Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.05.2012, Síða 1

Fréttatíminn - 18.05.2012, Síða 1
18.-20. maí 2012 20. tölublað 3. árgangur 22 Ófullnægðir foreldrar eftir barnasprengju Sigríður Dögg Greta Salóme  VIÐTAL DorrIT MoussAIeff Flóttamaðurinn Sayid 14 Tekur dauð- ann fram yfir líf í Erítreu EM 2012 Klose og fleiri hetjur á síðasta séns 20 Fótbolti viðtal síða 26 Svakalegur meðbyr viðtal Lj ós m yn d/ H ar i 18ÚttEkt Deilur á Facebook Íslendingar þræta á vin- sælustu vefsíðu heims Viðhald húsaUnnið í samvinnu við Húseigendafélagið, Samtök iðnaðarins og Nýsköpunarmiðstöð Íslands Helgin 18.-20. maí 2012 E igendur í fjöleignarhúsum þurfa allir einhvern tímann að ráðast í viðhald, breytingar og endurbætur á íbúðum sínum. Eigendur hafa verulegt svig-rúm gagnvart sameigendum þótt slíkar framkvæmdir valdi sambýlisfólkinu ónæði. En, stundum er þetta „sagan endalausa“ og framkvæmdir spanna langan tíma. Oft er barið, mölvað, sagað og borað á öllum tímum. Slæm umgengni um sameignina er oft fylgifiskur. Eru dæmi um illvígar deilur vegna þessa og að íbúðareigendur hafi jafnvel flúið hús þegar verst hefur látið. Menn nota jafnvel sleggjur og múrbrjóta til tjáskipta. Þegar framkvæmdagleðin gengur af göflum eru góð ráð dýr. Hún er oft stjórnlaus, illviðráðanleg og illkynja í þokkabót. Sáttfýsi, sanngirni, málamiðlun, tillitssemi, skilningur og umburðalyndi eru þau bönd sem hún verður hamin í og tamin.Í fjölbýli er fín línan milli athafnafrelsis og hagnýtingar eins og friðar annars. Jafn-vægið er hárfínt og viðkvæmt. Þar gildir hið gullna meðalhóf sem mörgum gengur svo tregt að feta. Mörkin milli athafnafrelsis eins og næðisréttar annars eru hárfín og þarf lítið til að raska því. Smæstu mál geta á auga-bragði blossað upp í skaðræðis ófriðarbál. Hús hins himneska friðar getur á örskots-stundu orðið vítishús. Djöfulgangur og múrbrotEigendum fjöleignarhúsa eru sem sagt tak-mörk sett við hagnýtingu eigna sinna og þeir hafa fráleitt frítt spil og mega ekki fara sínu fram á sínum forsendum eingöngu og kæra sig kollótta um hagsmuni og rétt sam-eigenda sinna Á hinn bóginn verða íbúar í fjöleignarhúsum að sætta sig við og þola að vissu marki ónæði og óþægindi sem ekki verða umflúin. Menn verða að sætta sig við það að þeir eru á sama báti, undir sama þaki, og fleira fólk sem lifir sínu lífi og á sér líka tilverurétt. Þeir sem búa í fjölbýli verða að sætta sig við ýmis „óþægindi“ vegna hins nána sambýlis en þeim er hins vegar óskylt að búa við viðvarandi verulegt ónæði. Ýmis konar brölt og fyrirgangur er eðlilegur þátt-ur í viðhaldi og eðlilegum endurbótum og umhirðu eignar, til dæmis hamarshögg og boranir. Öðru máli gegnir hins vegar um múrbrot og annan „djöfulgang“ en telja verð-ur að aðrir eigendur þurfi ekki að þola slíkt nema á daginn. Rík skylda hvílir á eiganda sem stendur í framkvæmdum að hann geri allt sem í hans valdi stendur til að sambýlis-fólk hans verði fyrir sem minnstu ónæði og óþægindum vegna þeirra. Grimmir frekjuhundarEf fólk færi almennt eftir hinni góðu bók um að gera öðrum ekki neitt sem það vill ekki að aðrir gjöri því þá væri allt í himnalagi. En við erum því miður upp til hópa þrjóskir, yfirgangssamir, ráðríkir, heimaríkir, frekju-hundar sem eiga bágt með að setja sig í spor annarra og beita málamiðlun. Í stað þess að fara eftir boði Nýja testamentisins virðist okkur mikið tamara að fara eftir grimmum og hefnigjörnum boðum Gamla testament-inu um auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Og þá er vísast andskotinn laus. Í lögum um fjöleignarhús eru engin bein ákvæði um það hversu lengi og á hvaða tímum megi smíða, brjóta og bramla en þar er hins vegar almennt boðið að íbúar skuli gæta þess að valda sambýlisfólki sínu ekki óþarfa ama og óþægindum. Jafnframt er mælt fyrir um að húsreglur skuli geyma nánari fyrirmæli um hagnýtingu eigna og samskipi eigenda í því efni. Skal í þeim meðal annars koma fram bann við röskun á svefnfriði að minnsta kosti frá miðnætti til klukkan sjö. Frá þessari reglu má þó alls ekki gagnálykta á þá lund að láta megi illum látum á öðrum tímum. Menn eiga alltaf að stíga varlega til jarðar eða gólfs og sýna hver öðrum tillitssemi ávalt og á öll-um tímum. Húsfélag getur sett reglur til höf-uðs ónæðissömum framkvæmdum og sett þeim eðlilegar og sanngjarnar hömlur. NágrannakærleikurinnAlmennt má segja að viðhald og endurbætur í fjöleignarhúsum eigi að framkvæma á eins skömmum tíma og framast er unnt og með sem allra minnstu ónæði og röskun fyrir aðra íbúa hússins. Þó verður að játa fram-kvæmdaglöðum eiganda ákveðið sanngjarnt svigrúm og brýnt er að hann kosti kapps um að hafa samráð við aðra eigendur fyrirfram og upplýsi þá um framgang og stöðu verks-ins og reyni eins og kostur er að taka tillit til eðlilegra sanngjarnra óska og sjónarmiða annarra eigenda við framkvæmdina. Fram-kvæmdir sem hefjast eins og þruma eða loftárás úr heiðskíru lofti valda mikið frekar deilum og leiðindum en þær sem tilkynnt er um fyrir fram og ráðist er í með tillitssemi og nágrannakærleika að leiðarljósi.  FjölEigNaHúS grUNdvallarrEglUr Í SamSkiptUm Grannar ganga af göflunum Íbúar hafa jafnvel flúið hús venga illvígra deilna. PI PA R\ TB W A · SÍ A · 11 22 33 b m va ll a .is Sími: 412 5050 Fax: 412 5001 sala@bmvalla.is BM Vallá ehf. Breiðhöfða 3 110 Reykjavík Gluggar eru ekki bara gler Veldu háeinangrandi PRO TEC Classic glugga sem spara orku BM Vallá býður vandaðar glugga lausnir frá PRO TEC í Danmörku. Gluggarnir eru úr áli og tré og henta vel fyrir íslenskar aðstæður. PRO TEC gluggar hafa verið seldir á Íslandi frá 1993 og verið prófaðir og vottaðir gagnvart íslensku vind- og slagregnsálagi. Glerið er háeinangrandi sem lækkar hitunar kostnað og sparar orku. Hver gluggi er sér smíðaður eftir óskum viðskipta vinar um stærð, lit og lögun. Kynntu þér PRO TEC hjá BM Vallá áður en þú velur glugga. Það gæti borgað sig. Sigurður Helgi Guðjónsson hrl, formaður Húseigendafélagsins, fer hér yfir nokkrar grundvallarreglur í samskiptum þeirra sem búa í fjölbýlishúsum; tæpir á hryllings- sögum og nágrönnum sem eru svo illskeyttir að þeim lánast að breyta húsum í sannkölluð vítishús eins og hendi sé veifað. Viðhald húsa í miðju FrÉttatímans Dorrit Moussaieff hefur verið gift Ólafi Ragnari í níu ár. Hún hefur glímt við lesblindu, athyglis- brest og ofvirkni, á að baki mislukkað hjóna- band, stopul ástarsam- bönd og hafði aldrei tíma til að eignast börn. Hún dvelur ekki við þann þanka heldur lifir í núinu og horfir fram á veginn. EuRovision 62 Elskar Ólaf Ragnar, Ísland og Sám Gleraugnaverslunin þín PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 21 4 4 4 Ný og glæsileg sólgleraugu í Augastað MJÓDDINNI Álfabakka 14 Opið: virka daga 9–18 og laugardaga 11–15 FIRÐI Fjarðargötu 13–15 Opið: virka daga 10–18 og laugardaga 11–15 SELFOSSI Austurvegi 4 Opið: virka daga 10–18 Gucci Vera Wang Boss

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.