Fréttatíminn - 13.04.2012, Side 46
Nú hafa lesendur frönsku
tískubiblíunnar Vogue, þeir sem
ekki hafa frönsku að móðurmáli,
talsverðu að fagna en stjórn
tímaritsins tilkynnti á dögunum
að blaðið verði einnig prentað á
ensku í nánustu framtíð. Hingað
til hefur blaðið aðeins verið
prentað á frönsku og eru þetta
því sérlega góðar fréttir fyrir
aðdáendur tímaritsins, þeirra
sem ekki skilja tungumálið. Nú
er bara að vona að ítalska Vogue
taki kollega sína í Frakklandi
sér til fyrirmyndar og skrifi sitt
tímarit jafnframt á ensku.
Helgin 13.-15. apríl 201246 tíska
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Birta
Ísólfsdóttir
fatahönnuður
5
dagar
dress
Með ein-
faldan en
fjölbreyti-
legan stíl
Thelma Haraldsdóttir er 18
ára nemi við Menntaskólanum í
Hamrahlíð og starfar samhliða
námi í versluninni GS Skóm.
„Ég er með mjög einfaldan
stíl en á sama tíma er hann fjöl-
breyttur,“ segir Thelma þegar
hún er spurð út í klæðaval sitt.
„Ég er ekki mikið fyrir að velja
mér ýkt eða öðruvísi föt og er
þetta allt rosa „plein“ held ég.
Það fer mjög mikið eftir dög-
unum hvernig ég klæðist og þá
því hvað dagurinn hefur upp á
að bjóða. Stundum nenni ég ekki
að hafa mikið fyrir því að gera
mig upp, en aðra morgna dunda
ég mér og eyði tíma í það.“
Þegar Thelma er spurð afhverju
hún klæðir sig eins og hún gerir
segir hún helst fólkið í kringum
sig hafa þessi áhrif. „Auðvitað
er internetið stór hluti af inn-
blæstrinum en ætli það séu þó
ekki helst bæði vinkonur mínar
og annað fólk í kringum mig eru
helstu áhrifavaldarnir afhverju
ég klæði mig eins og ég geri.“
Saumakonu-
misskilningur
Mig langar að ræða málefni sem er mér mjög
hugleikið og hefur oft komið upp í umræðum við
fólk með sömu menntun og ég. Ég er mennt-
aður fatahönnuður og fór í það nám til að læra
hvernig fatahönnun virkar í raun og veru, til að
læra að hanna. Áður en ég fór í þetta nám hafði
ég örlítið aðrar hugmyndir um hvað fatahönnun
er í raun og veru. Fatahönnuður rannsakar, býr
til nýja stíla, hugsar um litasamsetningar, sér
heildarmynd fatalínu og mótar nýjar hugmyndir.
Alltof margir halda að starf fatahönnuðarins sé
einungis það að sauma og hef ég oftar en ekki
fengið spurningar eins og: „Hey, ert þú ekki
svona fatahönnuður? Getur þú saumað buxur
handa mér alveg eins og þessar sem ég er í?“ Eða
þetta: „Værir þú til í að sérsauma á mig kjól, ég vil
hafa hann svona og svona?“ Svo ég fari nú ekki útí
blessaðar saumaviðgerðirnar sem margir halda
að ég hafi mikla ánægju af.
Ekki það að ég sé ekki fær um að gera þessa
hluti, heldur hefði ég þá bara farið í viðeigandi
nám og titlað mig saumakonu í símaskránni,
væru þetta verkefni sem ég vildi taka að mér. Að
sjálfsögðu eru margir ungir hönnuðir sem byrja
feril sinn á því að sauma allt sjálfir sem er nátt-
úrulega ekkert annað en frábært mál. Ég held að
meðal annars þar liggi misskilningurinn um að
fatahönnuðir séu saumakonur.
Stelur hugmyndum frá hátískuhönnuðum
Þriðjudagur
Skór: Gs Skór
Buxur: Kron Kron
Skyrta: Gk Reykjavík
Jakki: Topshop
Mánudagur
Skór: Spúútnik
Kjóll: Sautján
Peysa: Topshop
Hálsmen: Nostalgía
Ólétta söngkonan og hönnuðurinn Jessica Simpson halaði inn meira en
sem nemur einum milljarði bandaríkjadala á fatalínu sinni á síðasta ári sem
eru rúmir 128 milljarðar íslenskra króna. Hún hefur lagt mikið í línuna en nú
er komið babb í bátinn – aðrir hátískuhönnuðir hafa sakað söngkonuna fyrir
stuld. Skóhönnuðurinn Christian Louboutin er sá síðasti sem hefur látið
Jessicu heyra það, en Evangela-sandlarnir hennar eru nákvæm eftirlíking
Staratata-sandala sem Louboutin framleiddi á sínum tíma. Lítill sem enginn
munur er á skófatnaðinum annar en sá að Louboutin-skórnir
eru með rauðum sóla en
Jessicu ekki.
Söngkonan, og hin nýbakaða
móðir, Beyonce hefur heldur
betur látið til sín taka í net-
heimum. Nú er hægt að fylgjast
grannt með lífi hennar á nýju
heimasíðunni Beyonce.com
ásamt því að skoða myndasíðuna
hennar beyonce.tumblr.com þar
sem hún setur inn myndir
frá sínu daglegu lífi. Einnig
stofnaði hún aðgang á sam-
skiptavefnum Twitter þar
sem hún ætlar að tjá skoðanir
sínar daglega. Allar síðurnar
voru opnaðar á sama degi og
segir hún það löngu tímabært
að leyfa aðdáendum að fylgjast
með ferðum sínum og fjölskyldu.
Byeonce opnar aðdáendum dyrnar
Miðvikudagur
SKór: Bossanova
Buxur: Kron Kron
Skyrta: Weekdays
Jakki: Weekdays
Fimmtudagur
Skór: Kúltúr
Skyrta: Monki
Pels: Amma mín
átti hann
Föstudagur
Skór: GK reykjavík
Kóll: Velvet.is
Langermabolur: Sautján
Toppur: Kúltúr
Franska Vogue á ensku
Skór Jessicu til
hægri og skór
Louboutin til
vinstri
13