Íslendingum. Heimsmark-
aðsverðið er með þeim hætti að menn finna
fyrir því í öllum löndum. „Við kaupum
minnstu og ódýrustu bílana,“ sagði til
dæmis í fyrirsögn í danska Jótlandspóst-
inum nýverið. Þar var greint frá tíu sölu-
hæstu nýjum bílum í Danmörku í febrúar.
Allt voru það smábílar eða bílar í minni
kantinum, utan einn sem er í hópi þokka-
lega stórra fjölskyldubíla. Helmingur
bílanna kostar undir 100 þúsund dönskum
krónum, eða innan við 2,3 milljónir króna
þar í landi.
Söluhæsti bíllinn í Danmörku í febrúar
var smábíllinn Chevrolet Spark, 609 seldir.
Chevrolet Aveo kom næstur, 461 seldur, þá
Toyota Aygo, 459 og Kia Picanto, 421.
Fræg voru kaup Íslendinga á lúxus-
jeppum á bólguárunum þegar Range Rover
seldist meira hér en í nálægum löndum og
var þá ekki litið til höfðatöluútreikninga.
Þá settist jeppi Toyota, Land Cruiser, efst
á sölulista og þótti nokkrum tíðinum sæta
enda óneitanlega um dýran bíl að ræða.
Því er fróðlegt að skoða sölutölur nýrra
bíla á Íslandi nú, þegar bílasala er að glæð-
ast á nýjan leik eftir langt stöðnunartíma-
Bíltegund Fjöldi Verð Eyðsla
seldra bíla
1. Chevrolet Spark 609 1.859.000 kr. 5,1 lítri
2. Chevrolet Aveo 461 2.890.000 kr. 5,1 lítri
3. Toyota Aygo 459 2,195.000 kr. 4,3 lítrar
4. Kia Picanto 421 2.067.000 kr. 4,2 lítrar
5. Kia Rio 386 386 2.585.777 kr. 3,2 lítrar
6. Hyundai i30 378 3.190.000 kr. 6,0 lítrar
7. Opel Corsa 295 Upplýsingar liggja ekki fyrir
8. Opel Insignia 293 Upplýsingar liggja ekki fyrir
9. Fiat 500 285 2.570.481 kr. 4,8 lítrar
10. Peugeot 107 284 Upplýsingar liggja ekki fyrir
Smábílar einoka sölulista í Danmörku
– Landkrúser á toppnum hér
Toyota Land Cruiser var mest seldi bíllinn á Íslandi í nýliðnum mars, jeppi sem kostar frá 10,1 milljón til 14,1 milljónar króna. Þrátt fyrir hátt eldsneytisverð eru aðeins þrír smábílar meðal tíu söluhæstu hérlendis. Í
Danmörku eru níu af tíu söluhæstu bílunum smábílar. Ljósmynd Toyota
Níu af tíu
söluhæstu
nýjum bílum í
Danmörku eru
smábílar en þrír
á Íslandi þar
sem lúxusjepp-
inn Toyota Land
Cruiser selst
best allra nýrra
bíla.
Tíu söluhæstu bílar í Danmörku
Sala fólksbíla í Danmörku í febrúar. Miðað er við uppgefið verð á Íslandi. Alls
staðar er miðað við ódýrustu gerð bílsins. Eyðsla er uppgefin af umboðum. Miðað
er við blandaðan akstur.
Bíltegund Fjöldi Verð Eyðsla
seldra bíla
1. Toyota Land Cruiser 150 34 10.140.000 kr. 8,1 lítri
2.-3. Skoda Octavia 22 3.570.000 kr. 4,5 lítrar
2.-3. Toyota Yaris 22 2.670.000 kr. 4,8 lítrar
4. Toyota Avensis 16 4.420.000 kr. 6,5 lítrar
5. Suzuki Swift 14 2.450.000 kr. 5,0 lítrar
6.-7. Nissan Micra 13 2.390.000 kr. 5,0 lítrar
6.-7. Chevrolet Captiva 13 6.790.000 kr. 7,7 lítrar
8. Renault Megane 12 3.290.000 kr. 4,4 lítrar
9.-10. Volkswagen Passat 11 3,990.000 kr. 6,9 lítrar*
9.-10. Ford Focus 11 3.390.000 kr. 5,3 lítrar.
Tíu söluhæstu bílar á Íslandi
*Verð Volkswagen Passat er miðað við metanbíl. Sama á við um eyðsluna. Verð á sambærilegum
dísilbíl sem er næstur í verði er 5.290.000 kr. og eyðslan 5,3 lítrar. Miðað er við selda bíla í mars. Alls
staðar er miðað við ódýrustu gerð. Eyðsla er gefin upp af umboðum. Miðað er við blandaðan akstur.
14 fréttaskýring Helgin 13.-15. apríl 2012