Fréttatíminn - 18.05.2012, Blaðsíða 29
ÞVottaefni fyrir hVert tilefni
StórÞVottur
framundan?
hafðu Það fínt
nú er Það SVart
Ekkert jafnast á við
Neutral Storvask til
að komast til botns
í þvottakörfunni.
Hentar fyrir þvott
af öllu tagi.
Silkihönskum, ullarteppum
og dúnúlpum hæfir 30 til
40 gráðu þvottur í höndum
eða vél með Neutral Uld-
og finvask.
Neutral Sort vask varðveitir
svartan glæsileikann svo hann
tapi ekki lit sínum. Upplitað er
bara ekki í tísku þessa dagana.
Fyrir alla muni, ekki láta
þennan lenda í hvíta
þvottinum.
Létt er að flokka
litríka sokka.
nú er Það hVítt haltu lífi í litunum
Ensímin í Neutral Hvid vask
losa þig við erfiða bletti og
óhreinindi. Það skilar sér í
björtum og hvítum þvotti.
Fljótandi Neutral leysist vel
upp og hentar því líka vel í
handþvottinn.
Settu svolítið af Neutral Color
í hólfið og njóttu þess að fá
þvott inn jafn litríkan úr vélinni
aftur. Þetta er kröftugt, þú
notar bara lítið af dufti í
hverja vél. Fljótandi Neutral
Color endist líka og endist.
Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi
mælir með vörum frá Neutral
Dönsku astma- og
ofnæmissamtökin
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
N
AT
5
96
94
0
5.
20
12
Dorrit horfir til:
– Æðardúns
„Það ætti að vera biðlisti eftir æðardúni.
Fólk ætti að panta hann sérstaklega,
standa í röð og fá hann upprunamerktan
í hendur. Hægt væri að selja hann fimm-
falt dýrari en nú er gert. Ef Ólafur verður
áfram forseti ætla ég að hella mér út í
þetta. Því þetta er auðgert.“
- Þorskalifrar
„Þorskalifur. Við verðum að flytja miklu
meira út af henni. Hún er svo heilsu-
samleg. Ímynd Íslands ætti að vera svöl,
heilbrigð og láta fólk vita að Ísland er
ekki langt í burtu.“
- Jökuls Bergmann
... og þyrluskíðaferða hans. „Maður
myndin nú halda að Svisslendingar
fengju nægju sína af fjöllum í landi sínu,
en hingað koma þeir því að gæðin sem
eru í boði hér eru langtum betri.“
- Lífrænna bænda
„Ríkisstjórnin þarf að bjóða upp á rétta
umgjörð svo fólk geti fjárfest hér á landi.“
- Kvikmyndahátíða á Íslandi
„Í síðustu viku var ég í Lundúnum og
hitti á [ameríska stórleikarann] Robert
Redford. Hann er mjög áhugasamur um
að halda Sundance hátíð hér á landi,“
segir hún en Robert er einn stofnanda
hátíðarinnar. „Við getum líka haft fleiri
hátíðir. Það kostar ekki mikið. Þetta er
eitt sem Ísland ætti að herja á. Margir
sem halda kvikmyndahátíðir óttast um
öryggi stjarnanna. Hér þurfum við ekki
að hafa áhyggjur.“
- Ónýttra tækifæra
„Ég get ekki beðið eftir því að grafa
upp hluti sem enginn veit af og gera að
[vinsælum varningi] – Dæmi um slíkt er
íslenski þarinn. Þarinn á veitingastöðum
Bretlands og Bandaríkjanna kemur frá
Japan. Hann er allur geislavirkur,“ segir
hún. „Íslenski þarinn er svo heilbrigður
og sá eini í heiminum sem er hreinn.
Og við erum byrjuð að selja hann. Hann
er nú til dæmis seldur í Whole Foods
Market.“
- Heilsulinda og sjúkrahótela
„Við ættum að leyfa læknum að nýta
frítíma sinn í að sinna útlendingum sem
koma hingað í aðgerðir. Ég tel að það
gæti hjálpað okkur og veitt okkur tekjur
til að greiða niður okkar eigin heilbrigðis-
þjónustu. Svo tel ég að það færi vel á að
byggja heilsuhótel og lindir hér svo fólk
geti jafnað sig, synt í jarðvarmavatninu
okkar og borðað heilbrigða matinn okkar
og notið hreina loftsins.“
- Íslenskrar framleiðslu
Dorrit hvetur fólk til þess að vera með-
vitað um að kaupa íslenskt. Fáist íslensk
vara eigi að kaupa hana umfram aðrar.
„Við ættum að flytja sem minnst inn.“
- Að meira liggi hér eftir
ferðamenn
„Það sem ég vil sjá eru fleiri ferðamenn
sem skilja meira fé eftir en nú er,“ segir
hún. „Ég vil að fólk komi ekki aðeins
hingað til að njóta náttúrunnar, heldur
komi til að njóta handverksins, matarins,
listamannanna okkar, fatanna. Ég vil að
ferðamenn taki með sér þá hluti sem við
getum selt þeim.“
- Íslenska hestsins
„Við gætum selt svo miklu meira af þeim.
Svo gætum við gert svo miklu meira úr
hrosshári. Sérstaklega þegar kemur að
skreytingum, líka fötum. Ég veit aðeins
um einn hönnuð sem notar hrosshárin.“
- Þess að eggin séu sett í fleiri
körfur
„Því það er alltaf einhver geirinn í
efnahagslegri lægð – og eins og er eru
það fleiri. Við megum ekki feta í fótspor
Spánverja sem flytja inn vörur sem þeir
gætu svo auðveldlega búið til sjálfir. Við
þurfum að nýta þá þætti og auðlindir
sem fyrirfinnast. Við þurfum að búa til
störfin okkar sjálf og flytja út afrakstur-
inn,“ segir hún. „Þetta er engin banka-
starfsemi, heldur alvöru viðskipti.
fyrirtækjarekstri fullkomlega og
vildi ekki slá af kröfunum. Svo ég
frestaði barneignum,“ segir Dorrit
sem er í litlu sambandi við þennan
fyrrum eiginmann sinn.
En strukuð þið til þess að giftast?
„Nei, við höfðum þegar hafið sam-
búð. Ég verð að viðurkenna að flest
sem skrifað hefur verið um mig í
ensku pressunni er ekki rétt. En
þetta er rétt. Foreldrar mínir lásu
um hjónabandið í slúðurdálkum
pressunnar,“ segir hún.
Missti kærasta úr krabbameini
„Svo þegar reksturinn gekk vel
skildum við eiginmaður minn.
Hann fékk fyrirtækið og ég sneri
til foreldra minna og fyrirtækis
þeirra,“ segir hún og sýtir að þetta
Þetta hjónaband komst
bara á endastöð. Hvorugt
okkar tók af skarið til að
slíta því. Hann lifði á nótt-
unni. Ég á daginn. Hann
gerði það sem hann gerði
á nóttunni. Ég var upp-
tekin við vinnuna.
fyrrum fyrirtæki hennar hafi orðið
gjaldþrota í höndum fyrri eigin-
mannsins, enda hafi hann verið fík-
inn í spil. Spurð hvort hún hafi þess
vegna ákveðið að skilja við hann
segir hún það ekki hafa verið svo að
annað þeirra hafi hafnað hinu.
„Þetta hjónaband komst bara
á endastöð. Hvorugt okkar tók af
skarið til að slíta því. Hann lifði á
nóttunni. Ég á daginn. Hann gerði
það sem hann gerði á nóttunni. Ég
var upptekin við vinnuna.“
Dorrit segir að á þessum tíma
hafi barneignir ekki komið til
greina, enda viðhorfið ekki eins
frjálslegt og hér á Íslandi. „Eftir
fyrsta hjónabandið átti ég í tveimur
alvarlegum ástarsamböndum. Ann-
ar var fráskilinn en átti þegar tvö
börn. Hann hins vegar veiktist og
dó úr nýrnakrabbameini þegar við
vorum saman. En þessi síðari kær-
asti minn átti nú ekki börn en varð
einnig mjög veikur og lést síðar úr
krabbameini í blöðruhálskirtli. En
það var eftir að sambandinu lauk,“
segir hún og bætir við að hún sakni
þeirra.
„Ég á þrjá karlkyns vini sem hafa
látist fyrir aldur fram úr sjúk-
dómum. Allir höfðu þeir efni á að
sækja sér bestu mögulegu læknis-
þjónustu,“ segir hún, en samt fór
sem fór.
Engin eftirsjá af barnleysinu
En Dorrit sér ekki eftir því að hafa
ekki eignast börn. „Nei, ég á mína
Framhald á næastu opnu
viðtal 29 Helgin 18.-20. maí 2012