Fréttatíminn - 30.03.2012, Qupperneq 54
Hver er hugsunin á bak við
veitingastaði LIFANDI markaðar?
„Matargerð er okkar ástríða. Við leitumst við að
sameina allar heimsins matarhefðir og bjóða
fjölbreytt úrval ljúffengra og hollra rétta sem
matreiddir eru frá grunni. Við berum mikla
virðingu fyrir hráefninu og veljum aðeins
það besta sem í boði er hverju sinni. Lífrænt
ræktað hráefni er okkar fyrsti kostur. Metnaður
okkar felst einnig í hámarka næringargildi hvers
réttar með góðri samsetningu próteina, kolvetna
og fi tu. Þá leggjum við okkur fram við að bjóða
valkosti fyrir þá sem eru með ofnæmi eða
mataróþol.“
Hver er Albert?
„Ég er matreiðslumeistari að mennt og stundaði
matreiðslunámið á Gullna Hananum á árunum 1989-
1993. Ég hef óbilandi áhuga á margskonar matargerð
en hollt mataræði hefur fangað mig síðustu árin þar
sem ég þurfti sjálfur að breyta um lífsstíl eftir að hafa
þurft að heyja baráttu við aukakílóin frá barnsaldi.“
Ertu með góð ráð fyrir þá sem vilja
breyta um lífsstíl?
Bls. 14
Albert Ingi
Ingimundarson
LIFANDI
matseðill
• Fjölbreytta rétti úr grænmeti,
kjúklingi eða fi ski
• Súpu dagsins, salatbar og
heimabakað brauð
• Orkubar – fjölbreytt úrval af þeytingum,
ferskum söfum og heilsuskotum
• Tilbúna rétti til að taka með eða borða
á staðnum: vefjur, pizzur og bökur
• Frábæra eftirrétti, m.a. úr hráfæði
• Kaffi og te
Yfi rmaður veitingadeildar
LIFANDI markaðar
Spennandi réttir,
þeytingar og safar
50 g ferskt spínat (1 góð lúka)
100 g frosin bláber
1 stk banani
1 dós hreint lífrænt skyr frá Bíóbú (170 g)
1 fl aska kókos- og ananassafi (200 ml)
1 msk Choco Chocoreale súkkulaðimauk
6 stk klakar
Aðferð: Setjið allt í blandara og þeytið vel saman.
Drekkist ískalt.
Kökubotn:
250 g lífrænar pekan hnetur
150 g lífrænar döðlur
80 g kókosmjöl gróft
60 ml kókosolía
20 g kakóduft
Ögn sjávarsalt
Aðferð: Setjið allt í matvinnsluvél og maukið. Smyrjið
26 cm springform og þrýstið deiginu í, upp að miðjum
hliðum formsins. Látið standa á köldum stað á meðan
fyllingin er löguð.
Fylling:
250 g kasjúhnetur (lagðar í bleyti í 4-6 klst. Vatninu
svo hellt af)
85 g kakóduft
250 ml vatn
100 ml agavesíróp
120 ml kókosolía
1 tsk vanilluduft, lífrænt
Aðferð: Setjið allt í blandara og þeytið þar til silkimjúkt.
Smyrjið fyllingunni á botninn og frystið yfi r nótt. Rétt
áður en kakan er borin fram, látið hana standa við
stofuhita um stund. Skreytið með ferskum berjum og
ávöxtum. Ljúffeng með þeyttum rjóma.
Súkkulaði hrákaka
Frískandi páskaþeytingur
Hvar erum við?
• Setja raunhæf markmið bæði varðandi
mataræði og hreyfi ngu. Ekki kúvenda öllu
heldur taka eitt skref í einu.
• Ráðfæra sig við sérfræðinga – heimilislækni,
líkamsræktarþjálfara og næringarráðgjafa.
Fylgja planinu!
• Ekki brjóta sig niður ef farið er út af sporinu
– hæðir og lægðir eru eðlilegar.
• Hugsa um litlu sigrana á hverjum degi.
• Aldrei gefast upp!
LIFANDI markaður á tveimur stöðum
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6
201 KópavogI
Sími: 585 8710
Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17
www.lifandimarkadur.is Finndu okkur á Facebook