Fréttatíminn - 30.03.2012, Side 33
F
A
B
R
IK
A
N
OSTAVEISLA FRÁ MS
Gullostur
Hvítmygluostur. Hvítmyglan er einnig
inni í ostinum. Áhugaverður ostur
með mildu bragði sem gott er að
njóta í lok góðrar máltíðar. Þessi
ostur er einn af flaggskipunum í
ostafjölskylduni frá MS.
Heilbakaður Gullostur
með timjan og hvítlauk
Vefjið smjörpappír utan um ostinn, pikkið átta göt ofan í
ostinn og stingið ögn af timjan ásamt þunnum sneiðum
af hvítlauk ofan í götin. Dreypið örlítilli ólífuolíu yfir.
Pakkið ostinum aftur inn í bréfið sem var utan um hann
og bakið hann í 30 mínútur við 160°C. Berið ostinn
fram með grilluðu hvítlauksbrauði.
Osta er hægt að bera fram með ýmsum hætti, það
má t.d. borða Gullostinn með góðu ávaxtamauki, eða
með hnetum og hella síðan góðu hunangi yfir eða setja
í hann fyllingu úr þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum
og fíkjum og skreyta hann að ofan með þurrkuðum
trönuberjum og hlynsírópi. Búa til litlar og fallegar
ostasamlokur eða ostasnittur.
Kynntu þér fleiri góðar hugmyndir og
uppskriftir á heimasíðunni: www.ostur.is
Ostabakki
- antipasti
Grillaðar paprikur, sól- eða ofn-
þurrkaðir tómatar, grillað eggaldin,
hráskinka og þurrkaðar pylsur.
Gullostur, gráðaostur með ferskri
peru, blár Kastali.
Steyptur villisveppaostur skorinn
út í litla hringi. Maribóostur með
kúmeni. Kryddað apríkósumauk.
Baguette-brauð.
Uppskriftina að kryddaða apríkósu-
maukinu má finna á vefnum www.ostur.is
Önnur áhugaverð vekefni
Kryddjurtasorbetinn Hrísla, frystur á trjágrein frá Engi. Þrjár tegundir sem efla ein-
beitingu, hressleika og æskuljóma. Pantið áhrifin. Samanpakkanlegur og sjálfum sér
nægur veitingastaður varð til í Vallanesi. Viðskiptavinurinn pantar rétt eftir því hvaða
áhrif hann hefur á líkamann. Opinn myndar hann fullbúinn veitingastað með 20 fm
tjaldi. Lokaður er hann fyrirferðarlítill kassi á hjólum. Geitamjólkurbar frá Háafelli.
Mýbitinn varð til í Vogafjósi í Mývatnssveit. Mýbitinn er kúlulaga úr rúgbrauði með fyll-
ingu af ýmsu tagi. Kúluskítur var innblásturinn. Að Hrauni urðu til Kryddlegin hjörtu,
álegg ofan á brauð úr gulrófusneiðum. Umbúðirnar eru gult umslag eins og sendibréf,
mynd af framleiðslustað og texti með upplýsingum um hráefnið. Blóðbergsdrykkur
frá Sandi. Heilsudrykkur sem veitir neytandanum kraft og lækningamátt. Á umbúð-
unum eru setningar og brot úr ritverkum Sigfúsar Bjartmarssonar. Blóðbergsís eða
klaki frystur á stöng með vísun í kebab-kjötstykki. Örflögur eða Microchips unnar að
Skarði. Hollar kartöfluflögur, saltaðar í sjó, bornar fram í pakkningunni sem breytist í
skál með landakorti þar sem bærinn Skarð er merktur inn.
Sláturterta
Sláturterta úr innmat var unnin
fyrir veitingahúsið Fjallakaffi á
Möðrudal á Fjöllum. Rótargræn-
meti er í stað fitu og blóðberg
notað sem krydd. Tertan minnir á
marmaraköku þegar hún er skorin
því lifrarpylsu- og blóðmörsdeigi
er hellt í sérhannað mót til skiptis.
Hversdagslegri matarhefð er lyft
á hærra plan. Með tertunni er
borin fram berjasósa, rjómalöguð
kartöflumús og rófustappa. Þess
má geta að hún bragðast einnig
vel köld.
Höggstokkur sem er sérhann-
aður til að skera sérhannaða
rúgbrauðsrúllutertuna.
Rabarbara-karamella
Kveikjan að rabarbara-kara-
mellunni frá Löngumýri er
æskuminningin um sælgætið sem
stilkurinn af rabarbaranum breyttist
í þegar honum var dýft í sykurkar.
Undirstaðan er lífrænn rabarbari og
karamellan er í laginu eins og rabar-
barastilkur í rauðbleikum gjafaumbúðum.
Verkefnið var unnið meðal annars af Örnu Rut
Þorleifsdóttur vöruhönnuði og Örvari Birgissyni
bakarameistar í samstarfi við bændurna á Löngumýri, þau
Kjartan Ágústsson og Dorothee Lubecki.
hönnun 33 Helgin 30. mars-1. apríl 2012